Tökum afstöðu með börnum og ungmennum

Láttu aðra vita

Dr. Ragný Þóra Guðjonsen tók saman og birti á FB síðu fyrir nokkru þessa athyglisverðu punkta:

„STJÓRNVALDSAÐGERÐIR VIRKA – EKKI HEIMILA NETSÖLU ÁFENGIS

Vegna umræðu um netsölu áfengis tók ég saman niðurstöður nokkurra rannsókna um þetta efni. Það er sem sagt nokkuð skýrt og vel kortlagt að aukið aðgengi að áfengi, þar með vegna netsölu er áhættuþáttur sér í lagi fyrir ungt fólk og þá sem stunda áhættusamar drykkjuvenjur:

Meira aðgengi að áfengi eykur líkur á meiri áfengisneyslu. Morrison, C. N., Byrnes, H. F., Miller, B. A., Wiehe, S. E., Ponicki, W. R., & Wiebe, D. J. (2019). Exposure to alcohol outlets, alcohol access, and alcohol consumption among adolescents. Drug and Alcohol Dependence, 205. 107622.
https://doi.org/10.1016/j.drugalcdep.2019.107622

Markaðssetning áfengis gagnvart ungu fólki eykur líkur á áfengisnotkun þeirra.
Jernigan, D., Noel, J., Landon, J., Thornton, N., & Lobstein, T. (2017). Alcohol marketing and youth alcohol consumption: a systematic review of longitudinal studies published since 2008. Addiction, 112: 7–20. https://doi.org/10.1111/add.13591

Regluverk í kringum netsölu áfengis stenst ekki samanburð við aðgengiskröfur sem eru gerðar í sérstökum áfengisverslunum og eru ófullnægjandi til að vernda aðgengi ungs fólks.
Colbert, S., Wilkinson, C., Thornton, L., Feng, X., & Richmond, R. (2021). Online alcohol sales and home delivery: An international policy review and systematic literature review. Health Policy, 125(9), 1222–1237. https://doi.org/10.1016/j.healthpol.2021.07.005

Hópurinn sem kaupir áfengi á netinu er líklegri til að vera yngri eða að stunda áhættusamar drykkjuvenjur (drekka 6 drykki eða meira í hvert skipti). Líkur á skaða vegna áfengisdrykkju aukast þar sem netkaupin gera kleift að halda áfram drykkju sem ella hefði stöðvast þegar áfengið var búið.
Auðvelt er fyrir ungmenni að komast framhjá aðgengiskröfum við kaupin og algengt er að reglum um aðgengi sé ekki fylgt eftir:
Monjica-Perez Y., Callinan S., Livingston M. Alcohol home delivery services: an investigation of use and risk. 2019. http://fare.org.au/…/Alcohol-home-delivery-services.pdf

Fjöldi sölustaða áfengis þar með á netinu, tengist auknum líkum á því að áfengis sé neytt og hversu oft það er gert. Þessi niðurstaða kom fram óháð ýmsum einstaklingsþáttum og félags-efnahagslegri stöðu. Möguleikar ungs fólks á að útvega sér áfengi aukast við netsölu, meðal annars með því að fá fólk í umhverfinu, vini eða fjölskyldu, til að kaupa áfengið.
Chen, MJ., Gruenewald, P. J., & Remer, L. G. (2009). Does Alcohol Outlet Density Affect Youth Access to Alcohol? Journal of Adolescent Health, 44(6), 582-589.
https://doi.org/10.1016/j.jadohealth.2008.10.136

Hröð þróun netsölu á áfengi er áhyggjuefni og skortur er á regluverki. Staða sem ógnar lýðheilsu þjóða.
Huckle, T., Parker, K., Romeo, J. S., & Casswell, S. (2020). Online alcohol delivery is associated with heavier drinking during the first New Zealand COVID-19 pandemic restrictions. Drug and Alcohol Review, 40(5), 826–834. https://doi.org/10.1111/dar.13222

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/tokum-afstodu-med-bornum-og-ungmennum/