Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum fagna frumvarpi

Láttu aðra vita

Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum fagna frumvarpi Ögmundar Jónassonar og Þuríðar Backman um breytingará 20. grein áfengislaga. Sjá nánar hérhttp://www.althingi.is/altext/138/s/0339.html. Þó svo að núverandi lög séu skýr og ekki síst hinn siðferðilegi boðskapur þeirra þá hefur ákæruvaldið og dómskerfið ekki tekið á þessum málum sem skyldi og það þrátt fyrir að kærur og ábendingar vegna ólöglegra áfengisauglýsinga nemi hundruðum. Dómar eru fjölmargir, dæmi um nokkra þeirra má sjá á heimasíðu Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingumwww.foreldrasamtok.is En betur má ef duga skal og í þeim efnum styrkir frumvarp Ögmundar Jónassonar og Þuríðar Backman sjálfsögð réttindi barna og unglinga til þess að vera laus við gengdarlausan áfengisáróður.

Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum skora á alla alþingismenn hvar í flokki sem þeir standa til að veita þessu frumvarpi brautargengi. Velferð barna- og unglinga er brýnna verkefni en ýtrustu viðskiptahagsmunir áfengisframleiðenda.

Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum

Foreldrar, forráðamenn og aðrir þeir sem bera velferð barna og ungliga fyrir brjósti – Sniðgöngum auglýstar áfengistegundir.

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/foreldrasamtok-gegn-afengisauglysingum-fagna-frumvarpi/