Til fróðleiks sendum við afrit af tilkynningu Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum til fjölmiðlanefndar/lögreglunnar vegna auglýsinga á RÚV frá Smáríkinu sem nú nýverið var dæmt vegna ólöglegrar áfengissölu.
Við bendum á mikilvægt hlutverk og þá ábyrgð sem RÚV ber gagnvart almenningi sem opinber fjölmiðill. Sem slíkur á RÚV að vera fyrirmynd í vönduðum og lögmætum vinnubrögðum og gæta sérstaklega að því að virða gildandi lög og reglur, ekki síst þegar um er að ræða viðkvæm málefni á borð við áfengismál og áhrif þess á samfélagið, ekki síst börn og ungmenni.
Það er því ekki boðlegt að RÚV brjóti lög með því að auglýsa ólöglega starfsemi og það ætti heldur ekki að vera í boði að RÚV birti illa dulbúnar áfengisauglýsingar sem augljóslega eru ómerkilegir útúrsnúningar á skýrum lögum um bann við áfengisauglýsingum. Slík framsetning grefur undan tilgangi laganna, sem er að vernda almenning, sérstaklega börn og ungmenni, gegn áhrifum markaðssetningar áfengis.
Almenningur í landinu á að geta treyst því að Útvarp allra landsmanna fari að lögum, bæði anda þeirra og bókstaf.
Þrátt fyrir það birtist kl ca 19:25 sunnudaginn 26. apríl í sjónvarpi RÚV auglýsing um þessa ólöglegu starfsemi Smáríkisins. Að mati samtakanna er þessi auglýsing jafnframt brot gagnvart 20. grein áfengislaga um bann við áfengisauglýsingum.
Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum krefjast þess að gripið verði til viðeigandi ráðstafana þegar í stað. Það er algerlega óboðlegt að RÚV virði hvorki siðferðilegar né lagalegar skyldur sínar hvað þetta mál varðar.
Fyrir hönd Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum
Dómur gegn Smáríkinu fyrir brot á áfengislöggjöfinni
Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 8. apríl 2026
Mál nr. S-1780/2025:
Ákæruvaldið (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X X X forsvarsmanni Smáríkisins * (*breytt FGÁ . nafn tekið út – titill settur inn. ) (Ólafur Eiríksson lögmaður)
I.Dómur:
Mál þetta, sem dómtekið var 19. mars 2026, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 16. júní 2025, á hendur ákærða X X X* , kt. 000000-0000, […], […].
Málið er höfðað á hendur ákærða fyrir brot gegn áfengislögum með því að hafa, sem stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og daglegur stjórnandi í Kjútís ehf., kt. 000000-0000 og daglegur stjórnandi í Icelandic Trading Company b.v., kt. 000000-0000, þann 30. maí 2024, selt einn 3000 ml hvítvínsbelg af tegundinni BiB Frontera Chardonnay, með 11% áfengisinnihaldi, fyrir kr. 6.898, í smásölu til tilgreinds einstaklings, í gegnum vefsíðuna www.smarikid.is, sem starfrækt er af félaginu Icelandic Trading Company b.v., en ákærði var þá skráður rétthafi lénsins, en áfengið var afhent sendli á vegum Wolt, sem fór með áfengið til umrædds einstaklings í kjölfar þess að viðkomandi hafði innt af hendi greiðslu fyrir áfengið og sendingarkostnað í gegnum greiðslugátt á vefsíðunni klukkan 15:10 þann 30. maí 2024 en umrædd smásala áfengisins var liður í atvinnustarfsemi beggja félaganna. Félagið Kjútís ehf. hafði keypt áfengið af áfengisheildsala á Íslandi á grundvelli tímabundins leyfis til heildsölu áfengis og geymdi það á starfsstöð sinni að Fellsmúla 24 í Reykjavík þar til áfengið var selt og afhent umræddum einstakling en framangreind viðskipti fóru fram án þess að ákærði og félögin sem hann veitti fyrirsvar hefðu leyfi til smásölu áfengis á Íslandi á umræddu tímabili. Þannig flutti Icelandic Trading Company b.v. áfengið ekki til Íslands í kjölfar pöntunarinnar í gegnum vefsíðuna heldur hafði milligöngu um smásölu áfengis sem Kjútís ehf. hafði þegar keypt hjá áfengisheildsala á Íslandi og hafði í geymslu á starfsstöð sinni. Með framangreindum hætti braut ákærði gegn einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins til smásölu áfengis á Íslandi.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 4. gr., 2. mgr. 9. gr., 1. mgr. 10. gr., sbr. 1. og 4. mgr.
gr. áfengislaga nr. 75/1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Í ákæru og rannsóknargögnum málsins kemur fram að Smáríkið sé með starfsstöð að Fellsmúla 24 en það á líklega að vera Fellsmúli 26, sbr. heimasíðu Smáríkisins. Þetta breytir því ekki að dómur verður lagður á málið enda varð vörn ákærða ekki áfátt vegna þessa, sbr. 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Ákærði fór fram á það að leitað yrði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins um skýringu á þeim atriðum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókunum með honum, viðaukum við hann eða gerðum (,,EES-samningurinn“) sem taka þyrfti afstöðu til við úrlausn þessa máls. Með úrskurði dómsins 19. nóvember 2025 var þessari beiðni ákærða hafnað og var sú niðurstaða staðfest af Landsrétti 26. sama mánaðar (mál nr. 820/2025).
II Málavextir. Samkvæmt upplýsingaskýrslu lögreglu voru lögreglumenn við eftirlit við starfsstöð Smáríkisins við Fellsmúla 26 í Reykjavík um hádegi fimmtudaginn 23. maí 2024. Þar urðu þeir m.a. vitni að því að ung stúlka bar þar út í bifreið marga kassa af bjór og aðstoðaði starfsmaður Smáríkisins hana við það. Fullorðinn karlmaður fór einnig þaðan út með áfengi og nokkrir aðilar til viðbótar komu að starfsstöðinni.
Lögreglumenn voru einnig við eftirlit 30. maí 2024 við Fellsmúla 26. Þá kom sendibifreið og af henni var tekið eitt vörubretti með kössum sem m.a. voru merktir ,,Peroni“ og var farið með brettið inn í starfsstöðina. Starfsmaður þar veitti vörunum viðtöku. Lögreglumenn höfðu síðan afskipti af manni, sem kvaðst vera sendill á vegum Wolt, en hann hafði komið út úr starfsstöðinni með kassa af lager bjór og sett hann inn í bifreið. Viðtakandi sendingarinnar var skráður Sara og símanúmer hennar var við nafnið.
Sendillinn kvaðst ekki hafa aðrar upplýsingar og hann fór síðan á brott. Lögreglumenn höfðu síðan afskipti af öðrum starfsmanni Wolt en hann kom að Fellsmúla 26 á bifreið, fór inn í starfsstöð Smáríkisins og kom þaðan út með vínbelg í kassa. Viðkomandi kvaðst hafa verið að sækja sendingu í Smáríkið, sem reyndist vera Frontera-vínkassi, og viðtakandi var skráður A á […]. Lögreglumaður hafði samband við hana og tók af henni framburð. Hún kannaðist við að hafa átt viðskipti við Smáríkið með smáforriti á netinu en sendill frá Wolt hafi komið með vöruna til hennar. Hún kvaðst hafa vitað um starfsemi Smáríkisins vegna auglýsingar á netinu. Á reikningi vegna viðskiptanna var A skráð greiðandi en seljandi ITC í Hollandi.
Lögreglumenn fóru inn í starfsstöð Smáríkisins og hittu þar fyrir starfsmann. Hann kvaðst hafa starfað sem verktaki hjá Smáríkinu í nokkra mánuði og taki þar stakar vaktir. Hann kvaðst vera einn á vakt og starf hans fælist í því að afhenda pantanir en greitt væri fyrir vörur á vefnum og hann hefði engin afskipti af því. Hann tæki saman vörurnar sem væru pantaðar og afhenti þær ýmist þeim sem hefði pantað eða sendli á vegum Wolt. Verktakinn sagði að þegar hann hafi verið á staðnum hafi alltaf sami maðurinn komið með vörur á starfsstöðina og hann væri yfirmaður sinn. Á vinstri hönd við innganginn á starfsstöðinni var afgreiðsluborð en innan við það voru hillur með áfengisflöskum og tölvubúnaður vegna afgreiðslu. Þar fyrir innan var kæliherbergi og áfengi í hillum. Á ljósmyndum frá vettvangi má m.a. sjá spjaldtölvu og tölvu með upplýsingum um pantanir, strikamerki og áfengisumbúðir með límmiðum með upplýsingum um pantanir merkt nöfnum, áfengi í hillum og á vörubrettum. Á ljósmyndum sést aðallega bjór og léttvín en einnig sterkt áfengi.
Fimmtudaginn 30. maí 2024 voru lögreglumenn við eftirlit við starfsstöð Smáríkisins að Miðhrauni 22b í Garðabæ þegar þeir sáu karlmann koma þar út með tvo kassa af bjór og hann fór síðan inn í húsnæðið aftur og starfsmaður þar rétti manninum eina kippu af bjór til viðbótar. Hann kvaðst hafa keypt bjór á vefsíðunni smariki.is fyrir um 12.000 krónur, greitt fyrir vörurnar á netinu og væri að sækja þær. Lögreglumenn ræddu við starfsmann Smáríkisins og sagði hún að starf hennar fælist í því að afhenda viðskiptavinum pantanir sem gerðar hefðu verið á vefsíðunni smariki.is. Starfsmenn myndu skoða skilríki og pantanir væru aðeins afhentar kaupanda samkvæmt pöntun. Eigandi Smáríkisins og framkvæmdastjóri þess, ákærði í máli þessu, komu á vettvang.
Í húsnæðinu var afgreiðsluborð í anddyrinu en fyrir innan það voru fimm kæliskápar með áfengi og áfengi í hillum. Lengra inni í húsnæðinu var kæliskápur með áfengi, 17 vörubretti með áfengi og áfengi í hillum og á borði. Á ljósmyndum sem teknar voru á vettvangi sjást kæliskápar með áfengi, áfengi í hillum og á vörubrettum. Um var að ræða bjór, bæði innlendan og erlendan, léttvín og sterkt vín.
Smáríkið var einnig með starfsstöð að Hraunbæ 102a í Reykjavík og þar voru lögreglumenn einnig við eftirlit fimmtudaginn 30. maí 2024. Þeir höfðu þar afskipti af kvenmanni sem kom með kippu af bjór út úr starfsstöðinni. Hún kvaðst hafa pantað kippuna á vefsíðunni smarikid.is, greitt fyrir með greiðslukorti og síðan sótt pöntunina að Hraunbæ 102a. Lögreglumenn fóru síðan, höfðu tal af starfsmanni, skoðuðu starfsstöðina og framkvæmdu birgðatalningu. Á starfsstöðinni koma viðskiptavinir inn í herbergi og þar er lúga þar sem pantanir eru afgreiddar. Fyrir innan afgreiðsluna er geymsla og þar fyrir innan er köld geymsla. Vörutegundir á starfsstöðinni reyndust vera 172 og margar þeirra voru íslensk framleiðsla. Á meðan lögreglumenn voru á staðnum komu þrír einstaklingar til að sækja pantanir. Á ljósmyndum frá starfsstöð Smáríkisins að Hraunbæ 102a sést áfengi á vörubrettum, í hillum og á vögnum, að stærstum hluta bjór og léttvín.
ITC, með heimili í Rotterdam í Hollandi, sótti um skráningu og útgáfu á kennitölu fyrir erlent fyrirtæki vegna bankaviðskipta á Íslandi með umsókn til fyrirtækjaskrár Skattsins, dags. 2. janúar 2024. Samkvæmt upplýsingum úr fyrirtækjaskrá Verslunarráðs Hollands var ITC stofnað 14. september 2023 og starfsemin sögð vera smásala á matvöru og lyfjabúðarvöru á vefnum. Stjórnarmaður við skráningu var ákærði en B var skráð forráðamaður 4. mars 2024 og var það 30. maí 2024 þegar atvikið varð sem ákært er vegna.
Félagið Kjútís var stofnað 18. janúar 2021 og forráðamaður þess var þá ákærði. Starfsemi þess var þá aðallega blönduð heildverslun. Félagið var skráð á virðisaukaskattsskrá 14. september 2023. Tilkynnt var um breyttan tilgang/starfsemi félagsins 25. september 2023 og þá var aðalstarfsemin sögð vera heildsala, dreifing matvæla og áfengis. Með tilkynningum sama dag var tilkynnt um að ákærði væri stjórnarmaður og prókúruhafi félagsins og lögheimili félagsins væri að Eskiási 1 í Garðabæ.
Í skilmálum Smáríkisins segir að viðskiptavinir þess þurfi að hafa náð 20 ára aldri og við stofnun aðgangs á smarikid.is þurfi viðskiptavinir að auðkenna aldur sinn með rafrænum skilríkjum. Allar vörur sem ITC bjóði til sölu í vefverslun sinni séu á lager á Íslandi og afgreiddar úr vöruhúsinu samdægurs eða í síðasta lagi næsta virka dag. Hægt sé að skila allri vöru nema matvöru (matur, bjór og vín) innan 14 daga frá því að viðskipti hafi farið fram.
Kjútís ehf. er með starfsleyfi frá heilbrigðisnefnd Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, dags. 22. desember 2023. Í leyfinu kemur fram að það taki til heildverslunar og dreifingar á áfengi. Í tölvupósti heilbrigðiseftirlitsins frá 31. maí 2024, í kjölfar heimsóknar í afgreiðslu Smáríkisins að Miðhrauni 22b í Garðabæ, kemur fram að hjá þeim sé fyrirtækið skráð hjá eftirlitinu sem Kjútís ehf. sem sé með starfsleyfi fyrir dreifingu matvæla, þ.e. heildverslun með áfengi. Fyrirtækið ITC í Rotterdam sé söluaðili og komi fram á reikningi neytandans. Allar vörur á lager séu keyptar inn í nafni Kjútís ehf. en síðan sé gerður reikningur á milli Kjútís ehf. og ITC. Fyrirtækið Wolt, sem sé með starfsleyfi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, sjái um heimsendingu fyrir ITC. Þá kemur fram að ITC sé ekki með starfsleyfi hjá heilbrigðiseftirliti og þurfi það að sækja um það til að geta móttekið vöru.
Samkvæmt yfirliti Smáríkisins hóf það viðskipti 3. nóvember 2023 og var þá með starfsstöð að Miðhrauni í Garðabæ en í maí 2024 bættust við starfsstöðvar við Fellsmúla og Hraunbæ í Reykjavík. Seldir áfengislítrar frá nóvember 2023 til og með maí 2024 voru 1.689 og velta án virðisaukaskatts var 37.593.864 krónur. Smáríkið er með lénið smarikið.is skráð hjá ISNIC og var það skráð 19. júlí 2023 en ákærði er skráður rétthafi þess. Þá var netfangið info@smarikid.is skráð 5. júní 2024 á nafn ITC.
Kjútís ehf. og ITC gerðu með sér þjónustusamning 1. nóvember 2023. Þar kemur fram að Kjútís ehf. sé íslenskt þjónustufyrirtæki sem veiti ITC aðstöðu og aðra þjónustu. Þjónustan felist í því að útvega athafnasvæði eins og þurfi til þess að selja vörur ITC á Íslandi, athafnasvæði eins og vöruhús og önnur geymslusvæði sem tengist skipulögðu dreifikerfi. Þá skuli Kjútís ehf. taka á móti vörum ITC til sölu á Íslandi og afhendingar á þeim vörum annað hvort til íslenskra viðskiptavina eða íslenskra milliliða. Einnig taki þjónustan til vinnslu og pökkunar á vörum ITC til sölu á Íslandi eins og þörf krefji. Í samningnum segir að Kjútís ehf. sé heimilt að útvista þjónustu samkvæmt samningnum til þriðja aðila en Kjútís ehf. hafi hins vegar ekki vald til þess að semja fyrir hönd ITC eða til að binda það að lögum. ITC skuli greiða Kjútís ehf. þjónustugjald fyrir veitta þjónustu mánaðarlega eða á þann hátt sem kunni að vera samið um. Kjútís ehf. skuli halda tímaskráningu og tímaskýrsla skuli fylgja hverjum reikningi sem skuli gefnir út í íslenskum krónum. Ákærði skrifaði undir þjónustusamninginn bæði fyrir hönd ITC og Kjútís ehf.
Samkvæmt bréfum Skattsins frá 11. júní 2024 var ekki um útflutning að ræða á vegum Kjútís ehf. á tímabilinu 1. september 2023 til 31. maí 2024. Á sama tímabili var hvorki um inn- eða útflutning að ræða á vegum ITC.
Lögregla gerði skoðun 1. júlí 2024 á vefsýnileika fyrirtækisins Smáríkið sem sé íslenskt útsölunafn á fyrirtækinu ITC. Vefsíða fyrirtækisins smarikid.is var skoðuð og opinberar síður þess á Facebook og TikTok. Opinbera síðan sé sölusíða þar sem selt sé áfengi í lausasölu og forsíðan sýni tvo möguleika, sótt eða heimsending og síðan sé hægt að skoða þær vörur sem netverslunin bjóði upp á. Þá sé hægt að skoða staðsetningu verslunar. Skrá þarf sig inn með rafrænum skilríkjum. Auglýsingar á Facebook-síðu Smáríkisins voru flestar um opnunartíma en ekki var hægt að sjá að áfengi væri beint auglýst né að auglýsingum væri beint að ungmennum.
Samkvæmt vottorði úr fyrirtækjaskrá frá 3. júní 2024 var ákærði stjórnarmaður í Kjútís ehf. og með prókúruumboð. Tilgangur félagsins er heildsala, dreifing matvæla og áfengis og önnur ótalin framleiðsla á matvælum. Félagið var stofnað 18. janúar 2021 og forráðamaður þess var þá ákærði.
Ákærði, XXX*, gaf skýrslu hjá lögreglu 4. júní 2024. Hann lýsti því að starfsemi Kjútís ehf. væri heildsala með matvæli með áherslu á áfengi. Félagið hafi upphaflega verið stofnað til að reka ísbúð en tilgangi þess hafi verið breytt árið 2023 og þá hafi ákærði komið að rekstri félagsins. Kjútís ehf. sé umboðsaðili ITC á Íslandi en stundi ekki smásölu á áfengi en í smásölu felist sala til einstaklinga. Þegar viðskiptavinir fari inn á vefsíðuna smarikid.is greiði þeir ITC fyrir pantaðar vörur sem komi frá íslenskum birgjum svo sem Coca-Cola, Mekka, Ölgerðinni, Innnes og Globus en Kjútís ehf., sem sé heildsali áfengis, kaupi áfengi af birgjunum en selji það síðan til ITC. Starfsmaður Kjútís ehf. taki við áfenginu frá birgjunum. Áfengið, sem fari aldrei frá Íslandi, sé síðan selt til viðskiptavina af ITC sem taki við greiðslum fyrir áfengið. ITC sé erlent félag og selji það sem pantað sé í gegnum vefsíðuna smarikid.is. Kjútís ehf. sé með þjónustusamning við ITC um afhendingu á áfengi sem ITC selji. Það félag hafi verið stofnað til að selja áfengi í smásölu á Íslandi en það sé til heimilis í Hollandi og ekki með nein leyfi hér á landi. Forsvarsmaður ITC sé B, vinkona ákærða, en hún sé námsmaður í Hollandi. Eigendur ITC og Kjútís ehf. séu að hluta til þeir sömu, þ. á m. ákærði. Ákærði sagði að Smáríkið væri ekki vínbúð þrátt fyrir að hafa auglýst á TikTok: ,,Vínbúð með lág verð og hraða heimsendingu.“ Forsvarsmenn Smáríkisins hafi ekki verið ánægðir með þessa auglýsingu og hætt samstarfi við auglýsingastofuna sem gerði hana. Ákærði sagði að Kjútís ehf. væri með starfsstöðvar í Miðhrauni, Hraunbæ og Fellsmúla og félagið greiði húsaleigu á þessum stöðum. Áfengið, sem sé pantað hjá ITC, sé afhent á starfsstöðvunum til viðskiptavina eða sendlum frá Wolt ef viðskiptavinirnir óska eftir því en Kjútís ehf. sé dreifingaraðili fyrir ITC og Kjútís ehf. sé með samning við Wolt um dreifingu á seldum vörum. Ákærði kvaðst bæði hafa aðgang að bankareikningum Kjútís ehf. og ITC og með prókúru fyrir báða aðilana. Bókhald fyrir ITC sé fært hér á landi.
Ákærði sagði að fjórir aðilar hefðu stofnað ITC, og þ. á m. ákærði, í þeim tilgangi að selja áfengi í smásölu hér á landi. Það hafi verið fordæmi fyrir þessu fyrirkomulagi á landinu og allt gert samkvæmt gildandi reglum. Ákærði kvaðst ekki vita til þess að ITC hafi keypt áfengi af heildsölum hér á landi.
III Kröfur og sjónarmið ákærða. Ákærði krefst þess aðallega að verða sýknaður af kröfum ákæruvaldsins en til vara, komi til sakfellingar, er krafist vægustu refsingar sem lög frekast leyfa. Þá er þess krafist að allur sakarkostnaður verði lagður á ríkissjóð, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða.
Ákærði segir að ákæra í málinu sé í mikilvægum atriðum óljós og það hafi áhrif á möguleika hans til að grípa til varna. Það sé m.a. erfiðleikum bundið að átta sig nákvæmlega á því hvaða háttsemi ákæruvaldið telji refsiverða. Þó segir ákærði að það sé ljóst að hann sé aðeins ákærður fyrir smásölu áfengis en hvorki heildsölu né birgðahald. Hann telur hins vegar að lýsing ákæruvaldsins á málsatvikum og viðskiptunum sé í grundvallaratriðum röng. Ákærði segir að hvorki Kjútís ehf. né Icelandic Trading Company (ITC) selji áfengi í smásölu á Íslandi, heldur hafi Kjútís ehf., sem hafi leyfi til heildsölu áfengis á Íslandi, selt ITC, sem hvorki hafi starfsemi né aðsetur á Íslandi, áfengið úr landi. Áfengið, sem ákært sé vegna, hafi verið geymt á starfsstöð Kjútís ehf. hér á landi á grundvelli þjónustusamnings félagsins við ITC, þar til það hafi verið afhent sendli á vegum Wolt samkvæmt beiðni kaupanda. Ekkert samningssamband hafi verið á milli Kjútís ehf. og kaupanda áfengisins, sem ákært er vegna, en það hafi verið keypt af ITC í Hollandi. Það sé ekki refsivert að kaupa þjónustu af íslenskum aðila um það að geyma áfengi á Íslandi né að afhenda áfengi, sem staðsett sé á Íslandi, en sé í eigu erlends aðila. Í ákæru sé ekki lýst smásölu til einstaklings á Íslandi sem brjóti gegn einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR). Ákærði segir að einkaleyfi ÁTVR til smásölu á áfengi hér á landi nái ekki til vefverslunar með áfengi. Hvorki í áfengislögum nr. 75/1998 né í lögum um verslun með áfengi og tóbak nr. 86/2011 sé að finna skilgreiningu á því hvað felist í einkaleyfi ÁTVR til smásölu á áfengi. Í ákvæðum þar um felist hins vegar takmörkun á atvinnufrelsi sem verði að skýra þröngt enda sé atvinnufrelsi verndað af 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar. Takmarkanir á því verði að koma fram með skýrum hætti í settum lögum og þær verði að skýra þröngt. Ákærði telur að einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis sé bundið við rekstur áfengisútsölu, þ.e. áfengisverslana, og það taki ekki til sölu áfengis í vefverslun. Þá hafi ÁTVR ekki einkaleyfi á afhendingu áfengis. Alþingi hafi ekki tekið afstöðu til þess með beinum eða óbeinum hætti að vefverslun með áfengi skuli vera ólögmæt og refsiverð. Þá sé meginreglan sú að refsiheimildir verði að vera skýrar en ákvæði áfengislaga séu ekki skýr eða ótvíræð um að vefverslun með áfengi sé andstæð lögum. Þá segir ákærði að skýra verði ákvæði áfengislaga til samræmis við skuldbindingar íslenska ríkisins samkvæmt EES-samningnum, sbr. 3. gr. laga nr. 2/1993. Sala og kaup áfengisins í þessu máli hafi að öllu leyti farið fram í vefverslun félags í Hollandi og slík viðskipti séu heimil á EES-svæðinu. Þá sé heimilt að nýta milliliði og flutningsaðila í slíkum viðskiptum.
IV Framburðir ákærða og vitna fyrir dómi. Ákærði lýsti því að Kjútís ehf. væri með heildsölu á matvöru, þ. á m. á áfengi, og þannig væri um viðskipti á milli fyrirtækja að ræða. ITC væri erlent fyrirtæki með netsölu á áfengi, gosi o.fl. í Hollandi og hefði verið stofnað í þeim tilgangi. Félagið væri með engan starfsmann hér á landi. Ákærði þori ekki að segja til um hvort ITC væri að selja vörur til einstaklinga í Hollandi. Ákærði kvaðst ekki hafa verið framkvæmdastjóri ITC 30. maí 2024 en hann hafi verið í stjórn félagsins og tekið þátt í rekstri þess, m.a. greitt einn og einn reikning fyrir það. Ákærði hafi hins vegar ekki tekið þátt í daglegum rekstri félagsins. Bókhaldi og fleiru fyrir félagið hafi verið sinnt í verktöku í Hollandi. Stjórnandi félagsins og stjórnarmaður hafi verið B en ákærði kvaðst ekki vita hvort hún hafi sinnt öllum störfum fyrir félagið. Núna kvaðst ákærði stjórna ITC og á árinu 2024 hafi hann haft aðgang að bankareikningum félagsins og haft prókúru fyrir það.
Ákærði sagði að ITC og Kjútís ehf. væru með þjónustusamning sín á milli og sala til ITC væri sala úr landi og ITC væri með engin leyfi til starfsemi hér á landi. Kjútís ehf. taki að sér ýmiss konar ábyrgð fyrir ITC, svo sem vörugeymslu, birgðahald og flutning. ITC sé ekki milliliður í umræddum viðskiptum. Hins vegar sé Kjútís ehf. milliliður en viðskiptavinir ITC versli á smariki.is og greiði ITC fyrir vöruna enda eigi það félag áfengið þegar það sé selt. Ákærði kvaðst ekki vita hvort ITC myndi greiða aðflutningsgjöld hér á landi og hann vissi ekki hver væri þóknun Kjútís ehf. fyrir þátt félagsins í ferlinu. Ákærði kvaðst ekki hafa selt hvítvínsbeljuna sem tilgreind sé í ákæru.
Vitnið, B, kvaðst ekki koma að rekstri Kjútís ehf. en vitnið hafi verið í stjórn ITC frá mars til ágúst 2024. Vitnið vissi ekki hver tilgangur ITC hefði verið og vitnið þorði ekki að segja til um hvaða starfsemi félagið hefði haft með höndum. Vitnið hefði ekki stjórnað félaginu og vissi ekki hver hefði haft aðgang að bankareikningum þess. Vitnið kvaðst hafa búið í Hollandi og verið í námi með ákærða. Hann hafi beðið vitnið um að taka sæti í stjórn félagsins en vitnið vissi ekki hver hafi ákveðið að ITC skyldi greiða fyrir áfengi. Vitnið þekkti ekki til samskipta ITC og Kjútís ehf.
Vitnið, C, kvaðst hafa skrifað skýrslu um inn- og útflutning Kjútís ehf. og ITC sem er meðal rannsóknargagna málsins. Vitnið sagði að tollsvæði Íslands væri landið sjálft og 12 mílna landhelgin. Þegar um innflutning væri að ræða væru vörur fluttar erlendis frá og inn á tollsvæðið en útflutningur væri þegar vara færi frá tollsvæðinu. Vitnið staðfesti skýrslu sína.
Vitnið, A, kvaðst geta staðfest að hafa verslað hvítvín á netinu hjá Smáríkinu og fengið það afhent innan við klukkustund frá pöntun. Vitnið kvaðst ekki muna hvort það hefði verið að kaupa áfengið vegna matarboðs eða annars tilefnis en viðskiptin hefðu líklega farið fram fyrir kvöldmat í umrætt sinn.
Vitnið, lögreglumaður nr. D, kvaðst hafa verið á vettvangi og fylgst með umferð við Smáríkið. Þangað hafi komið vörubifreið með vörur og starfsmaður Smáríkisins hafi tekið á móti þeim. Þangað hafi einnig komið tveir sendlar frá Wolt sem lögreglumenn hafi rætt við sem og einstakling sem hafi verið skráður móttakandi að sendingu frá Smáríkinu. Lögreglumenn hafi rætt við starfsmann Smáríkisins, sem ekki hafi verið ákærði, en ekki séð leyfi til starfseminnar. Vitnið staðfesti skýrslu sína.
Vitnið, lögreglumaður nr. E, kvaðst hafa verið ásamt öðrum lögreglumanni að fylgjast með viðskiptavinum Smáríkisins. Þeir hafi séð starfsmann Smáríkisins taka við vörusendingu og þá hafi þeir séð bílstjóra frá Wolt og rætt við hann. Þá hafi þeir haft samband við einn viðskiptavin Smáríkisins og tekið framburð af honum í gegnum síma. Vitnið staðfesti skýrslu sína.
V Niðurstaða. Samkvæmt 108. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála hvílir sönnunarbyrði um sekt ákærða og atvik, sem telja má honum í óhag, á ákæruvaldinu. Þá metur dómari það hverju sinni hvort nægileg sönnun, sem ekki verði vefengd með skynsamlegum rökum, sé fram komin um hvert það atriði sem varðar sekt og ákvörðun viðurlaga við broti, þar á meðal hvaða sönnunargildi skýrslur ákærða hafi, vitnisburður, mats- og skoðunargerðir, skjöl og önnur sýnileg sönnunargögn, sbr. 1. mgr. 109. gr. laganna. Þá metur dómari það enn fremur ef þörf krefur hvert sönnunargildi þær staðhæfingar hafa sem varða ekki beinlínis það atriði sem sanna skal en ályktanir má leiða af um, sbr. 2. mgr. 109. gr. laganna. Þá skal dómur reistur á sönnunargögnum sem færð eru fram við meðferð máls fyrir dómi, sbr. 1. mgr. 111. gr. laganna.
Ákærði heldur því fram að ákæra í málinu sé óljós í mikilvægum atriðum og það hafi áhrif á möguleika hans til að grípa til varna. Samkvæmt c.-lið 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála skal í ákæru greina svo glöggt sem verða má hver sú háttsemi er sem ákært er út af, hvar og hvenær brotið er talið framið, heiti þess að lögum og aðra skilgreiningu og loks heimfærslu þess til laga og stjórnvaldsfyrirmæla, ef því er að skipta. Í ákæru er lýst með greinargóðum hætti hver sú háttsemi er sem ákært er vegna og talin er refsiverð af hálfu ákærða. Er háttsemin talin hafa brotið gegn einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi og um það hverfist mál þetta.
Ákærði tekur fram í greinargerð sinni að aðeins sé ákært fyrir smásölu áfengis en hvorki heildsölu né birgðahald. Af því má ráða að ákærði geri sér grein fyrir því hverjar sakargiftir í málinu séu og verjandi ákærða skilaði 14 blaðsíðna greinargerð vegna málsins. Með hliðsjón af þessu verður ekki annað séð en ákærða hafi verið vel mögulegt að taka til varna í málinu.
Ákærði hefur sjálfur lýst því fyrirkomulagi sem Smáríkið starfar eftir en það hefur leyfi til heildsölu áfengis hér á landi. Smáríkið kaupir áfengi af heildsöluaðilum hér á landi og selur það til ITC í Hollandi. Áfengið fer hins aldrei frá Íslandi þótt kaupandi þess sé í Hollandi heldur er Kjútís ehf. með þjónustusamning við ITC sem felur það í sér að Kjútís ehf. geymir áfengið fyrir ITC sem selur það síðan í netsölu aðilum hér á landi. Kaupendur fá áfengið afhent á starfsstöðvum Kjútís ehf. hér á landi eða starfsmenn félagsins afhenda það sendlum frá Wolt samkvæmt óskum kaupenda sem afhenda það síðan kaupendum. Ekki virðist ágreiningur um það að umrædd viðskipti gangi fyrir sig með þessum hætti en það er þetta fyrirkomulag viðskipta sem ákært er vegna og málið snýst um. Af hálfu ákæruvaldsins er því haldið fram að í þessu felist smásala sem fari gegn einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis. Ákærði heldur því hins vegar fram að sala áfengis með þessum hætti sé í samræmi við íslensk lög og brjóti þannig ekki gegn einkaleyfi ÁTVR til smásölu á áfengi hér á landi. Ákærði neitar því sök.
Í ákæru segir að ákærði hafi sem stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og daglegur stjórnandi í Kjútís ehf. og daglegur stjórnandi í ITC 30. maí 2024 selt einn hvítvínsbelg í smásölu til einstaklings. Ákærði kveðst ekki hafa verið forráðamaður ITC á þessum tíma heldur hafi það verið B sem hafi tekið við og verið skráð sem forráðamaður 1. mars 2024
Fyrir dómi kvaðst ákærði ekki hafa verið framkvæmdastjóri ITC þegar atvikið varð sem ákært er vegna en hann hafi verið í stjórn félagsins og tekið þátt í rekstri þess en þó ekki daglegum rekstri. Stjórnandi félagsins hafi verið B en ákærði vissi ekki hvort hún hefði sinnt öllum störfum fyrir félagið. Ákærði kvaðst hins vegar hafa haft aðgang að bankareikningum félagsins og haft prókúru fyrir þá. B lýsti því fyrir dómi að hún hefði búið í Hollandi og verið í stjórn ITC frá mars til ágúst 2024. Hún vissi ekki hver hefði verið tilgangur félagsins og treysti sér ekki til þess að segja til um hvaða starfsemi félagið hefði haft með höndum. Hún kvaðst ekki hafa stjórnað félaginu og hún vissi ekki hver hefði haft aðgang að bankareikningum þess. Ákærði hafi beðið B um að taka sæti í stjórn félagsins en þau hafi verið saman í námi í Hollandi. Samkvæmt þessu verður ekki annað séð en að skráning B sem forsvarsmanns ITC í mars 2024 hafi verið til málamynda vegna búsetu hennar í Hollandi. Það stóð ákærða næst að upplýsa og leggja fram gögn um það hver hafi verið daglegur stjórnandi ITC í maí 2024 hafi það verið einhver annar en hann sjálfur en það hefur hann ekki gert. Hann hefur hins vegar sjálfur upplýst að hann hafi verið með prókúru fyrir félagið og haft aðgang að bankareikningum þess á ofangreindu tímabili. Því má fullyrða að ákærði hafi verið daglegur stjórnandi í ITC í maí 2024 eins og fram kemur í ákæru. Ákærði hefur ekki mótmælt því að hafa verið forsvarsmaður Kjútís ehf. í maí 2024 enda benda gögn málsins eindregið til þess. Þá skal tekið fram að af ákærunni má ráða að ákærða er gefið að sök að hafa selt umræddan hvítvínsbelg sem forsvarsmaður Kjútís ehf. og ITC en ekki að ákærði hafi selt belginn persónulega. Enda er ekkert fram komið um það að ákærði hafi persónulega átt hvítvínsbelginn og þegar af þeirri ástæðu var ákærði ekki í færi til þess að selja belginn.
Ákærði fullyrðir að hvorki Kjútís ehf. né ITC selji áfengi í smásölu á Íslandi, heldur hafi salan sem ákært er vegna farið fram í vefverslun í Hollandi. Hvorki Kjútís ehf. né ITC flutti vörur frá Íslandi á tímabilinu 1. september 2023 til 31. maí 2024, þ.e. út fyrir tollsvæði íslenska ríkisins. Ekkert liggur heldur fyrir um það að félögin hafi flutt vörur hingað til lands á tímabilinu. Samkvæmt upplýsingum úr fyrirtækjaskrá Verslunarráðs Hollands var fyrsti skráði viðskiptadagur ITC 15. september 2023 og starfsemin sögð vera smásala á matvöru og lyfjabúðarvöru á vefnum. Í gögnum verslunarráðsins kemur einnig fram að starfsemin er netverslun með matvæli og lyfjavörur og sala áfengra drykkja á Íslandi og í öðrum löndum í gegnum netið. Með tilkynningu til fyrirtækjaskrár Skattsins 5. október 2023 var tilgangi Kjútís ehf. breytt í heildsölu, dreifingu matvæla og áfengis. Lénið samrikid.is var skráð hjá ISNIC 19. júlí 2023 og ákærði var skráður rétthafi þess. Þjónustusamningur milli ITC og Kjútís ehf. er frá 1. nóvember 2023 og skrifar ákærði undir hann fyrir hönd beggja aðila. Þegar þetta og rannsóknargögn málsins eru virt í heild sinni verður ekki annað ráðið en að því fyrirkomulagi sem félögin ITC og Kjútís ehf. ákváðu að hafa á sölu áfengis til einstaklinga eða annarra hér á landi hafi verið komið á í þeim tilgangi að reyna að komast fram hjá einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga áfengislaga nr. 75/1998. Hvað þetta varðar skal tekið fram að hjá lögreglu sagði ákærði að ITC hafi verið stofnað til þess að selja áfengi í smásölu á Íslandi en nú heldur ákærði því fram að ITC stundi ekki smásölu á áfengi hér á landi.
Hugtakið smásala á sér langa sögu í íslensku máli og ekki hefur þótt ástæða til þess að útskýra inntak þess sérstaklega í settum lögum. Í greinargerð með frumvarpi til áfengislaga nr. 75/1998 segir um 1. mgr. 10. gr. laganna að með henni sé lagt til að viðhalda einkarétti ÁTVR til smásölu á áfengi án þess að ástæða þætti til að útskýra sérstaklega hugtakið smásala. Verður að telja óumdeilt að sala á neytendavörum til einstaklinga sé smásala. Þá er einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis ekki bundið við sölu í áfengisverslunum eins og ákærði heldur fram enda er það ekki takmarkað með neinum hætti í áfengislögunum. Í netsölu getur falist smásala og þó að netsala hafi ekki tíðkast við setningu áfengislaganna á sínum tíma þá verður talið að einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis taki einnig til netsölu áfengis hér á landi þegar áfengið er selt og ætlað til einkaneyslu. Það fyrirkomulag sem NTC og Kjútís ehf. hafa ákveðið að hafa á sölu áfengis til aðila hér á landi bendir einnig til þess, eins og fram er komið, að félögin hafi ekki talið heimilt samkvæmt gildandi lögum að selja áfengi í netsölu hér á landi, heldur er fullyrt að áfengið sem NTC selur sé selt í netsölu í Hollandi eins og fram er komið.
Atvinnufrelsi er verndað af 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og verður það ekki takmarkað nema með lögum. Samkvæmt 1. gr. áfengislaganna er tilgangur þeirra að miða að hófsemd í meðferð áfengis. Með bannlögunum svokölluðu, sem tóku gildi 1. janúar 1915, var innflutningur og sala áfengis bönnuð með öllu. Allt frá þeim tíma hefur sala áfengis verið takmörkuð með einhverjum hætti og með lögum nr. 64/1928 var ríkisstjórn landsins m.a. veittur einkaréttur til innflutnings og sölu á áfengi. Þá hafa aldurstakmörk verið sett varðandi neyslu og kaup á áfengi og þá var ekki heimilt að selja áfengan bjór hér á landi fyrr en 1. mars 1989. Allar þessar takmarkanir, sem og aðrar, hafa verið settar með lýðheilsusjónarmið að leiðarljósi enda hefur skaðsemi áfengis löngu verið viðurkennd. Þessar takmarkanir eru einnig almennar þannig að allir þurfa að sæta þeim. Með vísan til þess verður ekki talið að þær brjóti gegn ákvæði stjórnarskrárinnar um atvinnufrelsi. Þá skal einnig tekið fram að 1. mgr. 10. gr. áfengislaganna er skýr um það að ÁTVR hefur einkaleyfi til smásölu áfengis og fullnægir því reglum refsiréttarins um skýrleika refsiheimilda. Það er enginn vafi um það við hvað er átt.
Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 er hlutverk lögreglu m.a. að gæta almannaöryggis, halda uppi lögum og reglu, stemma stigu við afbrotum, vinna að uppljóstran brota, stöðva ólögmæta háttsemi og fylgja málum eftir í samræmi við það sem mælt er fyrir um í lögum um meðferð sakamála eða öðrum lögum. Í 2. mgr. 18. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er hlutverk ákærenda að tryggja, í samvinnu við lögreglu, að þeir sem afbrot fremja verði beittir lögmæltum viðurlögum. Þannig var lögreglu skylt að taka til rannsóknar ætlað brot ákærða á áfengislögum og síðan ákæruvaldsins að gefa út ákæru á hendur ákærða væru taldar yfirgnæfandi líkur á því að hann hefði gerst sekur um refsiverða háttsemi í starfsemi ITC og Kjútís ehf. Því getur ekki breytt þó aðrir hafi hugsanlega gerst sekir um sömu eða svipaða háttsemi eins og ákærði vill halda fram en ekki hafi verið ákært vegna þess.
Það er viðurkennt að einstaklingum hér á landi sé heimilt að kaupa áfengi í erlendum vefverslunum og þá flytur viðkomandi einstaklingur áfengið hingað til lands til einkanota með óháðum/sjálfstæðum flutningsaðila en ekki í atvinnuskyni. Þetta má m.a. ráða af EES-samningnum og dómum sem hafa fallið um inntak hans. Þar er ekki um atvinnustarfsemi að ræða eins og í tilfelli ITC og Kjútís ehf. Í ýmsum löndum er smásala á áfengi takmörkuð með einhverjum hætti og slíkar takmarkanir eru taldar heimilar, sbr. það sem áður hefur komið fram um lýðheilsusjónarmið varðandi áfengissölu. Ekki verður séð að dómar Evrópudómstólsins hafi verið á þann veg að starfsemi eins og sú sem ITC og Kjútís ehf. stunda sé heimil, sbr. dóm í máli nr. C-1981/14, Visnapuu. Hvað þetta varðar skal og bent á það að ekki var fallist á það að leitað yrði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins í tilefni af þessu máli. Í úrskurði Landsréttar hvað það varðar kemur m.a. fram að í dómaframkvæmd EFTA-dómstólsins hafi verið lagt til grundvallar að léttvín af þeim toga sem sakargiftir á hendur varnaraðila lúta að falli utan gildissviðs EES-samningsins.
Það getur engu breytt um mál þetta að einstakir ráðherrar eða alþingismenn hafi í gegnum tíðina talið að starfsemi eins og ITC og Kjútís ehf. reka sé heimil samkvæmt íslenskum lögum. Eins og ítrekað hefur komið fram hefur ÁTVR einkaleyfi til smásölu áfengis hér á landi samkvæmt áfengislögum. Sé það vilji löggjafans að breyta því verður það aðeins gert með breytingu á áfengislögunum og/eða öðrum lögum eftir atvikum. Það er ekki hlutverk dómstóla að breyta settum lögum. Um refsiábyrgð ákærða fer samkvæmt íslenskum lögum.
ITC er ekki með starfsemi á Íslandi en selur þrátt fyrir það áfengi til aðila hér á landi með milligöngu Kjútís ehf. en ákærði er í forsvari fyrir bæði félögin. Um er að ræða að stærstum hluta áfengi sem hefur verið framleitt hér á landi og aldrei farið frá landinu, þ.e. út úr lögsögu íslenska ríkisins. Þessi starfsemi er smásala áfengis. Verður ekki annað ráðið en fyrirkomulaginu á áfengissölu félaganna hafi beinlínis verið komið á í þeim tilgangi að reyna að komast fram hjá einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis hér á landi eins og áður hefur komið fram.
Með vísan til alls ofanritaðs og rannsóknargagna málsins telst hafið yfir skynsamlegan vafa og þar með sannað að ákærði hafi sem forsvarsmaður Kjútís ehf. og ITC gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar með brotið gegn einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis hér á landi. Þykir háttsemi ákærða rétt færð til refsiákvæða í ákærunni. Hefur ákærði unnið sér til refsingar í samræmi við það.
Ákærði hefur ekki áður sætt refsingu svo kunnugt sé. Með vísan til atvika málsins telst refsing hans hæfilega ákveðin sekt að fjárhæð 100.000 krónur sem greiðist í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa að telja, ella sæti ákærði fangelsi í átta daga.
Ákærði greiði allan sakarkostnað, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Ólafs Eiríkssonar lögmanns, sem þykja hæfilega ákveðin með hliðsjón af umfangi málsins 4.947.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Það skal tekið fram að sá tímafjöldi sem verjandi hefur skráð vegna málsins þykir mjög úr hófi miðað við umfang þess.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari. Ingi Tryggvason héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð: Ákærði, X X X* , greiði 100.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa að telja en sæti ella fangelsi í átta daga. Ákærði greiði allan sakarkostnað, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Ólafs Eiríkssonar lögmanns, 4.947.000 krónur.
Dr. Ragný Þóra Guðjonsen tók saman og birti á FB síðu fyrir nokkru þessa athyglisverðu punkta:
„STJÓRNVALDSAÐGERÐIR VIRKA – EKKI HEIMILA NETSÖLU ÁFENGIS
Vegna umræðu um netsölu áfengis tók ég saman niðurstöður nokkurra rannsókna um þetta efni. Það er sem sagt nokkuð skýrt og vel kortlagt að aukið aðgengi að áfengi, þar með vegna netsölu er áhættuþáttur sér í lagi fyrir ungt fólk og þá sem stunda áhættusamar drykkjuvenjur:
Meira aðgengi að áfengi eykur líkur á meiri áfengisneyslu. Morrison, C. N., Byrnes, H. F., Miller, B. A., Wiehe, S. E., Ponicki, W. R., & Wiebe, D. J. (2019). Exposure to alcohol outlets, alcohol access, and alcohol consumption among adolescents. Drug and Alcohol Dependence, 205. 107622. https://doi.org/10.1016/j.drugalcdep.2019.107622
Markaðssetning áfengis gagnvart ungu fólki eykur líkur á áfengisnotkun þeirra. Jernigan, D., Noel, J., Landon, J., Thornton, N., & Lobstein, T. (2017). Alcohol marketing and youth alcohol consumption: a systematic review of longitudinal studies published since 2008. Addiction, 112: 7–20. https://doi.org/10.1111/add.13591
Regluverk í kringum netsölu áfengis stenst ekki samanburð við aðgengiskröfur sem eru gerðar í sérstökum áfengisverslunum og eru ófullnægjandi til að vernda aðgengi ungs fólks. Colbert, S., Wilkinson, C., Thornton, L., Feng, X., & Richmond, R. (2021). Online alcohol sales and home delivery: An international policy review and systematic literature review. Health Policy, 125(9), 1222–1237. https://doi.org/10.1016/j.healthpol.2021.07.005
Hópurinn sem kaupir áfengi á netinu er líklegri til að vera yngri eða að stunda áhættusamar drykkjuvenjur (drekka 6 drykki eða meira í hvert skipti). Líkur á skaða vegna áfengisdrykkju aukast þar sem netkaupin gera kleift að halda áfram drykkju sem ella hefði stöðvast þegar áfengið var búið. Auðvelt er fyrir ungmenni að komast framhjá aðgengiskröfum við kaupin og algengt er að reglum um aðgengi sé ekki fylgt eftir: Monjica-Perez Y., Callinan S., Livingston M. Alcohol home delivery services: an investigation of use and risk. 2019. http://fare.org.au/…/Alcohol-home-delivery-services.pdf
Fjöldi sölustaða áfengis þar með á netinu, tengist auknum líkum á því að áfengis sé neytt og hversu oft það er gert. Þessi niðurstaða kom fram óháð ýmsum einstaklingsþáttum og félags-efnahagslegri stöðu. Möguleikar ungs fólks á að útvega sér áfengi aukast við netsölu, meðal annars með því að fá fólk í umhverfinu, vini eða fjölskyldu, til að kaupa áfengið. Chen, MJ., Gruenewald, P. J., & Remer, L. G. (2009). Does Alcohol Outlet Density Affect Youth Access to Alcohol? Journal of Adolescent Health, 44(6), 582-589. https://doi.org/10.1016/j.jadohealth.2008.10.136
Hröð þróun netsölu á áfengi er áhyggjuefni og skortur er á regluverki. Staða sem ógnar lýðheilsu þjóða. Huckle, T., Parker, K., Romeo, J. S., & Casswell, S. (2020). Online alcohol delivery is associated with heavier drinking during the first New Zealand COVID-19 pandemic restrictions. Drug and Alcohol Review, 40(5), 826–834. https://doi.org/10.1111/dar.13222 „
Tilefni yfirlýsingarinnar er að koma á framfæri upplýsingum inn í umræðuna sem nú geisar í samfélaginu og fjölmiðlum um þá opinberu áfengisstefnu sem hefur verið í gildi. Stefnu sem forvarnarsamtök og fleiri telja að yfirvöld hafi leyft markaðsöflum að mylja undan á síðustu árum í mótsögn við áfengislög og samþykkta lýðheilsustefnu Íslands til 2030.
Í rúm 5 ár, eða allt frá kæru ÁTVR til lögreglu þann 16. júní 2020 vegna netsölu innlendra aðila á áfengi, hafa nokkur frjáls félagasamtök átt þétt samstarf um að opna augu stjórnvalda og almennings fyrir mikilvægi þess að klára þá kæru. Félögin telja að fyrirkomulag netsölunnar sé yfirstandandi lýðheilsuógn og ógni vernd barna og ungmenna í landinu.
Félögin eru:
Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, forvarnir .is
Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, foreldrasamtok.is
IOGT á Íslandi, iogt.is og
SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum
Niðurstaða bráðlega eftir 5 ára bið
Kæran hefði getað klárast 2020/2021 ef henni hefði verið sinnt, en er ekki enn komin á leiðarenda nú hálfum áratug síðar.
Loks hillir þó undir niðurstöðu því lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kláraði að rannsaka kærumálið í haust sem leiddi til þess að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákærði netsöluaðila til héraðsdóms Reykjaness í september 2025. Aðalmeðferð málsins á að fara fram þann 12. janúar nk. samkvæmt upplýsingum sem leitað var eftir símleiðis hjá dómstólnum.
Hafa framangreind forvarnarfélög leitað til fjölda opinberra aðila og stofnana og m.a. sent erindi til stjórnsýslu- og eftirlitsnefndar Alþingis vegna vinnubragða og seinagangs yfirvalda og ráðherraábyrgðar. Erindið hefur verið tekið fyrir í nefndinni en er enn á hennar borði og hefur ekki hlotið þar niðurstöðu, Hægt er að sjá hluta af þessari vinnu samtakanna á heimasíðum þeirra s.s. forvarnir.is, foreldrasamtok.is og iogt.is.
Breiðfylking heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka standa saman
Samtökin hafa haft forystu um að sem flestir hvetji stjórnvöld til að hafa lýðheilsu, vernd barna og ungmenna og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi í þessu máli. Sú forysta leiddi m.a. til þess að breiðfylking heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka hefur tvívegis gefið út opinberar áskoranir og ráð til yfirvalda. Þær sýna sterka samstöðu sem og þær áhyggjur sem ríkja um málið hjá þessum aðilum. Sjá hér:
Þá skal bent á að þau markaðsöfl sem nú eru að markaðssetja áfengi gagnvart ungmennum og almenningi í fjölmiðlum, á samfélagsmiðlum, í tengslum við íþróttaviðburði og víðar í samfélaginu, eru ágeng og herská, enda eftir miklum gróða að slægjast. Söluveltan er nú þegar upp á einhverja milljarða miðað við opinber viðtöl við þau öfl Veltir milljörðum á netsölu áfengis – RÚV.is. Almenningur situr svo uppi með reikninginn vegna afleiðinganna eins og allir þekkja. skattfé rennur úr ríkisstjóði til að greiða fyrir þær.
Ráðherrar ofl. segja enga óvissu í lögum, þau séu skýr
Bæði heilbrigðisráðherra í sumar og fjármála- og efnahagsráðherra í gær, hafa sagt að um lögleysu sé að ræða og að það sé ekki óvissa í lögum.
Heilbrigðisráðherra 16. júní 2025. “Ég vil taka fram að ég tel brýnt að tekið sé á þeirri lögleysu sem netsala áfengis er.”Tekur ný ríkisstjórn af skarið? – Vísir
Fjármála- og efnahagsráðherra 5. janúar 2026. „Álit okkar, dómsmálaráðuneytisins og ytri aðila, er svo að það sé í sjálfu sér engin óvissa og þetta snúist bara um að framfylgja lögunum. Menn geta tekist á um það hvort lögin eigi að vera svona eða einhvern veginn öðruvísi en ég tek ekki undir það að það sé óvissa í lögunum,“„Stefna Viðreisnar eitt en gildandi réttur annað“
Dómur handan við hornið
Þegar staðan er sú að markaðsöfl klifa á að áfengislög séu óskýr en sitjandi ráðherrar, forvarnarsamtök, lögreglan, ÁTVR og fleiri segja þau skýr, er réttast að bíða niðurstöðu dómstóla sem er loks handan við hornið. Forvarnarsamtök ofl. hafa beðið í 5,5 ár en vita að nú er biðin senn á enda því málið er komið á dómsstólastig.
Tapist málið þarf að taka stokkinn á ný
Út frá lýðheilsusjónarmiðum, verndun barna og ungmenna og sjónarmiðum um samfélaglega ábyrgð er vonast til þess að málið vinnist í dómi. Vilji hinsvegar svo ólíklega til að málið tapist í dómi þarf löggjafinn í framhaldinu að taka stokkinn á ný og gera upp við sig hvort setja eigi nýja áfengislöggjöf sem hafi áfram lýðheilsu, vernd barna og ungmenna og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi, eða láta nýja löggjöf ganga í gagnstæða átt. Forvarnarsamtök treysta á að góð samfélagsleg gildi verði áfram leiðarljósið í framtíðinni.
Um miðjan janúar hefst málflutningur í máli saksóknara gegn hérlendri „erlendri netsölu“ vegna ólöglegrar smásölu áfengis. Dómur ætti að liggja fyrir fljótlega og mun að öllum líkindum staðfesta það sem hefur verið vitað árum saman: að hér er um ólöglega starfsemi að ræða, sem ekki hefur verið brugðist við. Nú þegar hefur Héraðsdómur vísað frá röksemdum er varða ESS saminginn. Kjarni málsins því íslenska áfengislöggjöfin eins og alltaf hefur legið fyrir.
Þetta skýrir þann mikla óróa á opinberum vettvangi þessi dægrin, þar sem sérhagsmunaaðilar halda því fram, statt og stöðugt, gegn betri vitund, að málið sé lagalega óljóst. Sú fullyrðing stenst ekki. Íslensk áfengislöggjöf er afar skýr, einkum fimmti kaflinn, og auðskilin hverri læsri manneskju (1). Lögin eru afdráttarlaus en í ljósi reynslunnar (og fjármagns) munu sérhagsmunaaðilar freista þess að þvæla málinu um dómskerfið (og víðar) eins lengi þeim verður frekast unnt.
Í algjörlega sambærilegu máli hefur Hæstiréttur Svíþjóðar kveðið upp skýran dóm, hinn svokallaða Winefinderdóm (2). Þar kemur fram að innflutningur felist í því að flytja raunverulega inn áfengi frá öðru landi í eigin nafni og til eigin nota, sem er nákvæmlega sambærilegt og leyft er hérlendis. Það er heimilt að flytja inn áfengi til eigin neyslu, í eigin nafni og gera skil á tilheyrandi sköttum og gjöldum. Um leið og sala til þriðja aðila fer fram (t.d. af lager/verslun eða hvað nafni sem söluaðilar kunn að kalla rýmið/aðstöðuna eða starfsemina) þá er um smásölu að ræða. Þetta er einfalt, engin geimvísindi og ekkert sem er óskýrt.
Það sem er áhyggjuefni er hinn langi dráttur sem varð á því að yfirvöld tækju á þessari ólöglegu starfsemi. Fyrsta málinu var af Héraðsdómi vísað frá án efnislegrar niðurstöðu, þar sem ÁTVR var ekki talin aðili máls. Þegar að ÁTVR áfrýjar þeirri niðurstöðu til Landréttar þá greip þáverandi fjármálaráðherra (sem ÁTVR fellur undir) inn í málið með yfirlýsingu um að það væri óþarfi, gerði ÁTVR þar með umboðslaust og stöðvaði það ferli, augljóslega vitandi um hver niðurstaðan málsins yrði, málið féll niður. Í kjölfarið liðu rúmlega fimm ár án aðgerða, þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar frá forvarnasamtökum og þeirra fjölmörgu aðila sem vinna að vernd barna og ungmenna, lýðheilsu- og forvarnarmálum. Það var ekki fyrr en í haust eftir rúmlega fimm ára rannsókn lögreglunnar að saksóknaraembættið gaf loksins út kæru í þessu augljósa máli.
Í dag er mikill þrýstingur frá fámennum hópi sérhagsmunaaðila, „erlendra netsala“ um að afnema lýðheilsu- og forvarnarstefnu sem hefur verið við lýði hérlendis og almenn sátt hefur ríkt um árum saman. Breytingar í þágu þeirra sem hagnast verulega á þessari starfsemi, leggja takmarkað af mörkum til samfélagsins og ekki í neinu samræmi við þann kostað sem samfélagið ber af afleiðingunum. Sterk teikn eru um aukna neyslu, ekki síst meðal barna og ungmenna. Fyrir liggja bæði beinar og óbeinar sannanir fyrir því að ungmenni geta, í mörgum tilfellum, með einföldum hætti keypt áfengi í gegnum þetta kerfi, þvert á lög. Aukið framboð, gríðarlegur fjöldi sölustaða sem senda heim allan sólarhringinn, alla daga ársins, áfengisauglýsingar, verðstríð m.m. mun augljóslega hafa afleiðingar, ekki síst gagnvart okkar viðkvæmustu hópum eins og börnum og ungmennum.
Alþingi, stjórnvöld, foreldrar og við sem samfélag þurfum að standa fast gegn ítrustu sérhagsmunum áfengisiðnaðarins og standa vörð um velferð barna og ungmenna. Það er brýnt að halda áfram baráttunni, bæði á pólitíska vettvanginum sem og í öllu lýðheilsu- og forvarnarstarfi. Við getum ekki byggt samfélag á því að ítrustu sérhagsmunaaðilar fari sínu fram í krafti gríðarlegra fjármuna og af algeru virðingarleysi gagnvart almennu siðferði, lögum og reglum samfélagsins. Æskan er okkar fjársjóður.
Árni Guðmundsson
Félagsuppeldisfræðingur / formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum
Frá miðri 20. öld hafa forvarnir á Íslandi tekið miklum breytingum. Fyrri nálganir einkenndust af einfaldri fræðslu og varnaðarorðum, þar sem áherslan var á hættuna við áfengis- og vímuefnaneyslu. Starfandi voru áfengisvarnarráð í bæjarfélögum frá árinu 1935-1989 sem auk leyfisveitinga sáu um fræðslustarf. Ungtemplarar IOGT, Ungmennafélagshreyfingin UMFÍ og íþróttahreyfingin gegndu og gegna enn mikilvægu hlutverki.
Um 1960 er ástand ekki gott varðandi áfengisneyslu ungmenna. Unglingasamkomur um Hvítasunnu, sem oft var fyrsta útileguhelgi ársins, fara úr böndunum sökum áfengisneyslu. Um 1970 er ástandið ekki heldur gott. Skólaskemmtanir fóru úr skorðum vegna drykkjuláta barna í 8 og 9. bekkjum í grunnskóla, sem voru efstu árgangar á þeim tíma. „Forvarnir“ fólust í því að banna lifandi tónlist á slíkum samkomum eins og það væri rót vandans. Æskulýðs- og félags- og skólamályfirvöld hefja óformlegt samstarf upp úr 1975 sem jókst hægt og sígandi með árunum og formgerist síðar.
Um 1990 var áfengisneysla ungmenna á Íslandi orðin svo mikil að hún var fréttaefni víða um heim. Stjórnvöld þess tíma sjá að ekki verður við þetta búið, skýrslan Heilbrigð þjóð – Forvarnir og heilsustefna til aldamóta árið 2000 – Greining einstakra viðfangsefna og setning markmiða sem kom út árið 1992 var merkilegt plagg. Skýrslan var gerð að frumkvæði þáverandi heilbrigðisráðherra. Hún fjallar m.a. um að stjórnkerfið í heild þurfi að bregðast við þessum vanda með samræmdum aðgerðum, hvert á sinn hátt, sem varð raunin. Vettvangurinn og stjórnsýslan vinna saman og síðar verða skil þegar að fræðasamfélagið kemur til liðs í forvarnarmálunum og þá má segja og forsendur fyrir því sem nefnist í daglegu tali íslenska forvarnarmódelið hafi orðið til. Með tilkomu merkra æskulýðsrannsókna Þórólfs Þórlindsonar o.fl ,í upphafi tíunda áratugs síðustu aldar og síðar með tilkomu R&G (Rannsókn og greining) og enn síðar Planet Youth, auk alþjóðlegra kannana eins og ESPAD (European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs) og HBSC (Health Behaviour in School-aged Children), varð til gagnreynd nálgun eða aðferð hérlendis sem lagði áherslu á félagslegt samhengi, félagsmótun og tilveru ungmenna í víðu samhengi. Verndandi og fyrirbyggjandi þættir í lífi ungmenna voru lykilatriði Á grunni þessarar þekkingar hvílir það sem síðar er kallað íslenska módelið í forvörnum.
Íslenska módelið
Síðustu áratugi hefur íslenska forvarnarmódelið verið öflugt verkfæri í baráttunni gegn áfengis- og vímuefnaneyslu ungmenna. Módelið er kjölfesta þess að við náðum utan upp það ófremdarástand sem ríkti og tókst að kveða niður hægt og bítandi næstu áratugina á eftir. Módelið byggir á víðtækri samfélagslegri sátt, samstarfi allra helstu stofnana og virkri þátttöku foreldra, skóla, félagsmiðstöðva, félagasamtaka, íþróttahreyfingarinnar og ungmenna sjálfra.
Módelið byggir á gagnreyndri þekkingu. Um það hefur verið ritað og rætt um víða veröld. Margar vísindagreinar R&G (Rannsókn og greining), Planet Youth o.fl. benda á að með því að auka og efla verndandi þætti í umhverfi barna og ungmenna þá náist árangur í forvörnum. Grunnforsendur módelsins byggja á einföldum en öflugum þáttum eins og:
Nánum tengslum unglinga við foreldra og skýrum mörkum.
Virkri þátttöku ungmenna í skipulögðu félags-, frístunda- og íþróttastarfi
Skýrum útivistarreglum og virku foreldraeftirliti.
Góðum tengslum barna og ungmenna við skóla og jákvæðri menningu í nærumhverfinu.
Heftu aðgengi ungmenna að áfengi og vímuefnum, vörn gagnvart áfengisáróðri, sbr. bann við áfengisauglýsingum.
Samfélagslegri sátt þar sem ríki, sveitarfélög, félagsmiðstöðvar, félagasamtök, skólar og fjölmiðlar vinna að sama markmiði.
Þetta samspil, þessi samfélagssáttmáli, skilaði verulegum árangri í forvörnum, eins og áður sagði. Svo góðum að hann vakti athygli um víða veröld sem íslenska módelið og er öðrum samfélögum fyrirmynd og til eftirbreytni. Áfengis- og vímuefnaneysla ungmenna dróst hratt saman hérlendis á fyrstu árum aldarinnar og Ísland varð fyrirmynd annarra þjóða í forvarnarmálum.
Nú má heyra brak og bresti víða
Nú blasir annað við. Margar stoðir módelsins eru við það að bresta, eins og vikið verður að hér síðar. Við höfum einfaldlega sofið að verðinum. Góður árangur í forvörnum er ekki sjálfgefinn. Okkur hefur að einhverju leyti mistekist, samfellan, þ.e. að gildi einnar kynslóðar færist til þeirrar næstu, virðist ekki vera raunin. Foreldrar ungmenna dagsins í dag bjuggu við gott ástand á sínum unglingsárum og ganga mörg hver að því sem gefnu að svo sé og svo verði ávallt. Mín kynslóð, afarnir og ömmurnar, muna tímanna tvenna og vita að ekkert er sjálfgefið.
Enda svo komið að sterkar vísbendingar eru um aukna áfengisneyslu barna og ungmenna. Ef marka má niðurstöður úr könnun sem undirritaður gerði í september sl. meðal forsvarsfólks félagsmiðstöðva þá er fyllsta ástæða til þess að staldra við. Af 122 félagmiðstöðvum innan Samfés bárust svör frá 69 aðilum.
Skert þjónusta við ungmenni hefur afleiðingar. Þegar starfsemi í félagsmiðstöðvum er ekki fyrir hendi þá safnast unglingarnir saman annars staðar. Þau hverfa ekki eins og einhverjir reiknimeistarar borgar og bæjarfélaga virðast halda. Aðstöðuleysi gerir það að verkum að til verður afar ótryggt umhverfi barna og ungmenna þar sem margt óæskilegt kemur upp. Þegar spurt var hvort vart hafi verið við hópamyndun ungmenna í hverfinu (bænum ef það átti frekar við) s.l. 6-18 mánuði? Þá kemur fram og svo er í miklum mæli
Þegar spurt var um mat á áfengisneyslu unglinga sl. tvö ár kemur fram að 71% telja að hún hafi aukist og þar af 18,8% sem telja að hún hafi aukist verulega.
Spurningin „Eru margir unglingar í þínu umhverfi sem þú myndir telja að væru í mikilli áhættuhegðun (áfengi/vímuefni)?“ Undirstrikar mat á því hve þau sem vinna í nánasta umhverfi barna og ungmenna meta stöðuna alvarlega.
Aðgengi barna og unglinga að áfengi er afar auðvelt. Spurt var hvort viðkomandi hafi heyrt um eða orðið vör við á hvern hátt unglingar afli sér áfengis. Hægt var að nefna fleiri möguleika. „Hjá aðilum sem mæta í umhverfi unglinganna“ nefndu 49%. „Í gegnum netsölufyrirtæki“ nefndu 36%. „Hjá eldri systkinum / ættingjum“ nefndu 65%. „Í gegnum samfélagsmiðla“ nefndu 56%.
Margir af grundvallarþáttum módelsins eru veikburða eða brostnir
Samdráttur í fjárveitingum til æskulýðs- og forvarnarstarfs hefur dregið úr getu grasrótarinnar til að sinna hlutverki sínu.
Félagsmiðstöðvar og frístundastarf – hafa minnkað þjónustu við börn og ungmenni, sífellt takmarkaðri opnunartími og skert starfsemi.
Áfengissala íþróttafélaga vinnur beinlínis á móti öllum grundvallarmarkmiðum módelsins og sýnir algert ábyrgðarleysi
Foreldrafélög og samstaða foreldra er ekki af sama styrk og áður.
Fjölmiðlar og áhrifavaldar eru margir hverjir í beinni eða óbeinni þjónustu áfengisiðnaðarins.
Minnkandi áhersla stjórnvalda á forvarnir sem m.a. birtist í lækkuðum fjárframlögum.
Þar með hafa margar helstu stoðir módelsins veikst eða brostið. „Einhver“ á að sjá um þetta og þar sem þetta hefur gegnið vel þá er allt í lagi að slaka á og jafnvel „stimpla sig út“ eins og íþróttahreyfingin (að hluta til) er að gera og „aðrir“ sjá um þetta.
Forvarnir eru ferskvara
Það er ekki gott. Það eru sífellt nýjar áskoranir, ungmenni í breyttu samfélagi, því stafræna, tengjast í auknum mæli í gegnum skjái fremur en á vettvangi. Samvera fjölskyldna hefur breyst, sjálfsmynd ungmenna mótast í auknum mæli af áhrifum netmenningar sem er utan seilingar foreldra og forráðafólks. Forvarnir verða að taka mið af þessum nýja veruleika, þessum samfélagsbreytingum sem ná út fyrir heimili og skóla, inn á vettvang stafrænnar menningar þar sem markaðsöfl, áfengis- og tóbaksiðnaðurinn o.fl. keppa um athygli barna og ungmenna og freista þess í krafti gríðarlegra fjármuna að hafa áhrif á sjálfsmynd þeirra og afstöðu. Börn og ungmenni setja sér ekki mörk sem þau vita ekki hver eru. Ef við setjum þau ekki þá gera það bara einhverjir aðrir. Í þeim efnum er áfengisiðnaðurinn, þessi boðflenna í lífi barna og ungmenna, ávallt reiðubúinn.
Það er því ekki í boði að vera „stikkfrí“ þvert á móti það þarf stöðugt að mæta nýjum áskorunum. Íslenska módelið var á sínum tíma byltingarkennt. Það virkar og til þess að svo verði áfram þá þurfum við öll að leggjast á árarnar. Grunnþættir módelsins eru góð verkfæri og gott stýrikerfi til þess að mæta sífellt breytilegu samfélagi og takast á við margbreytilegar áskoranir þess. Forvarnir eru ferskvara, þeim þarf að sinna alltaf en ekki bara þegar á móti blæs.
Árni Einarsson. (2025, október). Viðtal við Árna Einarsson um þróun forvarna á Íslandi. Tekið af : Árni Guðmundsson. Óútgefið efni.
Árni Guðmundsson. (2025, september). Könnun meðal forsvarsfólks félagsmiðstöðva á Íslandi.* Óbirt gögn.
Árni Guðmundsson. (2007) Saga félagsmiðstöðva í Reykjavík 1942-1992. Bók
European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs (ESPAD). (2019). ESPAD Report 2019: Results from the European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs. Luxembourg: Publications Office of the European Union. https://www.espad.org/report/home/
Frontiers in Public Health. (2023). *Preliminary impact of the adoption of the Icelandic Prevention Model on substance use among youth.* *Frontiers in Public Health*, 11, Article 1117857. https://doi.org/10.3389/fpubh.2023.1117857
Heilbrigðisráðuneytið (1992) Heilbrigð þjóð – Forvarnir og heilsustefna til aldamóta árið 2000. Hrafn F. o.fl
Íslenska æskulýðsrannsóknin. (n.d.). Niðurstöður og gögn úr Íslensku æskulýðsrannsókninni. Sótt af https://islenskaaesku.is
Mead, G. H. (1934). Mind, self, and society from the standpoint of a social behaviorist. Chicago: University of Chicago Press.
Vísir 9.okt – Áfengi og íþróttir eiga enga samleið – áskorun til þingfulltrúa UMFÍ
Áfengi og íþróttir eiga enga samleið – áskorun til þingfulltrúa UMFÍ
Á sambandsþingi UMFÍ um helgina verður lögð fram tillaga um að gefa út leiðbeinandi tilmæli vegna áfengissölu á íþróttaviðburðum á vegum UMFÍ! Tillagan er sögð miða að „varkárni og ábyrgð“ í slíkri sölu. En í raun felur hún í sér grundvallarbreytingu á því hvernig íþróttahreyfingin skilgreinir sjálfa sig, hvort hún standi áfram með lýðheilsu og forvörnum eða beygi sig undir sérhagsmuni áfengisiðnaðarins og taki þátt í þeirri ömurlegu vegferð hans og einlægri óskhyggju um að normalisera áfengi og áfengisneyslu, alltaf, alls staðar.
Það er einfaldlega ekki hægt að sætta sig við þessa tillögu. Áfengi, íþrótta- og æskulýðsstarf á enga samleið. Áfengisiðnaðurinn getur aldrei verið hluti af forvarnarstarfi. Tillagan er röng í öllum grundvallaratriðum, siðferðilega og samfélagslega.
Forvarnar- og lýðheilsuhlutverk UMFÍ er í húfi
UMFÍ hefur alla tíð verið mikilvægur burðarás í lýðheilsu, forvörnum og uppeldisstarfi á Íslandi. Hreyfingin hefur sem einstök fyrirmynd kennt kynslóð eftir kynslóð að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl, ábyrgð, samvinnu og sjálfsaga. Þessi arfleifð er dýrmæt og hún tapast ef íþróttahreyfingin fer að samþykkja áfengissölu sem hluta af sinni starfsemi.
Það þarf engan sérfræðing til þess að gera sér grein fyrir því að áfengi er einn stærsti einstaki heilsuvandi Íslendinga. Það veldur slysum, ofbeldi, andlegum veikindum og fjölskylduslitum. Það bitnar á börnum og ungmennum sem alast upp í skugga neyslu annarra. Að tengja áfengi umhverfi íþrótta, vettvangs barna og ungmenna — sem á að vera skjól og fyrirmynd — er því ekki „varkárni“. Það er afturför.
Tvískinnungur sem grefur undan trúverðugleika
Það er mikill tvískinnungur fólginn í því að segjast standa fyrir forvörnum og heilbrigðu uppeldi en um leið opna dyrnar fyrir áfengissölu á viðburðum íþróttafélaga. Þegar fulltrúar UMFÍ ræða um „ábyrgð“ og „viðeigandi umgjörð“ á sölu áfengis, þá er það í raun fagurgali sem réttlætir það að brjóta gegn eigin grunngildum. Við vitum að börn og ungmenni líta til íþróttahreyfingarinnar sem fyrirmyndar. Fyrirmyndirnar eru ekki bara á vellinum, þær eru líka í stúkunni eða á áhorfendabekkjunum. Börn og ungmenni sem upplifa og sjá áfengi tengt íþróttaviðburðum fá skýr skilaboð: áfengi og íþróttir eiga samleið. Það er ekki sú framtíð sem við viljum skapa.
Áfengisiðnaðurinn leitar nýrra leiða – ekki verða „vinur“ hans
Áfengisframleiðendur og -dreifingaraðilar um allan heim hafa leitað í íþróttir varðandi markaðssetningu. Það er engin tilviljun. Þeir vita að íþróttir tengjast jákvæðri ímynd, heilbrigði og samstöðu – og vilja nýta þá ímynd til að selja meira áfengi – afla nýrra viðskiptavina „barna og ungmenna“. Ef UMFÍ velur þessa leið, þá er það ekki aðeins á skjön við eigin gildi heldur verður hreyfingin samstarfsaðili í markaðssókn áfengisiðnaðarins gagnvart ungu fólki. Slíkt er algerlega siðferðilega óverjandi og samfélagslega skaðlegt.
Ábyrgðin liggur hjá þingfulltrúum
Þingfulltrúar UMFÍ standa nú frammi fyrir mikilvægu vali. Þeir þurfa að ákveða hvort þeir standi með börnum og ungmennum lýðheilsu, forvörnum og uppbyggilegu félags- og íþróttastarfi eða standi með þeirri hugsun að áfengi sé „eðlilegur“ hluti af íþróttastarfinu og því skuli veita áfengisiðnaðinum aðgengi að félagfólki sínu sem eru að stærstum hluta börn og ungmenni.
Þeir sem samþykkja þessa tillögu munu bera ábyrgð á því að grafa undan trúverðugleika forvarnarstarfs og lýðheilsuhugsjónar UMFÍ. Þeir munu líka leggja sitt af mörkum til þess að veikja stoðir hins margrómaða og sannreynda íslenska módels í forvörnum, sem er mörgum samfélögum og þjóðum fyrirmynd í forvörnum.
Þeir sem hafna henni munu hins vegar verja þann siðferðilega grundvöll og markmið sem Ungmennafélagshreyfingin hefur byggt á í meira en öld. Standa með réttindum barna og ungmenna til þess að vera laus við áreiti áfengisiðnaðarins og skapa áframhaldandi jákvæðar og uppbyggilegar forsendur í mikilvægu uppeldis- og íþróttastarfi.
Áfengi og íþróttir eiga enga samleið. Það er því einfaldlega skylda UMFÍ að standa vörð um börnin, ungmennin, velferð þeirra og möguleika til farsældar en ekki að opna dyrnar fyrir iðnaði sem hefur það eina markmið að selja áfengi, hvers afleiðingar eru þekktar.
Ég mæli örugglega fyrir hönd okkar allra sem vinnum að velferð barna og ungmenna þegar ég hvet alla þingfulltrúa UMFÍ eindregið til að hafna þessari tillögu um áfengissölu á íþróttaviðburðum.
Sveitarfélagið Árborg hefur nýlega samþykkt forvarnastefnu og aðgerðaáætlun. Eitt af leiðarljósum stefnunnar eru heilbrigðir lífshættir barna og ungmenna, líf án vímuefna.
Aðgerðahópur um forvarnir í Árborg beinir því til veitinga- og skemmtistaða í Árborg að fara að lögum og auglýsa aldrei áfengi í tengslum við markaðssetningu dansleikja eða annarra samkvæma. Með banni við áfengisauglýsingum í áfengislögum er leitast við að sporna gegn misnotkun á áfengi og ekki síst hindra að því sé haldið að börnum og ungmennum með hvers kyns tilkynningum til almennings, hvort heldur er í máli eða myndum. Því miður eru dæmi þess að veitinga- og skemmtistaðir í Árborg auglýsi áfengi í tengslum við markaðssetningu á dansleikum og skemmtunum bæði í staðarblöðum og á heimsíðum viðkomandi fyrirtækja. Sem dæmi má nefna auglýsingu sem veitingahúsið 800 bar á Selfossi sendi frá sér í tilefni af dansleik föstudagskvöldið 12. desember sl. og birtist í Sunnlenska fréttablaðinu og Dagskránni, sem dreift er ókeypis inn á öll heimili á Suðurlandi. Í umræddri auglýsingu kemur fram að boðið séu upp á ókeypis “Jager” og einnig er í auglýsingunni mynd af vínflösku, nánar tiltekið Jagermeister, sem er með 35% vínanda. Umrædd skemmtun sem kynnt var sem “próflokadjamm” var sérstaklega beint að þeim mikla fjölda ungmenna sem á þessum tíma voru að ljúka prófum.
Aðgerðahópurinn fordæmir auglýsingar af þessu tagi harðlega og beinir því til rekstraraðila veitinga- og skemmtistaða og ritstjóra staðarblaða að þau styðji sveitarfélagið í að búa börnum og ungmennum í Árborg þroskavænleg uppeldisskilyrði og líf án vímuefna og birta því framvegis ekki auglýsingar sem gætu varðar við áfengislög. Athygli er vakin á því að ritstjóri Blaðsins var í Hæstarétti Íslands þann 23. október sl. dæmdur í 1.000.000 króna sekt auk sakarkostnaðar fyrir birtingu áfengisauglýsinga.
Aðgerðahópur um forvarnir í Árborg er skipaður fulltrúum Fjölskyldumiðstöðvar Árborgar, lögreglunnar á Selfossi, leik-og grunnskóla Árborgar, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og Skólaskrifstofu Suðurlands.
Selfossi / Sveitarfélagið Árborg 18.12.2008.
F.h. Aðgerðarhóps um forvarnir í Árborg
Andrés Sigurvinsson,
verkefnisstjóri íþrótta-, forvarna- og menningarmála í Árborg.
Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/alyktun-fra-a%c3%b0ger%c3%b0arhop-i-forvornum-i-arborg/
A leading doctor says all advertising of alcohol must be banned in a bid to curb Britain’s growing drink problem.
The comments by the head of the Royal College of Physicians come as latest data show alcohol-related deaths in the UK have doubled in the past 15 years.
Professor Ian Gilmore said the measure was necessary to protect children who were influenced by sporting heroes wearing branded clothing.
Government said it was already introducing measures to help.
Professor Gilmore suggested a phased ban.
„I think it would be hard to move to a total advertising ban straight away, but we can work towards it.
„Most urgently we should look at introducing a watershed, with a move towards a complete ban.“
He said it made no sense to have a watershed for promoting unhealthy foods to children but then allow alcohol advertising during the day.
Wrong messages
Professor Gilmore said he had recently watched a football match on satellite television which had shown four alcohol advertisements over the course of a lunchtime.
He suggested advertising within sporting events could be particularly influential upon children. He explained that how his nine-year-old nephew had a Liverpool shirt with the Carlsberg logo on it.
He also said drink was too cheap to buy in supermarkets and called for higher taxes on alcohol.
„We really are quite liberal in comparison with many countries.
„I’m not teetotal and we are not calling for prohibition. But we want to see some evidence-based strategies to see a reduction in the alcohol-related harm which we see in our hospitals,“ he said.
A spokeswoman for the Department of Health said: „We are concerned about the number of alcohol-related deaths and are committed to tackling this problem.“
She said they had recently launched a high-profile responsible drinking campaign, Know Your Limits, aimed at 18 to 24-year-olds.
„We are also working closely with alcohol drinks industry and non-industry stakeholders on promoting more responsible drinking and preventing alcohol misuse.“
Í talhorninu vekur talsmaður neytenda athygli á að ábyrgð á áfengisauglýsingum er ekki eins óljós og halda mætti. Auglýsandi – og jafnvel fjölmiðill – er ábyrgur. Ritstjóri, ber refsiábyrgð á ómerktum auglýsingum.
Áfengisauglýsingar hafa verið bannaðar á Íslandi í 80 ár. Bannið er að finna í áfengislögum. Samt virðist manni sem meira fari fyrir sýknudómum vegna þeirra – í þeim fáu tilvikum sem ákært er vegna sífjölgandi áfengisauglýsinga. Fjöldi ábendinga berst um þetta á hverju ári til þeirra sem hafa með neytendavernd, áfengisvernd og hagsmuni og réttindi barna að gera. Hvað er til ráða? Ber einhver ábyrgðina?
Í erindi mínu á morgunverðarfundi samstarfshópsins Náum áttum sl. þriðjudag spurði ég: „Hver ber ábyrgðina?“ Svör mín þar voru byggð á drögum að þessum pistli en auk þess voru þar fróðleg erindi sem unnt verður að finna á heimasíðu hópsins. Þar var m.a. bent á að viðskiptasjónarmið væru látin vega þyngra en velferð barna og ungmenna en bann við áfengisauglýsingum styðst ekki síst við barnaverndar- og heilbrigðissjónarmið.
Hver ber ábyrgðina?
Ber einhver ábyrgðina? Ég var farinn að halda að svo væri ekki en eftir athugun á dómaframkvæmd og stjórnsýslu, sem mér er kunnugt um, virðist mér svarið vera jákvætt. Það ber einhver ábyrgð á áfengisauglýsingum. En hver?
Þó að sumar ábyrgðarreglurnar hér að neðan fjalli bæði um refsiábyrgð og skaðabótaábyrgð, svo og aðra ábyrgð, mun ég einkum fjalla um refsiábyrgð og aðra ábyrgð. Skaðabótaábyrgð fjalla ég ekki um í pistli þessum en að gefnu tilefni benti ég á það á fyrrgreindum fundi að skaðabótaábyrgð auglýsanda kemur vel til greina ef einstaklingur er sýndur á myndum í tengslum við vöru á borð við áfengi ef sannanlegs leyfis hans – eða forráðamanns – hefur ekki verið aflað.
Í Svíþjóð hefur málið ekki verið talið svona einfalt enda komst Marknadsdomstolen að þeirri niðurstöðu 2003 í dómi í svonefndu Gourmet-máli að bann þar í landi við áfengisauglýsingum stæðist ekki enda væri bannið í þáverandi mynd tæplega skilvirkt og gengi allt of langt til þess að ná réttlætanlegu markmiði. Með því var talið brotið gegn meðalhófsreglu og mætti ekki beita banninu gegn áfengisauglýsingum í tímaritum. Á þetta sjónarmið hefur enn ekki reynt beinlínis fyrir Hæstarétti Íslands svo vitað sé.
Þá komst dómstóll ESB að þeirri niðurstöðu í forúrskurði í áðurtilvitnuðu Gourmet-máli að bann við áfengisauglýsingum stæðist og teldist ekki óheimil hindrun gegn frjálsu flæði vöru og þjónustu. Rökin voru þau að bannið gæti staðist ef það styddist við lýðheilsusjónarmið en þá mætti það ekki ganga lengra en nauðsyn væri til vegna þeirra sjónarmiða. Það samhengi yrðu innlendir dómstólar að meta eftir aðstæðum og lagaumhverfi í hverju ríki. Sjá nánar tilvitnaða frétt á sænsku um dóminn og fordæmi á sviði Evrópuréttar.
Mun ég nú víkja að ábyrgð á brotum gegn banni við áfengisauglýsingum á þrenns konar vettvangi:
í prentmiðlum,
ljósvakamiðlum og
öðrum miðlum.
Prentmiðlar
Með prentlögum er annars vegar ætlunin að tryggja prentfrelsi í raun og þá helst með því að ekki sé verið að grennslast fyrir um raunverulegan höfund efnis ef annar vill vera „skjöldur“ hans. Styðst þetta við söguleg rök. Því ber aðeins einn ábyrgð á efni blaða og tímarita; af þeim sökum eiga að jafnaði ekki við þar almennar reglur um hlutdeild og meðábyrgð í refsiverðum brotum, þ.e. að fleiri en einn geti talist refsiábyrgur.
Hins vegar er með prentlögum tryggt að ávallt beri einhver ábyrgð á efni dagblaða, þ.e.
höfundur ef hann er nafngreindur en annars
útgefandi eða ritstjóri ef hann er tilgreindur en annars
sölu- eða dreifingaraðili (ef í hann næst) en annars
prentsmiðjan.
Frá 1963 hefur sú túlkun legið fyrir frá Hæstarétti (H 1963:1) að ef fyrirtæki, sem auglýsir áfengi, er nafngreint þá ber framkvæmdarstjóri þess ábyrgð sem höfundur þess efnis sem í auglýsingu felst; það þýðir líka að ritstjórinn ber ekki ábyrgð – ef auglýsandi er nafngreindur. Í dómi Hæstaréttar sagði:
„Eins og í héraðsdómi greinir, er ákærði […] ritstjóri mánudagsblaðsins og ákærði […] framkvæmdastjóri veitingahússins Glaumbæjar í Reykjavík.
Í auglýsingu þeirri, sem birtist í Mánudagsblaðinu hinn 30. apríl 1962 og mál þetta er af risið, er mynd af vínbar veitingahússins Glaumbæjar. Sjást þar birgðir vínfanga og veitingaþjónn að fylla vínglas. Til hliðar við myndina er orðið: Drekkið. Mynd þessi kynnir á einhæfan hátt framboð veitingahússins á áfengi, og í beinu sambandi við hana er í orði hvatt til drykkju þar. þegar þetta er virt, þykir auglýsingin verða að teljast áfengisauglýsing í merk ingu 16. gr., sbr. 41. gr. áfengislaga nr. 58/1954.
Yfir greindri auglýsingu er heitið Glaumbær og undir henni orðin: Skemmtið ykkur í Glaumbæ, auk talsíma númera fyrirtækisins. Er veitingahús það, sem áður getur, þannig nafngreint sem auglýsandi. Ákærði [framkvæmdarstjórinn], sem samþykkti gerð auglýsingarinnar og hlutaðist til um birtingu hennar, ber því refsiábyrgð á efni hennar, sbr. 2. mgr. 15. gr. laga um prentrétt nr. 57/1956, en ákærði [ritstjórinn] þá eigi, sbr. 3. mgr. sömu lagagreinar.
Með skírskotun til þess, sem nú var rakið, verður ákærða [ritstjóranum] dæmd sýkna, en ákærða [framkvæmdarstjóranum] samkvæmt nefndum ákvæðum laga nr. 58/1954 refsing.“
Nafn fyrirtækisins – skemmtistaðar í borginni – var þannig skýrlega tilgreint í umræddri auglýsingu.
Þessi ábyrgðarregla var áréttuð með tilvísuðum dómi Hæstaréttar frá 1999 en þar var framkvæmdarstjóri bjórgerðarfyrirtækis dæmdur sekur fyrir brot á áfengislögum, m.a. með birtingu bjórauglýsinga í dagblaði. Ritstjóri var ekki ákærður. Skilja má niðurstöðuna þannig að vörumerki bjórtegundarinnar hafi óbeint vísað til fyrirtækisins enda þótt nafn auglýsanda hafi alls ekki verið að finna í auglýsingunni.
Sama niðurstaða – sektardómur – varð í tveimur dómum Héraðsdóms Reykjavíkur frá október 2006, öðrum varðandi léttvínsauglýsingu í tímariti og hinum varðandi auglýsingar á áfengum bjór í dagblaði og tímariti. Auglýsendur, innflutnings- eða umboðsfyrirtæki erlendra áfengistegunda, báru ábyrgð – eða öllu heldur fyrirsvarsmenn þeirra sem voru ákærðir. Mér er kunnugt um að hinum síðarnefnda hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar. Miðað við atvikalýsingu dóma héraðsdóms er reyndar hætt við að mennirnir verði sýknaðir í Hæstarétti samkvæmt því fordæmi sem nú skal vikið að.
Ritstjóri ber ábyrgð til vara
Nafngreiningu auglýsanda var hins vegar ekki til að dreifa í nýjasta dómi Hæstaréttar frá 8. febrúar 2007 þar sem framkvæmdarstjóri íslensks innflutnings- eða umboðsfyrirtækis erlends bjórs var sýknaður þar sem engin nafngreining lá fyrir á umboðsfyrirtækinu – auglýsandanum; hann telst, sem sagt, höfundur í skilningi prentlaga. Þarna hefði verið öruggara og réttara miðað við fordæmi Hæstaréttar frá 1963 að ákæra ritstjóra dagblaðsins en skilja má dóminn þannig að hann hefði þá verið dæmdur sekur fyrir brot gegn auglýsingabanni áfengislaga.
Í dóminum sagði (áhersla GT):
„Hæstiréttur hefur í þeim tveimur dómum [frá 1963 og 1999] sem að framan er vísað til markað þá stefnu að minni kröfur séu gerðar til að höfundur teljist hafa nafngreint sig í skilningi 2. mgr. 15. gr. laga nr. 57/1956 þegar auglýsingar eiga í hlut en ella gildir um annað efni. Auglýsingar þær sem ákæra í máli þessu varðar bera hvorki með sér nafn höfundar né auglýsanda. Á bjórdós þeirri sem birtist í auglýsingunum kemur fram vörumerkið […], en það var skráð hér á landi 29. júlí 1992. Er eigandi þess skráður […] Danmörku. Í auglýsingum þessum eru þannig, andstætt því sem gilti um auglýsingar þær sem um var fjallað í áður tilvitnuðum dómum, engin auðkenni sem beint eða óbeintvísa til ákærða eða fyrirtækis þess, A ehf., sem hann er framkvæmdastjóri hjá. Verður þar af leiðandi að telja að ákærði hafi ekki nafngreint sig í merkingu 2. mgr. 15. gr. laga nr. 57/1956 og beri því ekki refsiábyrgð á efni auglýsinganna. Samkvæmt því verður að staðfesta niðurstöðu hins áfrýjaða dóms.“
Framkvæmdarstjóri auglýsanda hins erlenda bjórs var sýknaður.
Segja má að Hæstiréttur hafi í dómi sínum 8. febrúar 2007 fengið bakþanka með því að telja nú að ekki sé nóg að nafngreina vöru eins og látið var duga 1999 en þá vísaði nafn bjórsins aðeins óbeint á framleiðandann, auglýsandann. Niðurstaðan er því skýr – eins og hún hefur í raun verið frá því að fyrst reyndi að þessu leyti á prentlögin í Hæstarétti 1963:
Auglýsandi ber ábyrgð á áfengisauglýsingu ef hann er nafngreindur í auglýsingunni. Refsiábyrgðina ber framkvæmdarstjóri eða annar fyrirsvarsmaður fyrirtækis sem er bær til þess að samþykkja auglýsinguna.
Ef auglýsandi er ekki nafngreindur ber ritstjóri ábyrgðina (og svo koll af kolli samkvæmtprentlögum).
Ég minni á að í dómi sínum 8. febrúar 2007 segir Hæstiréttur um bjórauglýsingar í fylgiblaði með dagblaði:
„Birting framangreindra auglýsinga braut því í bága við bann 20. gr. áfengislaga við áfengisauglýsingum.“
Þetta þýðir að mínu mati að ef vafi leikur á því hvort auglýsandi er nægilega nafngreindur eigi handhafi ákæruvalds að ákæra ritstjóra dagblaðs eða tímarits. Er það reyndar í samræmi við meðábyrgð fjölmiðla á augljósum lögbrotum sem beinast gegn neytendum sem vikið er lauslega að hér að neðan. Á hinn bóginn er ekki útilokað að slíkt mál veki upp að nýju álitamál um svonefnda hlutlæga refsiábyrgð, sbr. 69. gr. stjórnarskrárinnar og dóma Hæstaréttar í H 1995:3149 og frá 27. janúar 2000.
Breytt verklag á fjölmiðlum!
Sú niðurstaða hlýtur að leiða til þess verklags á dagblöðum og öðrum ritum að tryggt verði að áfengisauglýsandi verði nafngreindur – ef á annað borð verður haldið áfram þeim ósið að birta áfengisauglýsingar meðan þær eru bannaðar með áfengislögum. Annars er hætt við – og bæði rétt og skylt samkvæmt prentlögum – að ritstjóri verði ákærður fyrir brot gegn áfengislögum miðað við þessi skýru fordæmi Hæstaréttar frá 1963 og 2007.
Aðrir auglýsingamiðlar
Í sama dómi Hæstaréttar frá 1999 og ofan er nefndur var einnig ákært fyrir bjórauglýsingar á flettiskilti við stóra umferðargötu í borginni. Annað fyrirtæki átti flettiskiltið og leigði bjórgerðarfyrirtækinu það að hluta til birtingar á umræddri bjórauglýsingu. Um þetta sagði í dóminum:
„Auglýsingin var samin og sett upp af starfsmönnum fyrirtækisins, er lutu stjórn ákærða og verður að líta svo á framburð hans fyrir dómi að hann hafi ákveðið að birta umrædda auglýsingu með þessum hætti. Með vísan til þess, sem áður hefur verið rakið, telst ákærði brotlegur við þau ákvæði áfengislaga, sem tilgreind eru í ákæru, og skiptir eignarhald á umræddu flettiskilti ekki máli varðandi refsiábyrgð hans.“
Líklegt er að telja að sama regla gildi annars staðar – þar sem sérreglur prentlaga og útvarpslagagilda ekki – svo sem á netinu en ekki er vitað til þess að á það hafi reynt hérlendis að þessu leyti.
Almenna reglan er því að auglýsandi eða framkvæmdarstjóri þess fyrirtækis, sem auglýsir áfengi, ber refsiábyrgð á broti gegn banni áfengislaga.
Ljósvakamiðlar
Ljósvakamiðlar samkvæmt útvarpslögum eru útvarp og sjónvarp. Þar eru líka sérreglur um refsiábyrgð sem tryggja að einhver einn beri ábyrgð. Í sama dómi Hæstaréttar frá 1999 og ofan er nefndur var einnig ákært fyrir brot á áfengislögum með bjórauglýsingu í sjónvarpi. Um það segir Hæstiréttur:
„Er óumdeilt að auglýsingin var birt á ábyrgð ákærða. Braut hann með því tilgreind ákvæði áfengislaga í ákæru og bakaði sér refsiábyrgð“
samkvæmt tilgreindu ákvæði þágildandi útvarpslaga sem er óbreytt og hljóðar svo:
„Auglýsandi ber ábyrgð á auglýsingu.“
Þetta ákvæði útvarpslaga gildir um refsi- og fébótaábyrgð og er mjög skýrt. Vonandi reynir brátt á það fyrir dómi enda er bann við áfengisauglýsingum að mínu mati þverbrotið á hverjum degi þegar í lok bjórauglýsingar birtist í vinstra horni neðst með daufum og smáum stöfum, líklega í um eina sekúndu: „Léttöl.“ Þetta stenst að mínu mati ekki skýrt bann áfengislaga (áhersla GT):
Hvers konar auglýsingar á áfengi og einstökum áfengistegundum eru bannaðar. Enn fremur er bannað að sýna neyslu eða hvers konar aðra meðferð áfengis í auglýsingum […].
Með auglýsingu er átt við hvers konar tilkynningar til almennings vegna markaðssetningar þar sem sýndar eru í máli eða myndum áfengistegundir eða atriði tengd áfengisneyslu, […].
[…] Þó er framleiðanda sem auk áfengis framleiðir aðrar drykkjarvörur heimilt að nota firmanafn eða merki í tengslum við auglýsingu þeirra drykkja, enda megi augljóst vera að um óáfenga drykki sé að ræða í skilningi laganna og ekki vísað til hinnar áfengu framleiðslu.
Önnur ábyrgð
Spurningin er hvort einhver önnur ábyrgð en refsiábyrgð er fyrir hendi. Lýðheilsustöð, talsmaður neytenda og umboðsmaður barna héldu því fram í sameiginlegu erindi til útvarpsréttarnefndar, dags. 10. janúar 2006, sbr. fréttatilkynningu frá 17. janúar 2006. Erindið var þríþætt og beindist í öllum tilvikum að því að áminna ljósvakamiðlana sem áttu í hlut en áminning er undanfaristjórnvaldssekta eða mögulegrar afturköllunar útvarpsleyfis; þannig var óskað eftir að beitt yrði vægasta úrræðinu sem lög leyfa. Því hafnaði útvarpsréttarnefnd í öllum tilvikum á fundi sínum.
Beinar áfengisauglýsingar
Í fyrsta lagi var því haldið fram í erindinu að með beinum áfengisauglýsingum væri brotið gegnáfengislögum. Útvarpsréttarnefnd bar ekki brigður á það en sagðist aðeins geta aðhafst vegna brota á útvarpslögum og vísaði málinu til lögreglu. Ég er enn ósammála þessari röksemdafærslu og tel að stjórnvöld megi – og eigi í sumum tilvikum að – líta til annarra laga en þeirra sem þau hafa sérstakt forræði yfir. Þarna þarf að bæta úr í nýju „fjölmiðlalagafrumvarpi“ sem er til meðferðar á Alþingi.
Kostun með áfengistegundum
Í öðru lagi var kvartað yfir kostun tiltekins sjónvarpsþáttar með vísan til tiltekinnar bjórtegundaren útvarpsréttarnefnd hafnaði þeim lið kvörtunarinnar þar sem til sölu var óáfengur bjór með sama nafni. Í áfengislögum segir hins vegar að til þess að auglýsing sé heimil frá aðila sem einnig selur áfengi verði að vera
„augljóst […] að um óáfenga drykki sé að ræða í skilningi laganna og ekki vísað til hinnar áfengu framleiðslu.“
Einföld samræmislögskýring við tilvitnað ákvæði áfengislaga hefði átt að duga til þess að útvarpsréttarnefnd hefði geta áminnt vegna kostunarinnar á grundvelli svohljóðandi ákvæðisútvarpslaga:
„Útvarpsdagskrár mega ekki vera kostaðar af aðilum sem bannað er að auglýsa vöru sína eða þjónustu.“
Þarna er sama meinlokan greinilega á ferðinni – að útvarpsréttarnefnd eigi aðeins að byggja á „sínum“ lögum.
Nýlega hafnaði lögregla að hefja sakamál út af kostun sjónvarpsdagskrár með vísan til áfengra drykkja og benti réttilega á að refsiákvæði vanti í útvarpslög hvað varðar kostun; sérstakt bann við kostun skortir hins vegar í áfengislög þó að leiða megi það af þeim. Lögreglan vísaði á útvarpsréttarnefnd. Þarna er greinilega þörf á samræmingu á lögum; hvaða afleiðingar aðrar á brot að hafa gegn tilvitnuðu ákvæði útvarpslaga um bann við kostun af hálfu þeirra sem ekki mega auglýsa vöru sína eða þjónustu? Ef bannið hefur engar afleiðingar er um að ræða svonefnt lex imperfecta og það getur ekki verið tilgangur löggjafans.
Áberandi sýningar
Í þriðja lagi var kvartað yfir áberandi sýningu á áfengisvörumerkjum í tilteknum sjónvarpsþáttum á fleiri en einni stöð. Í öðru tilvikinu taldi útvarpsréttarnefnd ekki ástæðu til þess að athuga hvort rétt væri að ekki hefði hefði verið greitt fyrir þá birtingu. Í hinu tilvikinu fann útvarpsréttarnefnd að því að ekki hefði verið gefið til kynna að dagskrárliðurinn væri kostaður. Var því beint til hlutaðeigandi aðila að fara að lögum en annars tekið fram að íhuga mætti viðurlög samkvæmt útvarpslögum.
Meðábyrgð fjölmiðla
Með öðrum orðum tel ég eins og raunin er með ritstjóra dagblaða þegar auglýsandi er ekki nafngreindur að ljósvakamiðlar beri ábyrgð – ekki aðeins siðferðilega heldur lagalega samkvæmt þeim úrræðum sem útvarpsréttarnefnd hefur. Þar er hið vægasta, sem sagt, áminning. Áminning ljósvakamiðils gæti samt í raun verið virkari en sakamál gagnvart auglýsanda enda hætta útvarps- og sjónvarpsstöðvar vart á stjórnvaldssektir hvað þá afturköllun verðmætra leyfa. Forsenda virkrar (með)ábyrgðar fjölmiðla er hins vegar öflugt aðhald og kann að vera tilefni til þess að gera breytingar á stjórnsýslu þeirra mála í þessu ljósi.
Eins og dæmi erlendis frá sýna er unnt að gera fjölmiðla meðábyrga fyrir brotum gegn neytendum ef fjölmiðlum má vera augljóst að auglýsing er ekki í samræmi við lög. Mun ég fjalla síðar sérstaklega um það efni og að líkindum gera tillögur um úrbætur í því efni til réttra aðila.
Svarið
Svarið við spurningunni hvort einhver – og hver – beri ábyrgð á brotum gegn banni við áfengisauglýsingum er því: Auglýsandi (framkvæmdarstjóri) ber ábyrgðina. Auglýsandi er sá sem kaupir auglýsingarými í dagblaði, ljósvakamiðli, á flettiskilti, á netinu eða annars staðar. Sá sem kaupir slíkt rými er yfirleitt innlendur áfengisframleiðandi eða innlendur innflutnings- eða umboðsaðili erlendrar áfengistegundar. Eini fyrirvarinn er að ef auglýsing er í dagblaði þá þarf auglýsandinn að vera nafngreindur; ef ekki – þá er ritstjóri ábyrgur og ber að ákæra hann fyrir brot gegn áfengislögum.
Utan gildissviðs sérreglna prentlaga og útvarpslaga geta auk þess komið til álita almennar reglur refsiréttar um meðábyrgð á brotum.
En refsiábyrgð er ekki eina ábyrgðin. Eins og ég tel mig hafa rökstutt hér að ofan með gagnrýni á útvarpsréttarnefnd er unnt að gera ljósvakamiðla ábyrga fyrir augljósum brotum gegn lögbundnu banni við áfengisauglýsingum, áfengiskostunum og annarri flöggun áfengis í þessum áhrifaríku miðlum, útvarpi og sjónvarpi. Úr því að það var ekki gert þarf að laga lög um fjölmiðla og mun ég væntanlega leggja það til við menntamálanefnd Alþingis sem er með til meðferðar svonefnt „fjölmiðlalagafrumvarp.“ Hugsanlegt er að til þurfi að koma öflug fjölmiðlastofnun.
Þá má ekki gleyma ábyrgð okkar sem eigum að standa vörð um hagsmuni og réttindi neytenda og sérstaka hópa eða hagsmuni – annað hvort almennt eða samkvæmt sérstökum lögum. Þar á meðal er lögreglan. Auk þess má nefna heilbrigðisstéttir, Lýðheilsustöð, landlækni, Neytendastofu, talsmann neytenda, umboðsmann barna og margnefnda útvarpsréttarnefnd, svo og almannasamtök á borð við Neytendasamtökin og Heimili og skóla. Séu ekki virk viðurlög við brotum gegn hagsmunum eða réttindum neytenda og þeim viðurlögum framfylgt dregur enn úr virðingu við lögin eins og ég fjallaði óbeint um í talhorninu 14. janúar sl.
Loks má ekki gleyma ábyrgð neytenda sjálfra – sem hafa mikil áhrif, eins og ég vék að í talhorninu21. janúar sl. og 28. janúar sl.
Annað mál
Reyndar hef ég í umsögn til allsherjarnefndar Alþingis um frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum ekki tekið afstöðu til þess hvort banna eigi eða leyfa áfengisauglýsingar. Ég lagði áherslu á að slíku banni þurfi að fylgja virk viðurlög enda er það samkvæmt sænskadómafordæminu í svonefndu Gourmet-máli ekki aðeins forsenda þess að bannið standist; það er réttur neytenda, ekki síst barna og ungmenna – sem mikilvægast er að vernda gegn slíku markaðsáreiti varðandi óhollar vörur.
Hins vegar hafa aðrir neytendur – þeir sem nota áfengi og mega það – hagsmuni af því að geta kynnt sér vöruna en það er annað mál sem ég vík lauslega að í umsögninni um áðurnefnt frumvarpsem varð ekki að lögum en þar er einnig að finna umfjöllun um forsögu og fleiri dóma. Tilgangur þess frumvarps virðist mér að létta á almennu banni við áfengisauglýsingum en gera bannið um leið virkara til verndar börnum og ungmennum. Það er þess virði að íhuga – en þá verður bannið að virka.
Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda.
Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/ber-einhver-abyrg%c3%b0-a-afengisauglysingum/
Forvarnanefnd Hafnarfjarðar tók upp um daginn á fundi sínum frumvarp um sölu á léttvíni og bjór í matvöruverslunum sem til stendur að taka upp á Alþingi nú í vetur. Forvarnanefndin tók upp frumvarpið því að það ætlar sveitarfélögum að framfylgja hluta laganna og sjá um að úthluta matvöruverslunum áfengissöluleyfi.
Fjölskylduráð Hafnarfjarðar tók heillshugar undir bókun forvarnanefndar þar sem lagst er gegn frumvarpinu. Þegar tillagan kom til bæjarstjórnar sköpuðust talsverðar umræður um frumvarpið en í ljós kom að einn flutningsmanna þess situr einmitt í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. En meðferð málsins endaði þannig að allir bæjarfulltrúarnir utan þess sem er flutningsmaður studdu tillöguna 10 – 1. Vilji sveitarstjórnamanna í Hafnarfirði er skýr.
,,Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mælir eindregið gegn því að frumvarp til laga um sölu áfengis og tóbaks (sala léttvíns og bjórs), 37. þingmál 136. löggjafarþings, verði samþykkt. Reynsla annarra þjóða af auknu aðgengi að áfengi með afnámi einkasölu sýnir aukna neyslu, ekki síst meðal ungmenna og þar af leiðandi mikla fjölgun félagslegra og heilsufarslegra vandamála. Þetta frumvarp stefnir því í þveröfuga átt eftir að náðst hefur mikilvægur árangur í forvörnum gegn notkun áfengis og annarra vímuefna, með markvissri vinnu í Hafnarfirði og víðar. Einnig er vakin athygli á að ekki hefur verið leitað formlegrar umsagnar þeirra aðila sem skv. frumvarpinu munu bera ábyrgð á framkvæmdinni.”
Bókun forvarnanefndar:
Forvarnarnefnd Hafnarfjarðar leggst eindregið gegn frumvarpi til laga um sölu áfengis í matvörubúðum. Gögn frá Lýðheilsustöð benda ótvírætt til þess að sala áfengis í matvörubúðum sé mikið óheillaspor. Landlæknir hefur lagst gegn frumvarpinu og fyrirliggjandi upplýsingar frá SÁÁ eru samhljóða.
Evrópudeild Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar hefur gefið út Stefnumótun í áfengismálum, sem fjallar um stefnumótun í áfengismálum. Þar eru þjóðir hvattar til að móta sér stefnu í áfengismálum og bent er á aðgerðir sem sannreynt þykir að skili árangri sem dregur úr skaðlegri neyslu áfengis.
Meðal þeirra leiða sem bent er á eru:
Skert aðgengi
Aðgerðir gegn ölvunarakstri
Aðgengi að meðferð
Bann við áfengisauglýsingum
Áfengislaust umhverfi
Fræðsla
Forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar er eini aðilinn á Íslandi sem reglulega hefur athugað hvort unglingar undir aldri fái keypt tóbak í verslunum. Niðurstöður þeirra rannsókna benda til þess að rúmlega helmingur ungmenna sem ekki eiga að fá keypt tóbak geti verslað það í búðum hér. Bandarísk rannsókn hefur leitt í ljós að auðveldara er fyrir fólk undir lögaldri að fá keypt áfengi í matvöruverslunum og stórmörkuðum en sérstökum áfengisverslunum. Ætla má að svipað verði uppi á teningnum hér.
Forvarnarnefnd Hafnarfjarðar skorar á Bæjarstjórn að samþykkja samhljóða
,,Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mælir eindregið gegn því að frumvarp til laga um sölu áfengis og tóbaks (sala léttvíns og bjórs), 37. þingmál 136. löggjafarþings, verði samþykkt. Reynsla annarra þjóða af auknu aðgengi að áfengi með afnámi einkasölu sýnir aukna neyslu, ekki síst meðal ungmenna og þar af leiðandi mikla fjölgun félagslegra og heilsufarslegra vandamála. Þetta frumvarp stefnir því í þveröfuga átt eftir að náðst hefur mikilvægur árangur í forvörnum gegn notkun áfengis og annarra vímuefna, með markvissri vinnu í Hafnarfirði og víðar. Einnig er vakin athygli á að ekki hefur verið leitað formlegrar umsagnar þeirra aðila sem skv. frumvarpinu munu bera ábyrgð á framkvæmdinni.”
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti þessi ályktun á fundi sínum með tíu atkvæðum gegn einu en viðkomandi bæjarfulltrúi sem var á móti er Rósa Guðbjartsdóttir formaður knattspyrnudeildar Hauka ogvaraþingmaður , sem jafnframt er einn að flutningmönnum frumvarpsins á þing.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sýnir með þessari bókun jákvæðan hug sinni í verki gagnvart málefnum æskunnar. Bókun þessi er einnig afar mikilvægt fordæmi sem vonandi verður öðrum sveitarfélögum til eftirbreytni.
Í Hafnarfirði hefur náðst góður árangur í forvarnarmálum og heilsueflingu með víðtæku samstarfi fjölmargra aðila. Eftir þessum árangri hefur verið tekið víða um land og hugmyndfræði okkar er fyrirmynd margra annarra á þessu sviði. Þessum góða árangri verður stefnt í voða ef sala vímuefna verður færð inn í matvörubúðir. Áfengi er engin venjuleg neysluvara.
Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/b%c3%a6jarstjorn-hafnarfjar%c3%b0ar-tekur-afsto%c3%b0u-me%c3%b0-bornum-og-unglingum/
Auðvitað erum við Íslendingar löghlýðin þjóð. Það væri nú annaðhvort. En við erum líka býsna slyng að fara í kringum lögin, þegar okkur ekki líkar efni laganna. Það er bannað að auglýsa áfengi.
Daglega dynja á okkur bæði í blöðum og sjónvarpi bjórauglýsingar með tælandi texta og myndum sem lofa ágæti bjórs.Okkar fremsti leikari les textann,sem eykur enn áhrifin. En til þess að allir viti að ekki verið er að auglýsa áfengan bjór birtist orðið „léttöl“ í 2 eða 3 sekúndur með örsmáu letri í einu skjáhorninu.
Löglegt? Efamál. Það er líka bannað að setja upp auglýsingaskilti við þjóðvegi landsins. Fyrirtæki fara í kringum þetta bann með því að leggja merktum bílum sínum með máluðum auglýsingaskiltum á hliðum við fjölförnustu þjóðvegi til og frá höfuðborginni og raunar víðar. Löglegt? Efamál. Það er líka bannað að tala í síma í akstri. Það er ekkert hægt að fara í kring um það. Ótrúlega margir ökumenn láta samt eins og þetta lagaboð,þessi mikilvæga öryggisregla eigi ekki við í þeirra tilviki og blaðra í bílsíma með hálfan huga við aksturinn. Nú er til ágætis handfrjáls búnaður sem ekkert er að því að nota og ýmsir vissulega notfæra sér. En það er svolítið sérkennilegt að horfa á menn og konur aka um götur borgarinnar 16 milljón króna jeppum sem greinilega haf ekki haft ráð á því að kaupa handfrjálsan búnað. Lögreglan er of lin við að taka á þessum lögbrotum.
Eiður Svanberg Guðnason
Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/loghly%c3%b0in-%c3%bejo%c3%b0/
Okkur barst þessi umfjöllun af Skaganum – umræður sem urðu í bæjarstjórn æskunnar árið 2003:
„Una Harðardóttir, bæjarfulltrúi unga fólksins úr Brekkubæjarskóla, fjallaði um lög um auglýsingar á vímuefnum. Í máli Unu kom fram að á Íslandi væru lög sem segja að ekki megi auglýsa áfengi opinberlega. Samt sjáum við næstum á hverjum degi bjórauglýsingar í sjónvarpi og í blöðum og menn reyna alltaf að ganga aðeins lengra. Það eru meira að segja farnar að sjást auglýsingar í tímaritum um svokallaða áfenga gosdrykki. Una sagði að unglingar og ungt fólk væru augljóslega markhópur þeirra sem eru að auglýsa áfengi. Flestar eru auglýsingar þessar hressilegar, fyndnar og með myndum af ungu fólki sem skemmtir sér vel. Þar að auki er þeim oft komið fyrir í dagskrá og efni sem ætlað er ungum notendum. Það er greinilega verið að höfða til ungs fólks og að laða að nýja viðskiptavini sagði Una. Þessir svokölluðu áfengu gosdrykkir eru gott dæmi um það hvaða aðferðum menn eru tilbúnir að beita til að fá unglinga til að drekka. Áfengi er dulbúið í þessum drykkjum. Una sagði að með því að blanda því saman við sæta gosdrykki með allskonar ávaxtabragði og til að toppa þetta allt er þessu skellt í ótrúlega flottar og litríkar flöskur. Samkeppnin í því hver sýnir flottustu flöskuna er ekkert smá hörð. Sætasta gosið í flottustu flöskunni laðar náttúrulega að flesta unglingana og vinnur þar með samkeppnina. Það er náttúrulega alveg augljóst að þessir drykkir eru ekki framleiddir fyrir fimmtugt fólk sem er kannski búið að drekka af og til í tugi ára. Þessir drykkir eru einfaldlega framleiddir til að fá ungt fólk til að drekka og helst alltaf yngra og yngra fólk sagði Una. Áður fyrr þurftu unglingar sem voru að prófa í fyrsta sinn að drekka að pína ofan í sig íslensku brennivíni í volgu kóki sem yfirleitt endaði með því að allt kom upp aftur. Áfengisframleiðendur eru svo sannarlega búnir að finna ráðið við þessum vanda og tappa því á flöskur. Una sagði að nú reddi unglingar sér bara sætu og bragðgóðu gosi í litríkum flöskum og drekka eins og ekkert sé. Síðan er lítið mál að skipta yfir í bjórinn og auglýsingarnar í fjölmiðlum láta okkur reglulega vita af því hvaða bjór sé flottast að kaupa í dag.
Eins og fram kom í máli Unu í upphafi þá eru áfengisauglýsingar ólöglegar á Íslandi eða hvað spurði Una? Þessi lög virðast ekki nógu skýr því einhvern vegin tekst mönnum að fá svoleiðis auglýsingar birtar í fjölmiðlum. Það er greinilega mjög auðvelt að fara á svig við þessi lög og örugglega er það meiriháttar mál að kæra menn og draga þá fyrir dómstóla. Það kom fram í máli Unu að Þorgerður Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri áfengis og vímuvarnarráðs segði viðurlögin við brotum á þessum lögum vera ekki harðari en svo að auglýsendur líta bara á þau sem viðunandi fórnarkostnað fyrir vel heppnaða auglýsingu. Markaðurinn skilar fórnarkostnaðinum til baka. Una sagðist vilja leggja það til að bæjaryfirvöld á Akranesi skori á þingmenn kjördæmisins og á Alþingi allt í nafni forvarna að þeir taki þessi lög til endurskoðunar með það að markmiði að þeir geri þau skýrari og skilvirkari. Það er augljóst að þessi lög virka ekki í dag og því þarf að breyta. Hvað barnavínið og áfengu gosdrykkina varðar er kannski erfiðara að gera eitthvað sagði Una. Við getum auðvitað ekki stjórnað því hvað þau í ÁTVR hafa í hillunum hjá sér. Við getum hins vegar sent bréf til stjórnenda ÁTVR og sagt þeim að við höfum áhyggjur af þróun mála og hvatt þá til að passa vel upp á það að ekki sé verið að kaupa áfengi til að afhenda unglingum. Lögreglan ætti að geta fylgst vel með þessu þeir eru jú í sama húsi sagði Una.“
Vel mælt hjá þessari ungu konu og þarft umhugsunarefni fyrir þá þingmenn sem berjast fyrir því að lögleiða áfengisauglýsingar. Er Það í þágu unglinga – nei það er gegn unglingum eins og skrif Unu bera með sér.