Félagmiðstöðvar eru merkilegar stofnanir. Menntastofnanir í allra víðtækasta skilning þess orðs. Öruggur staður þar sem ungmennin geta unnið að alskyns hugðarefnum eða bara spjallað saman. Við sem starfseminni tengjumst verðum þeirrar ánægju aðnjótandi að sjá ungmenni blómstra hvert á sinn hátt og á sínum forsendum. Ungmennin eru að fóta sig í þeirri mikilvægu og vandasömu vegferð að verða fullorðinn. Sjálfsefling (e.empowerment) og virk þátttaka á lýðræðislegum forsendum (e. citizenship) eru grunnhugtök í starfseminni. Félagsmiðstöðvar hafa stóran faðm og innan þeirra er rými fyrir ungmenni til þess að gera og sinna alskonar. Tjáning, samskipti, samvinna, fræðsla og sköpun í ýmsu formi, byggt á frumkvæði eða óskum ungmennanna er gott veganesti út í lífið. En félagsmiðstöðvarnar eru ekki einungis uppeldisstofnanir, þær eru ekki síður öryggisventill. Starfsfólk félagsmiðstöðva þekkir vel umhverfi ungmenna, sér, heyrir og eða eru upplýst af ungmennunum þar um. Félagsmiðstöðvar eru því eins og „undanfarar“ í björgunarsveitum, eru fyrstar á staðinn og það sem meira er verða oft fyrst vör við yfirvofandi ógn eða vá.
Því var svo sannarlega að skipta þegar að mér barst til eyrna frá starfsmanni í félagsmiðstöð að margir áfengisframleiðendur/salar væru ítrekað, með öllum tiltækum ráðum, að reyna að koma sér fyrir á samfélagsmiðlasíðum félagsmiðstöðvanna. Lægra verður ekki komst í ólöglegri markaðsetningu, þessir aðilar virða engin mörk, reyna að planta sér inn í nærumhverfi ungmenna, 13- 15 ára barna.
Þetta var mér tilefni til þessa að gera stutta könnun meðal félagsmiðstöðva um ástandið almennt. Einstaklingar frá 30 félagsmiðstöðvum sendu inn svör. Þó svo að fjöldinn sé ekki mikill, þá má fastlega gera ráð fyrir því að svörin endurspegli þá umræðu sem á sér stað meðal starfsmanna í viðkomandi félagsmiðstöðvum (áætl. 150-200 manns). Þessu könnun gefur hins vegar tilefni til frekari rannsóknar á sviðinu en fyllsta ástæða er til þess að taka þær sterku vísbendingar sem hér koma fram af fyllstu alvöru.
Það kemur meðal annars fram að opnunartími félagsmiðstöðva hefur víða minnkað á sama tíma og hópamyndanir í hverfum hafa aukist. Hópamyndun víða er þegar mikil mati aðspurðra. Hún hefur aukist nokkuð eða mjög mikið s.l. 6-18 mánuði, eins og fram kemur á myndunum hér að neðan. Þrátt fyrir ítarlega excel útreikninga um „sparnað“ í þjónustu félagsmiðstöðvanna þá hverfa unglingarnir ekki við það , þau fara bara annað, eins og dæmin sanna. Oft í umhverfi sem hvorki er öruggt né uppbyggilegt, eins og niðurstöður sýna.
Þetta eru ekki góðar aðstæður fyrir ungmenni og á mjög sennilega einhvern þátt í aukinni áfengisdrykkju ungmenna sem vart hefur orðið við eins og nánar verður vikið að. Annar veigamikill þáttur, að mínu mati, er að þetta umhverfi, þessi skerðing, skapar enn frekari forsendur fyrir þá aðila sem sjá börn sem hluta af áfengismarkaðnum. Algjörlega eftirlitslaust umhverfi ungmenna fjarri hinum fullorðnu er kjörlendi fyrir slíka aðila og marga aðra sem við viljum ekki sjá sem hluta af tilveru barna. Nú þegar dynur af miklum þunga alskyns áfengisáróður á börnum, í raun og rafrænu umhverfi, bæði í formi beinna og óbeinna áfengisauglýsinga. Áfengisframleiðendur/salar eyða gígantískum fjárhæðum í að normalisera áfengisneyslu. Börn geta hvergi um frjálst höfuð strokið.
Það kemur því ekki á óvart að áfengisneysla barnanna (13-15 ára) hafi aukist, og aukist mjög verulega, að mati 60.9 % aðspurðra, sem eru sláandi vísbendingar um hvert við stefnum.
Þegar að spurt var um hvar ungmenni nálgist áfengi þá kemur afar skýrt fram að (erlend) netsala áfengis (ólögleg smásala) er nú þegar orðin stór aðili á þessum „markaði“ og hefur auk þess einhverskonar forgjöf frá yfirvöldum, fyrirtækin eru látin algerlega óáreitt meðan að landasalarnir eru stundum gripnir? 30% hafa heyrt um að börn nálgist áfengi í gegnum netsölur sem auk þess eru kolólöglegar sbr. áfengislög. Annað athyglivert er sá fjöldi 13-15 ára barna er nálgast áfengi í gegnum systkini eða ættingja.
Það liggur því miður í hlutarins eðli að ungmennum í áhættuhópum fjölgi þegar að neysla eykst. Næstu tvær myndir sýna sterkar vísbendingar um að sú er raunin.
Af þessu er ljóst að ástandið er ekki gott. Okkur sem samfélagi tekst ekki að búa börnum nægilega öruggt umhverfi og vernd gegn öflum sem hafa engin önnur markið en ítrustu gróðasjónarmið. Áfengisiðnaðurinn og eða áfengissalar geta því huggað sig við það að þeim er að takast það sem flest allir aðrir hafa varað við. Að stuðla að aukinni áfengisdrykkju meðal barna eins og þessar niðurstöður benda ótvírætt til. Smásala áfengis í gegnum net er orðin hluti af tilveru 13-15 ára barna. Þetta er gert í einhverskonar skjóli yfirvalda sem bregðast ekki við? Við hin, meirihlutinn, furðum okkur á algeru dugleysi yfirvalda til þess að standa vörð um augljós og lögvarin réttindi barna til þess að vera laus við gegndarlausan áróður og áreitni áfengisbransans. Þetta nánast algera fálæti yfirvalda hefur skapað aðstæður sem eru fullkomlega óboðlegar, ekki síst út frá barnaverndar – velferðar – og lýðheilsumarkmiðum. Á sama tíma og við drögum úr þjónustu við börnin, ungmennin, er ekkert aðhafst gagnvart ólöglegri markaðsvæðingu og ólöglegri sölu áfengis gagnvart þeim sama hóp. Lögreglan virðist vera í lengsta sumarfríi Íslandssögunnar hvað þessi málefni barna og ungmenna varðar. Á þessum forsendum byggjum við ekki siðað samfélag. Þar sem er reykur þar er eldur … og þegar að svo er þá þurfum við alvöru slökkvilið? Á þessum vettvangi er svo sannarlega rými til framfara.
Forvarnarsamtök afhenda félags- og vinnumarkaðsráðherra áskorun þann 29. apríl 2024. Frá vinstri: Árni Guðmundsson, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, Björn Sævar Einarsson, IOGT, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Árni Einarsson, Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og Aðalsteinn Gunnarsson, IOGT.
Breiðfylking forvarnarsamtaka átti fínan fund með félags- og vinnumarkaðsráðherra þann 29. apríl 2024. Erindið var að ræða félagslegar afleiðingar þess ef netsala áfengis, eins og hún er stunduð á Íslandi, verður látin viðgangast. Samtökin láta sig lýðheilsu og félagslega velferð varða. Þau tala fyrir því að velferð fólks gangi framar ólöglegri markaðsvæddri netsölu áfengis. Um þessar mundir ræða samtökin við forystumenn í stjórnmálum um hvernig tryggja megi að landslögum sé fylgt, ólögleg netsala áfengis stöðvuð og lýðheilsa varin eins og lög gera ráð fyrir.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður VG og félags- og vinnumarkaðsráðherra, tók vel á móti samtökunum. Rætt var um lýðheilsu þjóðarinnar, félagslega velferð og þýðingu hennar í því velsældarhagkerfi sem stefnt er að. Rætt var um hlutverk ÁTVR en hún hefur einkarétt samkvæmt lögum á smásölu og afhendingu áfengis sem byggist á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð. Sýn ráðherra og forvarnarsamtakanna fór saman í öllum atriðum.
Fundað með fleiri í forystu stjórnmálaflokka á næstunni
Á næstunni munu samtökin hitta fleiri ráðherra og forystufólk í stjórnmálaflokkum til að fara yfir málin. Nú þegar er búið að funda með dómsmálaráðherra. Í lok fundar afhentu samtökin ráðherra gögn. Einnig var afhent áskorun til alþingismanna frá 13. febrúar 2024 um að standa vörð um lýðheilsu og einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis.
Dómsmálaráðherra gefur boltann á fjármálaráðherra Dómsmálaráðherra gefur boltann á fjármála- og efnahagsráðherra í nýju svari til forvarnarsamtaka við fyrirspurn þeirra. Forvarnarsamtök sendu samhljóma fyrirspurnir á dómsmálaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra þann 27. mars 2024 um athafnaleysi ráðherra og ráðherraábyrgð vegna ólöglegrar netsölu áfengis. Í svari dómsmálaráðherra segir „Vegna þeirrar netsölu sem vísað er til í erindinu hefur áfengis- og tóbaksverslun ríkisins höfðað dómsmál á hendur tveimur fyrirtækjum. Málunum var vísað frá héraðsdómi og hefur hvorki ÁTVR né fjármálaráðherra hafst frekar að, eftir því sem næst verður komið.“
Beðið svara við fyrirspurn um athafnaleysi og ráðherraábyrgð Forvarnarsamtök hafa komið því á framfæri um skeið að hið ólöglega ástand hefur varað í nokkur ár. Samkvæmt lögum hefur ÁTVR einkarétt á sölu og afhendingu áfengis í smásölu á Íslandi. Nokkrir netsalar selja og afhenda áfengi til neytenda hérlendis á innan við 30 mínútum eftir að pantað er. Áfengið er selt af lager sem er hér innanlands. Þannig er komið á markaðsdrifnu ástandi í sölu áfengis á Íslandi þvert á gildandi lög. Netsalarnir hafa ekki leyfi sýslumanns til þessarar sölu eins og lög, sem falla undir dómsmálaráðherra, gera ráð fyrir. ÁTVR kærði hina ólöglegu netsölu í júní 2020 til lögreglu. Lögreglan hefur ekki afgreitt kæruna þrátt fyrir að hafa haft málið á borðinu í tæp 4 ár. Dómsmálaráðherra er sama um þetta ástand og heldur á lofti að stefnt sé að lagabreytingum til að heimila hina ólöglegu sölu. Ekki er samstaða um slíkar breytingar á stjórnmálavettvangi og því orð dómsmálaráðherra, um að yfirvofandi sé heimild til smásölu áfengis á netinu, innantóm. Við þessari stöðu þarfa að bregðast. Sem stendur hefur forvarnarsamtökunum ekki borist svar frá fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn um athafnaleysi og ráðherraábyrgð.
Mjög mikil fjöldi ungmenna á aldrinum 13- 16 ára sækir félagsmiðstöðvar – Þar fer fram mikið og gott starf. Ungmennin finna sér alls konar verkefni við hæfi eða kíkja bara til að hitta önnur ungmenni í öruggu og uppbyggilegu umhverfi. Sjálfsefling og virkni eru leiðarstef í allri starfseminni. Þátttaka í starfinu er þroskandi og reynslan sem þar fæst gott veganesti (menntun) inn í fullorðinsárin.
Flestar félagmiðstöðvar eru virkar á samfélagsmiðlum. Þar eru unglingarnir en þar eru því miður stundum „aðrir“. Unglingar fá engan frið fyrir áfengisbransanum eins og þetta skjáskot sýnir. Á meðan ekkert er gert í ólöglegum áfengisauglýsingum, ólöglegri áfengissölu og „markaðsátaki“ eins hér má sjá, þá er staðan einfaldlega sú að með algeru fálæti yfirvalda er í raun búið að gefa „skotveiðileyfi“ á æsku landsins.
Er ekki löngu komin tími til að taka á þessari ömurlegu vitleysu?
Erindi til dómsmálaráðherra um athafnaskyldu ráðherra.
Erindi þetta er sent til að leita skriflegra svara við því af hverju ráðherra hefur ekki brugðist við þeirri ólöglegu netsölu áfengis sem fram hefur farið í landinu um langt skeið. Sú netsala sendir áfengi heim til einstakra neytenda á innan við 30 mínútum úr vöruhúsi sem er innanlands og er því smásala í samkeppni við ÁTVR og á skjön við lög á málefnasviði ráðherra. Netsalar þessir hafa ekki leyfi til smásölu áfengis. Neytendur geta einnig sótt vöruna beint í vöruhúsið og fengið hana afhenta þar, en slíkt er einnig á skjön við lög á málefnasviði ráðherra. Langt skeið hefur liðið án viðbragða ráðherra við þessari ólöglegu framkvæmd.
Samkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands nr. 115/2011 bera ráðherrar ábyrgð á málefnasviðum sínum. Ráðherrar bera athafnaskyldu gagnvart því að farið sé að lögum á málefnasviðum sem undir þá heyra. Þeim ber með öðrum orðum lagaleg skylda til viðbragða ef lögum er ekki framfylgt. Málið er mikilvægt fyrir hagsmuni alls almennings að okkar mati. Við bendum því einnig á lög um ráðherraábyrgð nr. 4/1963. Þar segir að krefja megi ráðherra ábyrgðar fyrir sérhver störf eða vanrækt starfa, er hann hafi orðið sekur um, ef málið er svo vaxið, að hann hafi annaðhvort af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi farið í bága við stjórnarskrá lýðveldisins eða önnur landslög. Nánari upplýsingar um mál þetta eru hér.
Sem fyrr segir er óskað skriflegra skýringa á athafnaleysi ráðherra á málefnasviði sínu. Með fyrir fram þökkum,
Árni Einarsson, framkvæmdastjóri Fræðslu og forvarna-félags áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Árni Guðmundsson, formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, Aðalsteinn Gunnarsson framkvæmdastjóri IOGT og Hildur Helga Gísladóttir, fulltrúi SAFF-Samstarfs félagasamtaka í forvörnum.
Sambærilegt erindi var sent fjármála- og efnahagsráðherra.
Forvarnarsamtök afhenda dómsmálaráðherra áskorun þann 14. mars 2024 um að staðinn verði vörður um lýðheilsu og einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis. Frá vinstri: Aðalsteinn Gunnarsson, IOGT, Björn Sævar Einarsson, IOGT, Árni Einarsson, Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Árni Guðmundsson, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, Hildur Helga Gísladóttir, SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum og Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra.
Breiðfylking forvarnarsamtaka ræðir við ráðherra um lýðheilsu og ólöglega netsölu áfengis
Þann 14. mars 2024 átti breiðfylking forvarnarsamtaka fund með dómsmálaráðherra til að undirstrika að lýðheilsa gangi framar markaðsvæddri netsölu áfengis. Óskað var eftir að ræða hvernig tryggja megi að landslögum sé fylgt og lýðheilsa varin eins og lög gera ráð fyrir. Á fundinum voru fulltrúar Samtakanna Fræðslu og forvarna-félags áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum, en sömu samtök stóðu að málþingi um lýðheilsu og áfengi þann 13. febrúar 2024 (upptaka af málþingi).
Áfengi sent heim á nokkrum mínútum í ólöglegri samkeppni við ÁTVR
Samtökin hafa áhyggjur af því að ekki skuli vera farið að landslögum hvað varðar rekstur netsölu með áfengi á Íslandi. Sú netsala sendir áfengi heim til einstakra neytenda á innan við 30 mínútum úr vöruhúsi sem er innanlands og er því smásala í samkeppni við ÁTVR. Neytendur geta einnig sótt vöruna beint í vöruhúsið. Í svari dómsmálaráðherra til Alþingis þann 11. desember 2023 er staðfest að slík sala sé ólögleg m.a. með staðfestingu á fyrri túlkun ráðuneytisins á lögunum frá 4. desember 2015 og tilkynningu um að til standi að lögleiða söluna. Netsalan fer því ekki fram í lagalegu tómarúmi eins og netsalarnir hafa reynt að halda á lofti.
Samtökin styðja gildandi lýðheilsustefnu og hafna að smásala í gegnum netið verði lögleidd
Ráðherra vill lögleiða heimild til reksturs innlendra vefverslana með áfengi í smásölu til neytenda eins og fram kom í ofangreindu svari ráðherra til Alþingis og leggja ÁTVR niður. Forvarnarsamtökin komu því á framfæri að þau hafna slíku. Lögleiðing væri kúvending á gildandi stefnu þar sem einkasala ríkis á áfengi er fyrirkomulag til að takmarka og stýra aðgengi að áfengi til að draga úr skaðlegum áhrifum og vernda ungt fólk gegn neyslu. Þá væri slíkt í hrópandi mótsögn við lýðheilsustefnu stjórnvalda til 2030 sem samþykkt var samhljóða á Alþingi nýlega. Þar segir m.a. að Íslendingar verði meðal fremstu þjóða í lýðheilsustarfi sem byggist á bestu vísindaþekkingu og reynslu. Þar segir einnig að stjórnvöld skuli hafa lýðheilsu að leiðarljósi við alla áætlanagerð og stefnumótun.
Einkasala ÁTVR er sterkasta forvörnin ásamt verðlagningu
Vitað er að einkasala ríkis á áfengi er ein virkasta forvörnin ásamt verðlagningu eins og vísindarannsóknir hafa sannað. Þess vegna er ekkert tilefni fyrir tilslökun við að halda fast í gagnreynda áfengisstefnu eins og WHO bendir á í nýlegu bréfi til heilbrigðisráðherra þann 18. júlí 2023. Á fundinum drógu forvarnarsamtökin fram að gildandi lög og stefnur hafa lýðheilsu og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi. Slík rök vegi meira en markaðsvæðing áfengissölu með tilheyrandi samkeppni um að selja sem mest áfengi til sem flestra. Verði netsmásalan lögleidd falla því lýðheilsurök Íslands um að einkasala ÁTVR í smásölu sé grundvölluð á lýðheilsu og gangi því upp innan EES/ESB svæðisins.
Ráðherra ræður ekki einn
Samtökin bentu á að þótt ráðherra vonist eftir lagabreytingum í framtíðinni er ekki búið að breyta lögunum enn. Lögin standa. Dómsmálaráðherra ræður ekki einn. Ekkert bendir til þess að lögunum verði breytt á næstunni. Bæði heilbrigðisráðherra sem og varaformaður þingflokks Vinstri grænna og formaður velferðarnefndar Alþingis styðja ekki lögleiðingu smásölu áfengis í gegnum netið. Heilbrigðisráðherra vill þvert á móti herða reglur um áfengissölu. Raunveruleikinn veldur að sjálfsögðu netsölunum hugarangri eins og fram kom í erindi Félags atvinnurekenda til stjórnvalda árið 2021. Raunveruleikinn er sá að ólöglegar netsölur áfengis starfa nú óáreittar í trássi við einkaleyfi ÁTVR á smásölu og afhendingu áfengis á Íslandi. Þeim hefur stórfjölgað og eru nú 15-20 talsins að talið er. Slík staða er óásættanleg. Með þessum hætti er ekkert gefið fyrir lýðheilsu og forvarnir.
Netsala áfengis til ungmenna og eldri borgara
Samtökin telja að netsala áfengis beinist mest að tveimur hópum, eldri borgurum og ungmennum. Samtökin hafa áhyggjur af því að sá góði árangur sem náðst hefur varðandi ungmenni með “íslensku leiðinni“ glutrist niður. Íslenska leiðin felur í sér tvær stoðir. Þær eru takmarkað aðgengi að áfengi með einkasölu ÁTVR ásamt framúrskarandi og faglegu tómstunda- og íþróttastarfi. Ekki má kippa annarri stoðinni undan. Þá eru áhyggjur af vaxandi áfengisneyslu eldra fólks.
Beðið árum saman eftir niðurstöðu lögreglu
Vitað er að ÁTVR kærði netsölu þann 16. júní árið 2020 til lögreglu. Lögreglan hefur ekki komist að niðurstöðu í málinu þótt bráðlega séu liðin fjögur ár. Engar haldbærar skýringar hafa komið fram á þeim drætti. Forvarnarsamtökin hafa viðað að sér gögnum um netsölu áfengis frá ráðuneytum og stofnunum á grundvelli upplýsingalaga. Meðal þeirra gagna er minnisblað lögmannsstofu, unnið fyrir ÁTVR, um dóm Hæstaréttar Svíþjóðar í Winefinder málinu sem féll 7. júlí 2023. Í minnisblaðinu er dómurinn, sem fjallaði um netsölu áfengis, rakinn og komist að þeirri niðurstöðu að „Netsalarnir sem selja áfengi á íslenskum markaði selja vörur sem hafa þegar verið fluttar inn til landsins og tollafgreiddar. Slík sala er smásala hér á landi sem brýtur gegn einkarétti ÁTVR til smásölu áfengis og er því ólögleg.“
Beðið eftir Godot
Forvarnarsamtökin og fleiri lýðheilsuþenkjandi aðilar hafa reynt að fá svör frá stjórnsýslunni, sem helst tengist þessum málum, svo brugðist verði við þeirri ólögmætu stöðu sem nú er uppi. Hvorki lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Halla Bergþóra Björnsdóttir, dómsmálaráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, Umboðsmaður Alþingis, Skúli Magnússon, Ríkissaksóknari, Sigríður J. Friðjónsdóttir, né aðrir hafa enn brugðist við. Enginn tekur á þessu máli. Stjórnsýslan hefur ekki í áravís brugðist við þessari stöðu. Í réttarríki á ekki að þurfa að bíða eftir að lögum sé fylgt.
Í lok fundar afhentu samtökin ráðherra framangreind gögn. Einnig var afhent áskorun til alþingismanna frá 13. febrúar 2024 um að standa vörð um lýðheilsu og einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis.
Meðfylgjandi minnisblað um dóm hæstaréttar Svíþjóðar sýnir ótvírætt að fyrirkomulag “erlendrar netsölu áfengis” hér á landi er bara orðhengilsháttur og útúrsnúningar sem hefur ekkert með erlendan innflutning til einkanota að gera. Hérlendis er einfaldlega um að ræða ólöglega smásölu áfengis.
Í Fréttablaðinu um daginn var harmsaga, framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar bar sig illa vegna ómerkilegra og villandi auglýsinga samkeppnisaðilans Vífilfells. Fréttin var svona:
“Appelsín við fyrstu sýn
Vífilfell setti nýlega á markað nýjan gosdrykk sem ber heitið Hátíðar appelsín.Umbúðirnar eru með svipuðu sniði og Appelsínið frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar, Egils appelsín. Yfir hátíðarnar tíðkast sá siður hér á landi að blanda saman appelsín og Malt Extract, drykkir sem voru fyrst um sinn einungis framleiddir af Ölgerðinni. Ein af auglýsingum fyrirtækisins yfir hátíðarnar ber yfirskriftina: „Ást við fyrstu sýn, Egils malt og appelsín.“ Vífilfell hefur nú tekið vörumerki hins nýja Hátíðar appelsíns skrefinu lengra, þar sem slagorð drykkjarins er: „Þú sérð það strax, við fyrstu sýn, að þetta er Hátíðar appelsín.“ Gunnar B. Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar, segist vona að neytendur sjái hversu augljóslegt það sé að verið sé að reyna að plata þá með svo keimlíkri markaðssetningu. „Samkeppni er vissulega af hinu góða, en neytendur verða að átta sig á því hvað þeir eru að kaupa,“ segir Gunnar. Ölgerðin hefur sett málið í hendur Neytendastofu og eru lögfræðingar þeirra einnig að skoða málið. „Aðalmálið fyrir okkur er að upplýsa neytendur,“ segir Gunnar.”
Allt eru þetta góð og gild rök og óskandi að ákafi og sterk réttlætiskennd forstjórans gildi einnig í markaðsátaki Ölgerðarinnar (og reyndar Vífilfells einnig) á áfengi t.d. varðandi hinar sk. “léttöls” auglýsingar. Öll rök forstjórans virka ágætlega gagnvart því og væri því ekki ráð fyrir forstjórann að ganga fram með góðu fordæmi og fara eftir því sem hann segir sjálfur. Nema kannski að viðkomandi “taki Ragnar Reykás á þetta”. Hitt gæti þó orðið öllu verra ef Vífilfell auglýsti “létt” Hátíðarappelsín. Dómkerfið er svakalega svag fyrir slíku og hefur nýtt þetta misnotaða viðskeyti sem lögfræðilegt skálkaskjól til að vísa frá augljósum lögbrotum sbr. “létt”öl sem er ekki til í annari mynd en áfengi og hvað þá sem íslenskt hugtak yfir áfengislausa drykki.
Embætti ríkissaksóknara fellir niður rannsókn á áfengisauglýsingum á Þjóðhátíð í Eyjum 2010?
Foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsingum bárust fjöldi ábendinga um áfengisauglýsingar í tengslum við hátíðina. Ábendingum var komið á framfæri við sýslumanninn í Vestmanneyjum sem sá enga ástæðu til aðgerða? Vakti mikla undrun Foreldrasamtakanna enda í hróplegu ósamræmi við þær upplýsingar sem við höfum frá fjölda fólks sem þarna var statt og hefur sent okkur ábendingar. Annað varðandi þessa meintu rannsókn er hæfi þess lögreglumanns sem f.h. sýslumanns rannsakaði málið en viðkomandi er félagsmaður og fyrrum leikmaður ÍBV sem er aðili að hátíðinni. Það sem síðan gerir málið öllu verra er að ríkissaksóknari gerir, eftir áfrýjun af hálfu Foreldarsamtaka gegn áfengisauglýsingum, álit viðkomandi að sínu sbr meðfylgjandi bréf. Foreldarsamtök gegn áfengisauglýsingum íhuga stjórnsýslukæru af þessu tilefni enda með ólíkindum hvers lags lausatök hafa verið viðhöfð að hálfu viðkomandi embætta í eins augljósu máli og hér um ræðir.
Fyrstu viðbrögð Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum var eftirfarandi póstur til embættis ríkissaksóknara
“Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum undrast þessa niðurstöðu embættisins vegna áfengisauglýsinga á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 2010. Það liggja fyrir vitnisburðir fjölda fólks um áfengisauglýsingar út um allt svæðið m.a . skjáauglýsingar sem voru skýlaus brot á 20 gr. áfengisalaga, auglýsingum þar sem í engu var hirt um að koma þessu orðskrípi „léttöl“ fyrir. Hitt er svo annað mál að orðið léttöl, í illlæsilegu og smáu letri, oft nánast samlitu bakgrunni, séu talin gild rök til frávísunar máls, en ekki meðhöndlaður sem augljós og saknæmur útúrsnúningur á 20 gr. áfengislaga þar sem m.a.segir: „enda megi augljóst vera að um óáfenga drykki sé að ræða í skilningi laganna og ekki vísað til hinnar áfengu framleiðslu.“ Þessi tiltekni framleiðandi leggur akkúrat enga áherslu á að selja þetta „léttöl „ enda er það í besta falli illfáanlegt. Öll framsetning auglýsinganna, myndmál, letur, litir og orðfæri vísa til hinnar áfengu framleiðslu.
Hugtakið „Léttöl“ er auki þess hvergi skilgreint sem sérstakt íslenskt hugtak yfir óáfenga drykki nema hjá áfengisframleiðendum, lögreglustjóraembættum, ríkissaksóknara og dómskerfinu og sorglegt það skuli í þeim skilningi vera orðið lögfræðilegt skálkaskjól . Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum skora á embættið að endurskoða þessa afstöðu sína enda ljóst að einungis var tekið á tilteknum atriðum og hluta þeirra brot sem þarna voru framin og málavextir fjarri því kannaðir til hlítar.
f.h Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum.
Árni Guðmundsson
formaður
Sú hugmynd að foreldrar geti komið í veg fyrir neikvæðar afleiðingar áfengisneyslu með því að kaupa áfengi fyrir börn sín á ekki við nein rök að styðjast. Þetta segir Kjartan Ólafsson, lektor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri. Þau ungmenni sem keypt er fyrir eru líklegri til að drekka meira og lenda í vandræðum.
Kjartan hélt erindi á ráðstefnu um íslenskar æskulýðsrannsóknir í gærmorgun. Fjallaði hann um uppruna áfengis sem unglingar drekka og tengsl við drykkjumynstur þeirra. „Ég skoðaði fyrst og fremst hvort foreldrar geti komið í veg fyrir að unglingarnir drekki heimabrugg, smyglað áfengi eða álíka, með því að kaupa áfengi fyrir þá sjálfir. Meginniðurstaðan er sú, að það virkar ekki þannig. Ungmenni sem eiga foreldra sem kaupa fyrir þau áfengi eru einnig líklegri til að fá áfengi eftir öðrum leiðum,“ segir Kjartan en könnunin beindist að nemendum í tíunda bekk grunnskóla, þ.e. 15-16 ára unglingum.
Lenda í vandræðum
Af þeim ungmennum sem höfðu einhvern tíma orðið drukkin árið á undan voru 13% sem áttu foreldra sem keypt höfðu fyrir þau áfengi. Langalgengast var hins vegar að unglingarnir kæmust yfir áfengi í gegnum vinskap, t.d. að einhver eldri færi í Vínbúðina fyrir þá. Um þrjátíu prósent þeirra sem höfðu orðið ölvuð drukku heimabruggað áfengi.
Ekki nóg með að þau ungmenni sem fengið höfðu áfengi hjá foreldrum sínum drykkju meira heldur voru þau mun líklegri til að lenda í alls kyns vandræðum. „Viðkomandi unglingar voru fjór- til fimmfalt líklegri til að lenda á slysadeild vegna drykkjunnar, tvöfalt líklegri til að lenda í slagsmálum og þrefalt líklegra var að einhverju hefði verið stolið af þeim vegna drykkjunnar. Það eru því allar tegundir vandræða sem ungmennin í hópnum sem foreldrar keyptu áfengi fyrir voru líklegri til að lenda í.“
Áhugavert fyrir foreldra
Að mati Kjartans er hugsanlegt að það séu þau skilaboð sem foreldrarnir senda börnunum sínum sem hafi þessi áhrif. „Ekki er hægt að segja að ungmennin drekki meira eða lendi í vandræðum vegna þess að áfengi er keypt fyrir þau. En með því að kaupa fyrir þau áfengi eru foreldrarnir að viðurkenna að það sé hluti af þeirra lífi að drekka áfengi. Það eru mjög sterk skilaboð og leiðir hugsanlega til þess að unglingarnir drekka meira og lendi því frekar í vandræðum.“
Kjartan segir að niðurstöðurnar ættu að vera mjög áhugverðar fyrir foreldra sem velta fyrir sér hvort ekki sé betra að kaupa sjálf áfengi fyrir börn sín en að þau nálgist það eftir öðrum leiðum. „Þeir krakkar eru líklegri til að ná sér í áfengi eftir öllum öðrum leiðum. Líklegri til að fá einhvern til að kaupa fyrir sig og drekka heimabrugg. Það sem foreldrarnir kaupa virðist vera lagt í púkkið.“
Æskulýðsrannsóknir
» Kjartan studdist við evrópsku vímuefnakönnunina sem Ísland hefur verið aðili að frá upphafi, árinu 1995.
» Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri og Æskulýðsráð í samvinnu við Tómstunda- og félagsmálafræðibraut Menntavísindasviðs Háskóla Íslands stóðu að ráðstefnunni í gærmorgun.
Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/afengiskaup-foreldra-vi%c3%b0bot-vi%c3%b0-a%c3%b0ra-drykkju/
Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum fagna frumkvæði ráðherra heilbrigðis- og dómsmála um að skerpa verulega á 20. grein áfengislaga um bann við áfengisauglýsingum. Þó svo að lögin sé að mati flestra afar skýr og ekki síst hinn siðferðilegi boðskapur laganna þá hafa mörg fyrirtæki virt slíkt að vettugi og farið fram með þeim hætti í áfengisauglýsingum að flestu fólki ofbýður. Markhópur áfengisauglýsenda eru börn og ungmenni eins og dæmin sanna, sem gengur algerlega þvert að markmið foreldrasamfélagsins sem er m.a. að halda grunnskólanum vímuefnalausum og draga almennt úr neyslu áfengis meðal barna og unglinga.
Bann gegn áfengisauglýsingum snýst um vernd barna og ungmenna og rétt þeirra til þess að vera laus við eins ómerkilegt áreiti og áfengisauglýsingar eru. Lögin snúast því um velferð æskunnar og réttindi hennar fremur en ítrustu viðskiptasónarmiða áfengisframleiðenda og sala.
Ráðherrarnir Álfheiður Ingadóttir og Ragna Árnadóttir og Ríkisstjórn Íslands hafa með boðuðum breytingum í formi frumvarps á haustþingi sýnt afar gott fordæmi og ekki síst í verki tekið einarða afstöðu með sjálfsögðum réttindum barna og ungmenna. Þessu ber að fagna og það er von Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum að vel takist til.
Foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsingum hefur borsit fjöldi ábendinga og kvartanna vegna heilsíðu áfengisauglýsingar Golfsambands Íslands í Fréttablaðinu 28/8 2010. Í áfengisauglýsingunni eru okkar helstu afreksmönnum í golfi og afrekum þeirra jafnað við “verðlaunaða” áfengisframleiðslu viðkomandi fyrirtækis! Kostaður áróður eins og áfengisauglýsingar um “eigið ágæti” og íþróttaafrek eiga akkurat ekki neitt sameiginlegt.
Áfengisauglýsingin er merkt Golfsambandi Islands og unnin af auglýsingarstofunni Fíton og auglýsir áfengi frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hafa sbr bréf hér að neðan óskað eftir því að lögreglustjóraembættið á höfuðborgarsvæðinu taki þetta þetta mál til formlegrar meðferðar.
Hafnarfirði 28.ágúst 2010
Lögreglustjórinn á Höfuðborgarsvæðinu
Í Fréttablaðinu í dag 28.ágúst, í íþróttaopnu blaðsins, á síðu 57, heilsíðuáfengisauglýsing frá Golfsambandi Íslands þar sem það mærir af ákafa margverðlaunaða áfengistegund fyrirtækisins Egils Skallagrímssonar eins og berlega kemur fram í auglýsingunni m.a. Australian international BERR award 2008 svo ekki sé minnst á World Beer cup 2008. Allt myndmál auglýsingarinnar sem og texti vísar fyrst og fremst til hinnar áfengu framleiðslu fyrirtækisins. Umbúðir eru nákvæmlega þær sömu og gefur að líta í verslunum ÁTVR. Allt efni þessarar auglýsingar vísar því til þess að Golfsamband Íslands, sem auglýsenda í þessu tilfelli, getur ekki að sannað að hér sé um „léttöl“ að ræða þó svo að því orði sé komið fyrir af mikill hógværð og algerlega úr samhengi við allt annað í þessari áfengisauglýsingum. Það því mati Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum að engin vafi leiki á að hér er um skýlaust brot á 20 gr. áfengislaga að ræða. Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum óska því eftir að embætti yðar taki þessa ábendingu til formlegrar meðferðar.Börn og ungmenni eiga lögvarðan rétt á því að vera laus við áfengisauglýsingar og ekki síst af aðilum innan íþróttahreyfingarinnar eins og því miður er raunin í þessu tilfelli.
Virðingarfyllst
Árni Guðmundsson form Foreldrasamtök gegnáfengisauglýsingum
RÚV tekst með einstaklega óviðeigandi hætti að spyrða saman heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu og áfengisauglýsingum. Foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsingum hafa borist mjög margar kvartannir vegna þessa framferðis RÚV síðustu vikurnar. Foreldrasamtökin hafa marg bennt á þessa lögleysu, bæði með bréfum til RÚV sem og með og ábendingum og tilkynningum til lögreglustjóra.
Allmargar ábendingar bárust þegar að þáttastjórnanda Betri stofunnar sá ástæðu til þess að vekja sérstaka athygli á snöggum viðbrögðum áfengisframleiðenda við lúðrum á HM með framleiðslu á áfengisauglýsingu, teiknimynd þar sem einhver björn treður lúður inn í sel? og sýndi í kjölfarið áfengiauglýsinguna (án hins friðþægandi útúrsnúnings að mati áfengisframleiðenda “léttöls”) í miðjum þætti og svo auðvitað í sí og æ eftir það.
Nú er svo komið að Ölgerðin nennir ekki einu sinni að setja inn í sekundubrot í auglýsingarnar orðið “léttöl” í lítilli og óljósri starfagerð sbr auglýsingu í leikhléi í gær 7/7 kl 19:30 og svo hitt að RÚV hirðir ekki lengur um að athuga hvað þeir senda út. Að sjálfsögðu var tafarlaust send ábending til þess bærra aðila. Það er því augljóst að Ölgerð Egils Skallagrímssonar fær enn einn dóminn (ef ekki tvo) á sig innan tíðar vegna brota og svo þarf útvarpsstjóri að svara fyrir og sæta ritstjórnarlegri ábyrgð. Telur útvarpsstjóri að þessar endalausu áfengisauglýsingar á RÚV séu í þágu hans umbjóðenda sem eru ekki síst börn og unglingar í landinu.
20. gr áfengislaga er afar skýr sem og siðferðilegur boðskapur laganna – Það alveg einstaklega óviðeigandi að RÚV fari ekki eftir þessum lögum en veiti þessi í stað áfengisframleiðendum óheftan aðgang að sínum mikilvægasta markhóp börnum og unglingum með endalausum áfengisauglýsingum í þáttum eins og t.d. HM.
Þessi vefsíða notar "vafrakökur" til að auðvelda aðgengi að vefnum. Við reiknum með að þú sért sammála því en þú getur afþakkað þáttöku ef þú vilt. Vafraköku stillingarÍ lagi
Vafraköku skilmálar
Vafrakökur
Þessi vefsíða notar vafrakökur til að bæta upplifun þína við að skoða vefsíðu okkar. Af þessum vefkökum eru vefkökur sem eru taldar nauðsynlegar vistaðar af vafranum þínum og eru til að síðan virki eins og hún þarf. Við notum líka aðrar kökur sem hjálpa okkur að greina og skilja hvernig þú notar vefinn. Þær eru vistaðar aðeins með þínu leyfi. Þú getur skráð þig út úr notkun á þeim vefkökum. Með því að leyfa ekki notkun á sumum þessum vefkökum þá getur þín upplifun af notkun vefsins breyst .
Sumar vefkökur eru nauðsynlegar fyrir þig fyrir til að nota alla eiginleiga síðunnar. Þær gera mögulegt að fylgjast með öryggis ógnum. Þær skrá engar persónulegar upplýsingar.
Þessar vefkökur vista upplýsingar um fjölda heimsókna, fjölda einstakra notenda, hvaða síður hver og einn skoðar og hvaða notandi kemur. Þessar upplýsignar hjálpa okkur til að skilja og greina hve vel síðan virkar og hvað er hægt að lagfæra. Okkar vefsíða sýnir ekki auglýsingar eða skráir vefkökur tengdar auglýsingum.
Virkni: Þetta eru vafrakökur sem hjálpa ákveðinni virkni sem ekki er nauðsynleg á vefsíðu okkar. Þessir virkni fela í sér að fella inn efni eins og myndskeið eða deila efni vefsíðunnar á samfélagsmiðla.
Afkasta vafrakökur eru notaðar til að skilja og greina helstu árangurstölur vefsíðunnar sem hjálpa til við að skila betri notendaupplifun fyrir gestina.
Tölfræði: Þessar vafrakökur vista upplýsingar eins og fjölda heimsókna, fjölda einstakra gesta, hvaða síður eru skoðaðar, hvaðan gesturinn kemur og fleira. Þessar upplýsingar hjálpa okkur að skilja og greina hversu vel vefsíðan stendur sig og hvað þarf að bæta .