Previous Next

Loksins

Láttu aðra vita

Sjá: https://heimildin.is/grein/26462/loksins-brugdist-vid-broti-a-afengisloggjofnni-smarikid-sektad-fyrir-smasolu/?fbclid=IwY2xjawRFC71leHRuA2FlbQIxMQBzcnRjBmFwcF9pZBAyMjIwMzkxNzg4MjAwODkyAAEepURpqRAVODwjd2moWG-uv3dNlntm1uAzBmu1QawiOTywV76kRxhZhHUszcE_aem_i7z6uPHa4Iq9LQDny6uFWg

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/loksins/

Umsögn: Embætti landlæknis

Láttu aðra vita

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/umsogn-embaetti-landlaeknis/

Tökum afstöðu með börnum og ungmennum

Láttu aðra vita

Dr. Ragný Þóra Guðjonsen tók saman og birti á FB síðu fyrir nokkru þessa athyglisverðu punkta:

„STJÓRNVALDSAÐGERÐIR VIRKA – EKKI HEIMILA NETSÖLU ÁFENGIS

Vegna umræðu um netsölu áfengis tók ég saman niðurstöður nokkurra rannsókna um þetta efni. Það er sem sagt nokkuð skýrt og vel kortlagt að aukið aðgengi að áfengi, þar með vegna netsölu er áhættuþáttur sér í lagi fyrir ungt fólk og þá sem stunda áhættusamar drykkjuvenjur:

Meira aðgengi að áfengi eykur líkur á meiri áfengisneyslu. Morrison, C. N., Byrnes, H. F., Miller, B. A., Wiehe, S. E., Ponicki, W. R., & Wiebe, D. J. (2019). Exposure to alcohol outlets, alcohol access, and alcohol consumption among adolescents. Drug and Alcohol Dependence, 205. 107622.
https://doi.org/10.1016/j.drugalcdep.2019.107622

Markaðssetning áfengis gagnvart ungu fólki eykur líkur á áfengisnotkun þeirra.
Jernigan, D., Noel, J., Landon, J., Thornton, N., & Lobstein, T. (2017). Alcohol marketing and youth alcohol consumption: a systematic review of longitudinal studies published since 2008. Addiction, 112: 7–20. https://doi.org/10.1111/add.13591

Regluverk í kringum netsölu áfengis stenst ekki samanburð við aðgengiskröfur sem eru gerðar í sérstökum áfengisverslunum og eru ófullnægjandi til að vernda aðgengi ungs fólks.
Colbert, S., Wilkinson, C., Thornton, L., Feng, X., & Richmond, R. (2021). Online alcohol sales and home delivery: An international policy review and systematic literature review. Health Policy, 125(9), 1222–1237. https://doi.org/10.1016/j.healthpol.2021.07.005

Hópurinn sem kaupir áfengi á netinu er líklegri til að vera yngri eða að stunda áhættusamar drykkjuvenjur (drekka 6 drykki eða meira í hvert skipti). Líkur á skaða vegna áfengisdrykkju aukast þar sem netkaupin gera kleift að halda áfram drykkju sem ella hefði stöðvast þegar áfengið var búið.
Auðvelt er fyrir ungmenni að komast framhjá aðgengiskröfum við kaupin og algengt er að reglum um aðgengi sé ekki fylgt eftir:
Monjica-Perez Y., Callinan S., Livingston M. Alcohol home delivery services: an investigation of use and risk. 2019. http://fare.org.au/…/Alcohol-home-delivery-services.pdf

Fjöldi sölustaða áfengis þar með á netinu, tengist auknum líkum á því að áfengis sé neytt og hversu oft það er gert. Þessi niðurstaða kom fram óháð ýmsum einstaklingsþáttum og félags-efnahagslegri stöðu. Möguleikar ungs fólks á að útvega sér áfengi aukast við netsölu, meðal annars með því að fá fólk í umhverfinu, vini eða fjölskyldu, til að kaupa áfengið.
Chen, MJ., Gruenewald, P. J., & Remer, L. G. (2009). Does Alcohol Outlet Density Affect Youth Access to Alcohol? Journal of Adolescent Health, 44(6), 582-589.
https://doi.org/10.1016/j.jadohealth.2008.10.136

Hröð þróun netsölu á áfengi er áhyggjuefni og skortur er á regluverki. Staða sem ógnar lýðheilsu þjóða.
Huckle, T., Parker, K., Romeo, J. S., & Casswell, S. (2020). Online alcohol delivery is associated with heavier drinking during the first New Zealand COVID-19 pandemic restrictions. Drug and Alcohol Review, 40(5), 826–834. https://doi.org/10.1111/dar.13222

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/tokum-afstodu-med-bornum-og-ungmennum/

Yfirlýsing forvarnarsamtaka vegna samfélagsumræðu um gildandi áfengisstefnu

Láttu aðra vita

Tilefni yfirlýsingarinnar er að koma á framfæri upplýsingum inn í umræðuna sem nú geisar í samfélaginu og fjölmiðlum um þá opinberu áfengisstefnu sem hefur verið í gildi. Stefnu sem forvarnarsamtök og fleiri telja að yfirvöld hafi leyft markaðsöflum að mylja undan á síðustu árum í mótsögn við áfengislög og samþykkta lýðheilsustefnu Íslands til 2030.

Í rúm 5 ár, eða allt frá kæru ÁTVR til lögreglu þann 16. júní 2020 vegna netsölu innlendra aðila á áfengi, hafa nokkur frjáls félagasamtök átt þétt samstarf um að opna augu stjórnvalda og almennings fyrir mikilvægi þess að klára þá kæru. Félögin telja að fyrirkomulag netsölunnar sé yfirstandandi lýðheilsuógn og ógni vernd barna og ungmenna í landinu.

Félögin eru:

  • Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, forvarnir .is
  • Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, foreldrasamtok.is
  • IOGT á Íslandi, iogt.is og
  • SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum

Niðurstaða bráðlega eftir 5 ára bið

Kæran hefði getað klárast 2020/2021 ef henni hefði verið sinnt, en er ekki enn komin á leiðarenda nú hálfum áratug síðar.

Loks hillir þó undir niðurstöðu því lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kláraði að rannsaka kærumálið í haust sem leiddi til þess að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákærði netsöluaðila til héraðsdóms Reykjaness í september 2025. Aðalmeðferð málsins á að fara fram þann 12. janúar nk. samkvæmt upplýsingum sem leitað var eftir símleiðis hjá dómstólnum.

Hafa framangreind forvarnarfélög leitað til fjölda opinberra aðila og stofnana og m.a. sent erindi til stjórnsýslu- og eftirlitsnefndar Alþingis vegna vinnubragða og seinagangs yfirvalda og ráðherraábyrgðar. Erindið hefur verið tekið fyrir í nefndinni en er enn á hennar borði og hefur ekki hlotið þar niðurstöðu, Hægt er að sjá hluta af þessari vinnu samtakanna á heimasíðum þeirra s.s. forvarnir.is, foreldrasamtok.is og iogt.is.

Breiðfylking heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka standa saman

Samtökin hafa haft forystu um að sem flestir hvetji stjórnvöld til að hafa lýðheilsu, vernd barna og ungmenna og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi í þessu máli. Sú forysta leiddi m.a. til þess að breiðfylking heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka hefur tvívegis gefið út opinberar áskoranir og ráð til yfirvalda. Þær sýna sterka samstöðu sem og þær áhyggjur sem ríkja um málið hjá þessum aðilum. Sjá hér:

Áskorun breiðfylkingar félaga heilbrigðisstétta,
forvarnarsamtaka og fleiri til yfirvalda um að bregðast við yfirstandandi lýðheilsuógn
vegna stóraukinnar netsölu áfengis, 26. ágúst 2024 Áskorun vegna yfirstandandi lýðheilsuógnar – Lyfjafræðingafélag Íslands

Verum hagsýn í ríkisrekstri – sparnaðarráð frá breiðfylkingu heilbrigðisstétta, forvarnasamtaka o.fl. í samráðsgátt 21. janúar 2025 (umsögnin þessara 16 félaga er neðst í fréttinni) Telja ríkið geta sparað milljarða með því að koma í veg fyrir áfengissölu einkaaðila – RÚV.is

Ágeng og herská markaðsöfl

Þá skal bent á að þau markaðsöfl sem nú eru að markaðssetja áfengi gagnvart ungmennum og almenningi í fjölmiðlum, á samfélagsmiðlum, í tengslum við íþróttaviðburði og víðar í samfélaginu, eru ágeng og herská, enda eftir miklum gróða að slægjast. Söluveltan er nú þegar upp á einhverja milljarða miðað við opinber viðtöl við þau öfl Veltir milljörðum á netsölu áfengis – RÚV.is. Almenningur situr svo uppi með reikninginn vegna afleiðinganna eins og allir þekkja. skattfé rennur úr ríkisstjóði til að greiða fyrir þær.

Ráðherrar ofl. segja enga óvissu í lögum, þau séu skýr

Bæði heilbrigðisráðherra í sumar og fjármála- og efnahagsráðherra í gær, hafa sagt að um lögleysu sé að ræða og að það sé ekki óvissa í lögum.

Heilbrigðisráðherra 16. júní 2025. “Ég vil taka fram að ég tel brýnt að tekið sé á þeirri lögleysu sem netsala áfengis er.” Tekur ný ríkis­stjórn af skarið? – Vísir

Fjármála- og efnahagsráðherra 5. janúar 2026. „Álit okkar, dómsmálaráðuneytisins og ytri aðila, er svo að það sé í sjálfu sér engin óvissa og þetta snúist bara um að framfylgja lögunum. Menn geta tekist á um það hvort lögin eigi að vera svona eða einhvern veginn öðruvísi en ég tek ekki undir það að það sé óvissa í lögunum,“ „Stefna Viðreisnar eitt en gildandi réttur annað“

Dómur handan við hornið

Þegar staðan er sú að markaðsöfl klifa á að áfengislög séu óskýr en sitjandi ráðherrar, forvarnarsamtök, lögreglan, ÁTVR og fleiri segja þau skýr, er réttast að bíða niðurstöðu dómstóla sem er loks handan við hornið. Forvarnarsamtök ofl. hafa beðið í 5,5 ár en vita að nú er biðin senn á enda því málið er komið á dómsstólastig.

Tapist málið þarf að taka stokkinn á ný

Út frá lýðheilsusjónarmiðum, verndun barna og ungmenna og sjónarmiðum um samfélaglega ábyrgð er vonast til þess að málið vinnist í dómi. Vilji hinsvegar svo ólíklega til að málið tapist í dómi þarf löggjafinn í framhaldinu að taka stokkinn á ný og gera upp við sig hvort setja eigi nýja áfengislöggjöf sem hafi áfram lýðheilsu, vernd barna og ungmenna og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi, eða láta nýja löggjöf ganga í gagnstæða átt. Forvarnarsamtök treysta á að góð samfélagsleg gildi verði áfram leiðarljósið í framtíðinni.

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/yfirlysing-forvarnarsamtaka-vegna-samfelagsumraedu-um-gildandi-afengisstefnu/

Æskan er okkar fjársjóður

Láttu aðra vita

https://www.visir.is/g/20262824571d/aeskan-er-okkar-fjarsjodur

Um miðjan janúar hefst málflutningur í máli saksóknara gegn hérlendri „erlendri netsölu“ vegna ólöglegrar smásölu áfengis. Dómur ætti að liggja fyrir fljótlega og mun að öllum líkindum staðfesta það sem hefur verið vitað árum saman: að hér er um ólöglega starfsemi að ræða, sem ekki hefur verið brugðist við. Nú þegar hefur Héraðsdómur vísað frá röksemdum er varða ESS saminginn. Kjarni málsins því íslenska áfengislöggjöfin eins og alltaf hefur legið fyrir.

Þetta skýrir þann mikla óróa á opinberum vettvangi þessi dægrin, þar sem sérhagsmunaaðilar halda því fram, statt og stöðugt, gegn betri vitund, að málið sé lagalega óljóst. Sú fullyrðing stenst ekki. Íslensk áfengislöggjöf er afar skýr, einkum fimmti kaflinn, og auðskilin hverri læsri manneskju (1). Lögin eru afdráttarlaus en í ljósi reynslunnar (og fjármagns) munu sérhagsmunaaðilar freista þess að þvæla málinu um dómskerfið (og víðar) eins lengi þeim verður frekast unnt.

Í algjörlega sambærilegu máli hefur Hæstiréttur Svíþjóðar kveðið upp skýran dóm, hinn svokallaða Winefinderdóm (2). Þar kemur fram að innflutningur felist í því að flytja raunverulega inn áfengi frá öðru landi í eigin nafni og til eigin nota,  sem er nákvæmlega sambærilegt og leyft er hérlendis. Það er  heimilt að flytja inn áfengi til eigin neyslu, í eigin nafni og gera skil á tilheyrandi sköttum og gjöldum. Um leið og sala til þriðja aðila fer fram (t.d. af lager/verslun eða hvað nafni sem söluaðilar kunn að kalla rýmið/aðstöðuna eða starfsemina) þá er um smásölu að ræða. Þetta er einfalt, engin geimvísindi og ekkert sem er óskýrt.

Það sem er áhyggjuefni er hinn langi dráttur sem varð á því að yfirvöld tækju á þessari ólöglegu starfsemi. Fyrsta málinu var af Héraðsdómi vísað frá án efnislegrar niðurstöðu, þar sem ÁTVR var ekki talin aðili máls. Þegar að ÁTVR áfrýjar þeirri niðurstöðu til Landréttar þá greip þáverandi fjármálaráðherra (sem ÁTVR fellur undir) inn í málið með yfirlýsingu um að það væri óþarfi, gerði ÁTVR þar með umboðslaust og stöðvaði það ferli, augljóslega vitandi um hver niðurstaðan málsins yrði, málið féll niður. Í kjölfarið liðu rúmlega fimm ár án aðgerða, þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar frá forvarnasamtökum og þeirra fjölmörgu aðila sem vinna að vernd barna og ungmenna, lýðheilsu- og forvarnarmálum. Það var ekki fyrr en í haust eftir rúmlega fimm ára rannsókn lögreglunnar að saksóknaraembættið gaf loksins út kæru í þessu augljósa máli.

Í dag er mikill þrýstingur frá fámennum hópi sérhagsmunaaðila, „erlendra netsala“ um að  afnema lýðheilsu- og forvarnarstefnu sem hefur verið við lýði hérlendis og  almenn sátt hefur ríkt um árum saman. Breytingar í þágu þeirra sem hagnast verulega á þessari starfsemi, leggja takmarkað af mörkum til samfélagsins og ekki í neinu samræmi við þann kostað sem samfélagið ber af afleiðingunum. Sterk teikn eru um aukna neyslu, ekki síst meðal barna og ungmenna. Fyrir liggja bæði beinar og óbeinar sannanir fyrir því að ungmenni geta, í mörgum tilfellum, með einföldum hætti keypt áfengi í gegnum þetta kerfi, þvert á lög. Aukið framboð, gríðarlegur fjöldi sölustaða sem senda heim allan sólarhringinn, alla daga ársins, áfengisauglýsingar, verðstríð m.m.  mun augljóslega hafa afleiðingar, ekki síst gagnvart okkar viðkvæmustu hópum eins og börnum og ungmennum.

Áfengisiðnaðurinn er boðflenna í tilveru barna og ungmenna, sem því miður verður sífellt ágengari. Það er ekki bara gangvart auglýsingum og sölufyrirkomulagi, ýmsar stoðir í okkar annars ágæta lýðheilsu- og forvarnarkerfi veikjast. (Sjá nánar: https://www.visir.is/g/20252803282d/islenska-modelid-i-forvornum-leidarljos-sem-vid-erum-ad-slokkva-a )

Alþingi, stjórnvöld, foreldrar og við sem samfélag þurfum að standa fast gegn ítrustu sérhagsmunum áfengisiðnaðarins og standa vörð um velferð barna og ungmenna. Það er brýnt að halda áfram baráttunni, bæði á pólitíska vettvanginum sem og í öllu lýðheilsu- og forvarnarstarfi. Við getum ekki byggt samfélag á því að ítrustu sérhagsmunaaðilar fari sínu fram í krafti gríðarlegra fjármuna og af algeru virðingarleysi gagnvart almennu siðferði, lögum og reglum samfélagsins.  Æskan er okkar fjársjóður.

Árni Guðmundsson

Félagsuppeldisfræðingur / formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/aeskan-er-okkar-fjarsjodur/

Gleðilegt nýtt ár

Láttu aðra vita

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/gledilegt-nytt-ar-2/

Load more