Previous Next

Nýr vefur

Láttu aðra vita

Eins og kunnugt er þá  varð gamli vefurinn okkar fyrir árás með þeim afleiðingum að við þurftum að vinna upp nýja síðu frá grunni. Greinilegt var að árásarmanni/mönnum var ákaflega illa við „ákæruformið“ á síðunni og eyddu nokkrum klukkustundum í það að reyna eyðileggja það, sem tókst að mestum hluta sem og að eyða dómasafni og örðu gagnlegu efni á vef okkar.

Það hefur tekið töluverðan tíma að koma málum í samt horf.  Samtökin byggja algerlega á sjálfboðastarfi og hafa afar takmarkað fé en góðan málstað. Heiðurinn af þessum vefnaði á varaformaður samtakanna  Baldur Þór Sveinsson.

Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hvetur almenning til þess að tilkynna í gegnum vef samtakanna öll brot gegn banni á áfengisauglýsingum. Ábendingar í gegnum vefinn okkar skipta hundruðum og ljóst að hver ábending skiptir máli. Allt hefur þetta áhrif og ekki síst hjá almenning sem veltir fyrir sér hve siðleysi ýmissa fyrirtæka er algert sem og  vanvirðing þeirra gagnvart réttindum barna og unglinga.

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/nyr-vefur/

Jólakveðja RÚV

Láttu aðra vita


Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/ruv-jolakve%c3%b0ja/

Vika 43

Láttu aðra vita

Vika 43 – vímuvarnarvika 2009
Samstarfsráði um forvarnir, SAMFO er vettvangur félagasamtaka sem vilja leggja forvörnum lið og/eða hafa forvarnir að markmiði starfs síns. Í því skyni er árlega efnt til vímuvarnaviku meðal annars með það að markmiði að vekja athygli landsmanna á mikilvægi forvarna, einkum forvörnum sem beinast að börnum og unglingum.

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/vika-43-2/

Opinber rannsókn hjá RÚV ohf

Láttu aðra vita

Hafnarfirði 26. ágúst 2009

Lögreglustjórinn í Reykjavík
Hr Stefán Eiríksson

Ósk um opinbera rannsókn

Foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsingum hafa undanfarin misseri borist fjölmargar kvartanir og ábendinga vegna áfengisauglýsinga hjá Ríkisútvarpinu ohf. Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hafa margsinnis gert formlegar athugasemdir við æðstu stjórnendur RÚV vegna þessara lögbrota. Málaleitan samtakanna hefur engan hljómgrunn fengið hjá ráðmönnum RÚV og ef eitthvað er þá hefur lögbrotum fjölgað til muna.

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/opinber-rannsokn-hja-ruv-ohf/

Ritstjóri og “blaðamaður” Mannlífs dæmdir

Láttu aðra vita

Ritstjóri Mannlífs og „blaðamaður“ þess voru þ. 12.júní dæmir fyrir brot á banni við áfengisauglýsingum. Sjá nánar HÉR

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/ritstjori-og-bla%c3%b0ama%c3%b0ur-mannlifs-d%c3%a6mdir/

Heimasíðan okkar!

Láttu aðra vita

Því miður hefur heimasíðan okkar Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum verið í lamasessi undanfarið.  Ástæðan er að síðan varð fyrir árás. Foreldrasamtökin gegn áfengisauglýsingum munu að sjálfsögðu óska eftir að Lögreglan rannsaki málið. Við fengum tilkynningu frá vistunaraðila síðunnar  um grunnsamlega umferð og tilraunir til að skrá sig inn á vefkerfið. Því miður tókst það og það sem verra var að töluvert af gögnum voru eyðilögð varanlega og það mun taka töluverðan tíma að koma heimasíðunni  í samt horf aftur m.a. dómasafninu.

Fjöldi fólks hefur notfært sér kæruform heimasíðunnar og hafa yfirvöldum borist fjölmargar ábendingar um brot á banni við áfengisauglýsingum. Margar af þessum ábendingum hafa örugglega leitt til frekari athugana, kæru og dóma.

Þó svo að barátta okkar foreldra, fyrir þeim sjálfsagða og lögvarða rétti barna og ungmenna til að vera laus við áfengisauglýsingar, njóti nær undantekningarlaust velvilja þá er ljóst að einhverjum líkar þetta framtak foreldrasamfélagsins afar illa. Svo illa að viðkomandi er reiðubúin að leggja verulega mikið á sig til þess að eyðileggja heimasíðuna. Þetta er í raun staðfesting á mikilvægi okkar starfsemi og því hvetjum við foreldra og forráðamenn barna og unglinga til þess að standa vörð um réttindi æskunnar, láta ekki deigan síga og notfæra sér kæruformið sem aldrei fyrr – Það er eina raunhæfa svar okkar við skemmdarverkum af þessu toga.

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/heimasi%c3%b0an-okkar/

Load more