Dómur gegn Smáríkinu fyrir brot á áfengislöggjöfinni
Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 8. apríl 2026
Mál nr. S-1780/2025:
Ákæruvaldið (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X X X forsvarsmanni Smáríkisins * (*breytt FGÁ . nafn tekið út – titill settur inn. ) (Ólafur Eiríksson lögmaður)
I.Dómur:
Mál þetta, sem dómtekið var 19. mars 2026, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 16. júní 2025, á hendur ákærða X X X* , kt. 000000-0000, […], […].
Málið er höfðað á hendur ákærða fyrir brot gegn áfengislögum með því að hafa, sem stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og daglegur stjórnandi í Kjútís ehf., kt. 000000-0000 og daglegur stjórnandi í Icelandic Trading Company b.v., kt. 000000-0000, þann 30. maí 2024, selt einn 3000 ml hvítvínsbelg af tegundinni BiB Frontera Chardonnay, með 11% áfengisinnihaldi, fyrir kr. 6.898, í smásölu til tilgreinds einstaklings, í gegnum vefsíðuna www.smarikid.is, sem starfrækt er af félaginu Icelandic Trading Company b.v., en ákærði var þá skráður rétthafi lénsins, en áfengið var afhent sendli á vegum Wolt, sem fór með áfengið til umrædds einstaklings í kjölfar þess að viðkomandi hafði innt af hendi greiðslu fyrir áfengið og sendingarkostnað í gegnum greiðslugátt á vefsíðunni klukkan 15:10 þann 30. maí 2024 en umrædd smásala áfengisins var liður í atvinnustarfsemi beggja félaganna. Félagið Kjútís ehf. hafði keypt áfengið af áfengisheildsala á Íslandi á grundvelli tímabundins leyfis til heildsölu áfengis og geymdi það á starfsstöð sinni að Fellsmúla 24 í Reykjavík þar til áfengið var selt og afhent umræddum einstakling en framangreind viðskipti fóru fram án þess að ákærði og félögin sem hann veitti fyrirsvar hefðu leyfi til smásölu áfengis á Íslandi á umræddu tímabili. Þannig flutti Icelandic Trading Company b.v. áfengið ekki til Íslands í kjölfar pöntunarinnar í gegnum vefsíðuna heldur hafði milligöngu um smásölu áfengis sem Kjútís ehf. hafði þegar keypt hjá áfengisheildsala á Íslandi og hafði í geymslu á starfsstöð sinni. Með framangreindum hætti braut ákærði gegn einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins til smásölu áfengis á Íslandi.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 4. gr., 2. mgr. 9. gr., 1. mgr. 10. gr., sbr. 1. og 4. mgr.
gr. áfengislaga nr. 75/1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Í ákæru og rannsóknargögnum málsins kemur fram að Smáríkið sé með starfsstöð að Fellsmúla 24 en það á líklega að vera Fellsmúli 26, sbr. heimasíðu Smáríkisins. Þetta breytir því ekki að dómur verður lagður á málið enda varð vörn ákærða ekki áfátt vegna þessa, sbr. 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Ákærði fór fram á það að leitað yrði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins um skýringu á þeim atriðum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókunum með honum, viðaukum við hann eða gerðum (,,EES-samningurinn“) sem taka þyrfti afstöðu til við úrlausn þessa máls. Með úrskurði dómsins 19. nóvember 2025 var þessari beiðni ákærða hafnað og var sú niðurstaða staðfest af Landsrétti 26. sama mánaðar (mál nr. 820/2025).
II Málavextir. Samkvæmt upplýsingaskýrslu lögreglu voru lögreglumenn við eftirlit við starfsstöð Smáríkisins við Fellsmúla 26 í Reykjavík um hádegi fimmtudaginn 23. maí 2024. Þar urðu þeir m.a. vitni að því að ung stúlka bar þar út í bifreið marga kassa af bjór og aðstoðaði starfsmaður Smáríkisins hana við það. Fullorðinn karlmaður fór einnig þaðan út með áfengi og nokkrir aðilar til viðbótar komu að starfsstöðinni.
Lögreglumenn voru einnig við eftirlit 30. maí 2024 við Fellsmúla 26. Þá kom sendibifreið og af henni var tekið eitt vörubretti með kössum sem m.a. voru merktir ,,Peroni“ og var farið með brettið inn í starfsstöðina. Starfsmaður þar veitti vörunum viðtöku. Lögreglumenn höfðu síðan afskipti af manni, sem kvaðst vera sendill á vegum Wolt, en hann hafði komið út úr starfsstöðinni með kassa af lager bjór og sett hann inn í bifreið. Viðtakandi sendingarinnar var skráður Sara og símanúmer hennar var við nafnið.
Sendillinn kvaðst ekki hafa aðrar upplýsingar og hann fór síðan á brott. Lögreglumenn höfðu síðan afskipti af öðrum starfsmanni Wolt en hann kom að Fellsmúla 26 á bifreið, fór inn í starfsstöð Smáríkisins og kom þaðan út með vínbelg í kassa. Viðkomandi kvaðst hafa verið að sækja sendingu í Smáríkið, sem reyndist vera Frontera-vínkassi, og viðtakandi var skráður A á […]. Lögreglumaður hafði samband við hana og tók af henni framburð. Hún kannaðist við að hafa átt viðskipti við Smáríkið með smáforriti á netinu en sendill frá Wolt hafi komið með vöruna til hennar. Hún kvaðst hafa vitað um starfsemi Smáríkisins vegna auglýsingar á netinu. Á reikningi vegna viðskiptanna var A skráð greiðandi en seljandi ITC í Hollandi.
Lögreglumenn fóru inn í starfsstöð Smáríkisins og hittu þar fyrir starfsmann. Hann kvaðst hafa starfað sem verktaki hjá Smáríkinu í nokkra mánuði og taki þar stakar vaktir. Hann kvaðst vera einn á vakt og starf hans fælist í því að afhenda pantanir en greitt væri fyrir vörur á vefnum og hann hefði engin afskipti af því. Hann tæki saman vörurnar sem væru pantaðar og afhenti þær ýmist þeim sem hefði pantað eða sendli á vegum Wolt. Verktakinn sagði að þegar hann hafi verið á staðnum hafi alltaf sami maðurinn komið með vörur á starfsstöðina og hann væri yfirmaður sinn. Á vinstri hönd við innganginn á starfsstöðinni var afgreiðsluborð en innan við það voru hillur með áfengisflöskum og tölvubúnaður vegna afgreiðslu. Þar fyrir innan var kæliherbergi og áfengi í hillum. Á ljósmyndum frá vettvangi má m.a. sjá spjaldtölvu og tölvu með upplýsingum um pantanir, strikamerki og áfengisumbúðir með límmiðum með upplýsingum um pantanir merkt nöfnum, áfengi í hillum og á vörubrettum. Á ljósmyndum sést aðallega bjór og léttvín en einnig sterkt áfengi.
Fimmtudaginn 30. maí 2024 voru lögreglumenn við eftirlit við starfsstöð Smáríkisins að Miðhrauni 22b í Garðabæ þegar þeir sáu karlmann koma þar út með tvo kassa af bjór og hann fór síðan inn í húsnæðið aftur og starfsmaður þar rétti manninum eina kippu af bjór til viðbótar. Hann kvaðst hafa keypt bjór á vefsíðunni smariki.is fyrir um 12.000 krónur, greitt fyrir vörurnar á netinu og væri að sækja þær. Lögreglumenn ræddu við starfsmann Smáríkisins og sagði hún að starf hennar fælist í því að afhenda viðskiptavinum pantanir sem gerðar hefðu verið á vefsíðunni smariki.is. Starfsmenn myndu skoða skilríki og pantanir væru aðeins afhentar kaupanda samkvæmt pöntun. Eigandi Smáríkisins og framkvæmdastjóri þess, ákærði í máli þessu, komu á vettvang.
Í húsnæðinu var afgreiðsluborð í anddyrinu en fyrir innan það voru fimm kæliskápar með áfengi og áfengi í hillum. Lengra inni í húsnæðinu var kæliskápur með áfengi, 17 vörubretti með áfengi og áfengi í hillum og á borði. Á ljósmyndum sem teknar voru á vettvangi sjást kæliskápar með áfengi, áfengi í hillum og á vörubrettum. Um var að ræða bjór, bæði innlendan og erlendan, léttvín og sterkt vín.
Smáríkið var einnig með starfsstöð að Hraunbæ 102a í Reykjavík og þar voru lögreglumenn einnig við eftirlit fimmtudaginn 30. maí 2024. Þeir höfðu þar afskipti af kvenmanni sem kom með kippu af bjór út úr starfsstöðinni. Hún kvaðst hafa pantað kippuna á vefsíðunni smarikid.is, greitt fyrir með greiðslukorti og síðan sótt pöntunina að Hraunbæ 102a. Lögreglumenn fóru síðan, höfðu tal af starfsmanni, skoðuðu starfsstöðina og framkvæmdu birgðatalningu. Á starfsstöðinni koma viðskiptavinir inn í herbergi og þar er lúga þar sem pantanir eru afgreiddar. Fyrir innan afgreiðsluna er geymsla og þar fyrir innan er köld geymsla. Vörutegundir á starfsstöðinni reyndust vera 172 og margar þeirra voru íslensk framleiðsla. Á meðan lögreglumenn voru á staðnum komu þrír einstaklingar til að sækja pantanir. Á ljósmyndum frá starfsstöð Smáríkisins að Hraunbæ 102a sést áfengi á vörubrettum, í hillum og á vögnum, að stærstum hluta bjór og léttvín.
ITC, með heimili í Rotterdam í Hollandi, sótti um skráningu og útgáfu á kennitölu fyrir erlent fyrirtæki vegna bankaviðskipta á Íslandi með umsókn til fyrirtækjaskrár Skattsins, dags. 2. janúar 2024. Samkvæmt upplýsingum úr fyrirtækjaskrá Verslunarráðs Hollands var ITC stofnað 14. september 2023 og starfsemin sögð vera smásala á matvöru og lyfjabúðarvöru á vefnum. Stjórnarmaður við skráningu var ákærði en B var skráð forráðamaður 4. mars 2024 og var það 30. maí 2024 þegar atvikið varð sem ákært er vegna.
Félagið Kjútís var stofnað 18. janúar 2021 og forráðamaður þess var þá ákærði. Starfsemi þess var þá aðallega blönduð heildverslun. Félagið var skráð á virðisaukaskattsskrá 14. september 2023. Tilkynnt var um breyttan tilgang/starfsemi félagsins 25. september 2023 og þá var aðalstarfsemin sögð vera heildsala, dreifing matvæla og áfengis. Með tilkynningum sama dag var tilkynnt um að ákærði væri stjórnarmaður og prókúruhafi félagsins og lögheimili félagsins væri að Eskiási 1 í Garðabæ.
Í skilmálum Smáríkisins segir að viðskiptavinir þess þurfi að hafa náð 20 ára aldri og við stofnun aðgangs á smarikid.is þurfi viðskiptavinir að auðkenna aldur sinn með rafrænum skilríkjum. Allar vörur sem ITC bjóði til sölu í vefverslun sinni séu á lager á Íslandi og afgreiddar úr vöruhúsinu samdægurs eða í síðasta lagi næsta virka dag. Hægt sé að skila allri vöru nema matvöru (matur, bjór og vín) innan 14 daga frá því að viðskipti hafi farið fram.
Kjútís ehf. er með starfsleyfi frá heilbrigðisnefnd Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, dags. 22. desember 2023. Í leyfinu kemur fram að það taki til heildverslunar og dreifingar á áfengi. Í tölvupósti heilbrigðiseftirlitsins frá 31. maí 2024, í kjölfar heimsóknar í afgreiðslu Smáríkisins að Miðhrauni 22b í Garðabæ, kemur fram að hjá þeim sé fyrirtækið skráð hjá eftirlitinu sem Kjútís ehf. sem sé með starfsleyfi fyrir dreifingu matvæla, þ.e. heildverslun með áfengi. Fyrirtækið ITC í Rotterdam sé söluaðili og komi fram á reikningi neytandans. Allar vörur á lager séu keyptar inn í nafni Kjútís ehf. en síðan sé gerður reikningur á milli Kjútís ehf. og ITC. Fyrirtækið Wolt, sem sé með starfsleyfi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, sjái um heimsendingu fyrir ITC. Þá kemur fram að ITC sé ekki með starfsleyfi hjá heilbrigðiseftirliti og þurfi það að sækja um það til að geta móttekið vöru.
Samkvæmt yfirliti Smáríkisins hóf það viðskipti 3. nóvember 2023 og var þá með starfsstöð að Miðhrauni í Garðabæ en í maí 2024 bættust við starfsstöðvar við Fellsmúla og Hraunbæ í Reykjavík. Seldir áfengislítrar frá nóvember 2023 til og með maí 2024 voru 1.689 og velta án virðisaukaskatts var 37.593.864 krónur. Smáríkið er með lénið smarikið.is skráð hjá ISNIC og var það skráð 19. júlí 2023 en ákærði er skráður rétthafi þess. Þá var netfangið info@smarikid.is skráð 5. júní 2024 á nafn ITC.
Kjútís ehf. og ITC gerðu með sér þjónustusamning 1. nóvember 2023. Þar kemur fram að Kjútís ehf. sé íslenskt þjónustufyrirtæki sem veiti ITC aðstöðu og aðra þjónustu. Þjónustan felist í því að útvega athafnasvæði eins og þurfi til þess að selja vörur ITC á Íslandi, athafnasvæði eins og vöruhús og önnur geymslusvæði sem tengist skipulögðu dreifikerfi. Þá skuli Kjútís ehf. taka á móti vörum ITC til sölu á Íslandi og afhendingar á þeim vörum annað hvort til íslenskra viðskiptavina eða íslenskra milliliða. Einnig taki þjónustan til vinnslu og pökkunar á vörum ITC til sölu á Íslandi eins og þörf krefji. Í samningnum segir að Kjútís ehf. sé heimilt að útvista þjónustu samkvæmt samningnum til þriðja aðila en Kjútís ehf. hafi hins vegar ekki vald til þess að semja fyrir hönd ITC eða til að binda það að lögum. ITC skuli greiða Kjútís ehf. þjónustugjald fyrir veitta þjónustu mánaðarlega eða á þann hátt sem kunni að vera samið um. Kjútís ehf. skuli halda tímaskráningu og tímaskýrsla skuli fylgja hverjum reikningi sem skuli gefnir út í íslenskum krónum. Ákærði skrifaði undir þjónustusamninginn bæði fyrir hönd ITC og Kjútís ehf.
Samkvæmt bréfum Skattsins frá 11. júní 2024 var ekki um útflutning að ræða á vegum Kjútís ehf. á tímabilinu 1. september 2023 til 31. maí 2024. Á sama tímabili var hvorki um inn- eða útflutning að ræða á vegum ITC.
Lögregla gerði skoðun 1. júlí 2024 á vefsýnileika fyrirtækisins Smáríkið sem sé íslenskt útsölunafn á fyrirtækinu ITC. Vefsíða fyrirtækisins smarikid.is var skoðuð og opinberar síður þess á Facebook og TikTok. Opinbera síðan sé sölusíða þar sem selt sé áfengi í lausasölu og forsíðan sýni tvo möguleika, sótt eða heimsending og síðan sé hægt að skoða þær vörur sem netverslunin bjóði upp á. Þá sé hægt að skoða staðsetningu verslunar. Skrá þarf sig inn með rafrænum skilríkjum. Auglýsingar á Facebook-síðu Smáríkisins voru flestar um opnunartíma en ekki var hægt að sjá að áfengi væri beint auglýst né að auglýsingum væri beint að ungmennum.
Samkvæmt vottorði úr fyrirtækjaskrá frá 3. júní 2024 var ákærði stjórnarmaður í Kjútís ehf. og með prókúruumboð. Tilgangur félagsins er heildsala, dreifing matvæla og áfengis og önnur ótalin framleiðsla á matvælum. Félagið var stofnað 18. janúar 2021 og forráðamaður þess var þá ákærði.
Ákærði, XXX*, gaf skýrslu hjá lögreglu 4. júní 2024. Hann lýsti því að starfsemi Kjútís ehf. væri heildsala með matvæli með áherslu á áfengi. Félagið hafi upphaflega verið stofnað til að reka ísbúð en tilgangi þess hafi verið breytt árið 2023 og þá hafi ákærði komið að rekstri félagsins. Kjútís ehf. sé umboðsaðili ITC á Íslandi en stundi ekki smásölu á áfengi en í smásölu felist sala til einstaklinga. Þegar viðskiptavinir fari inn á vefsíðuna smarikid.is greiði þeir ITC fyrir pantaðar vörur sem komi frá íslenskum birgjum svo sem Coca-Cola, Mekka, Ölgerðinni, Innnes og Globus en Kjútís ehf., sem sé heildsali áfengis, kaupi áfengi af birgjunum en selji það síðan til ITC. Starfsmaður Kjútís ehf. taki við áfenginu frá birgjunum. Áfengið, sem fari aldrei frá Íslandi, sé síðan selt til viðskiptavina af ITC sem taki við greiðslum fyrir áfengið. ITC sé erlent félag og selji það sem pantað sé í gegnum vefsíðuna smarikid.is. Kjútís ehf. sé með þjónustusamning við ITC um afhendingu á áfengi sem ITC selji. Það félag hafi verið stofnað til að selja áfengi í smásölu á Íslandi en það sé til heimilis í Hollandi og ekki með nein leyfi hér á landi. Forsvarsmaður ITC sé B, vinkona ákærða, en hún sé námsmaður í Hollandi. Eigendur ITC og Kjútís ehf. séu að hluta til þeir sömu, þ. á m. ákærði. Ákærði sagði að Smáríkið væri ekki vínbúð þrátt fyrir að hafa auglýst á TikTok: ,,Vínbúð með lág verð og hraða heimsendingu.“ Forsvarsmenn Smáríkisins hafi ekki verið ánægðir með þessa auglýsingu og hætt samstarfi við auglýsingastofuna sem gerði hana. Ákærði sagði að Kjútís ehf. væri með starfsstöðvar í Miðhrauni, Hraunbæ og Fellsmúla og félagið greiði húsaleigu á þessum stöðum. Áfengið, sem sé pantað hjá ITC, sé afhent á starfsstöðvunum til viðskiptavina eða sendlum frá Wolt ef viðskiptavinirnir óska eftir því en Kjútís ehf. sé dreifingaraðili fyrir ITC og Kjútís ehf. sé með samning við Wolt um dreifingu á seldum vörum. Ákærði kvaðst bæði hafa aðgang að bankareikningum Kjútís ehf. og ITC og með prókúru fyrir báða aðilana. Bókhald fyrir ITC sé fært hér á landi.
Ákærði sagði að fjórir aðilar hefðu stofnað ITC, og þ. á m. ákærði, í þeim tilgangi að selja áfengi í smásölu hér á landi. Það hafi verið fordæmi fyrir þessu fyrirkomulagi á landinu og allt gert samkvæmt gildandi reglum. Ákærði kvaðst ekki vita til þess að ITC hafi keypt áfengi af heildsölum hér á landi.
III Kröfur og sjónarmið ákærða. Ákærði krefst þess aðallega að verða sýknaður af kröfum ákæruvaldsins en til vara, komi til sakfellingar, er krafist vægustu refsingar sem lög frekast leyfa. Þá er þess krafist að allur sakarkostnaður verði lagður á ríkissjóð, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða.
Ákærði segir að ákæra í málinu sé í mikilvægum atriðum óljós og það hafi áhrif á möguleika hans til að grípa til varna. Það sé m.a. erfiðleikum bundið að átta sig nákvæmlega á því hvaða háttsemi ákæruvaldið telji refsiverða. Þó segir ákærði að það sé ljóst að hann sé aðeins ákærður fyrir smásölu áfengis en hvorki heildsölu né birgðahald. Hann telur hins vegar að lýsing ákæruvaldsins á málsatvikum og viðskiptunum sé í grundvallaratriðum röng. Ákærði segir að hvorki Kjútís ehf. né Icelandic Trading Company (ITC) selji áfengi í smásölu á Íslandi, heldur hafi Kjútís ehf., sem hafi leyfi til heildsölu áfengis á Íslandi, selt ITC, sem hvorki hafi starfsemi né aðsetur á Íslandi, áfengið úr landi. Áfengið, sem ákært sé vegna, hafi verið geymt á starfsstöð Kjútís ehf. hér á landi á grundvelli þjónustusamnings félagsins við ITC, þar til það hafi verið afhent sendli á vegum Wolt samkvæmt beiðni kaupanda. Ekkert samningssamband hafi verið á milli Kjútís ehf. og kaupanda áfengisins, sem ákært er vegna, en það hafi verið keypt af ITC í Hollandi. Það sé ekki refsivert að kaupa þjónustu af íslenskum aðila um það að geyma áfengi á Íslandi né að afhenda áfengi, sem staðsett sé á Íslandi, en sé í eigu erlends aðila. Í ákæru sé ekki lýst smásölu til einstaklings á Íslandi sem brjóti gegn einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR). Ákærði segir að einkaleyfi ÁTVR til smásölu á áfengi hér á landi nái ekki til vefverslunar með áfengi. Hvorki í áfengislögum nr. 75/1998 né í lögum um verslun með áfengi og tóbak nr. 86/2011 sé að finna skilgreiningu á því hvað felist í einkaleyfi ÁTVR til smásölu á áfengi. Í ákvæðum þar um felist hins vegar takmörkun á atvinnufrelsi sem verði að skýra þröngt enda sé atvinnufrelsi verndað af 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar. Takmarkanir á því verði að koma fram með skýrum hætti í settum lögum og þær verði að skýra þröngt. Ákærði telur að einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis sé bundið við rekstur áfengisútsölu, þ.e. áfengisverslana, og það taki ekki til sölu áfengis í vefverslun. Þá hafi ÁTVR ekki einkaleyfi á afhendingu áfengis. Alþingi hafi ekki tekið afstöðu til þess með beinum eða óbeinum hætti að vefverslun með áfengi skuli vera ólögmæt og refsiverð. Þá sé meginreglan sú að refsiheimildir verði að vera skýrar en ákvæði áfengislaga séu ekki skýr eða ótvíræð um að vefverslun með áfengi sé andstæð lögum. Þá segir ákærði að skýra verði ákvæði áfengislaga til samræmis við skuldbindingar íslenska ríkisins samkvæmt EES-samningnum, sbr. 3. gr. laga nr. 2/1993. Sala og kaup áfengisins í þessu máli hafi að öllu leyti farið fram í vefverslun félags í Hollandi og slík viðskipti séu heimil á EES-svæðinu. Þá sé heimilt að nýta milliliði og flutningsaðila í slíkum viðskiptum.
IV Framburðir ákærða og vitna fyrir dómi. Ákærði lýsti því að Kjútís ehf. væri með heildsölu á matvöru, þ. á m. á áfengi, og þannig væri um viðskipti á milli fyrirtækja að ræða. ITC væri erlent fyrirtæki með netsölu á áfengi, gosi o.fl. í Hollandi og hefði verið stofnað í þeim tilgangi. Félagið væri með engan starfsmann hér á landi. Ákærði þori ekki að segja til um hvort ITC væri að selja vörur til einstaklinga í Hollandi. Ákærði kvaðst ekki hafa verið framkvæmdastjóri ITC 30. maí 2024 en hann hafi verið í stjórn félagsins og tekið þátt í rekstri þess, m.a. greitt einn og einn reikning fyrir það. Ákærði hafi hins vegar ekki tekið þátt í daglegum rekstri félagsins. Bókhaldi og fleiru fyrir félagið hafi verið sinnt í verktöku í Hollandi. Stjórnandi félagsins og stjórnarmaður hafi verið B en ákærði kvaðst ekki vita hvort hún hafi sinnt öllum störfum fyrir félagið. Núna kvaðst ákærði stjórna ITC og á árinu 2024 hafi hann haft aðgang að bankareikningum félagsins og haft prókúru fyrir það.
Ákærði sagði að ITC og Kjútís ehf. væru með þjónustusamning sín á milli og sala til ITC væri sala úr landi og ITC væri með engin leyfi til starfsemi hér á landi. Kjútís ehf. taki að sér ýmiss konar ábyrgð fyrir ITC, svo sem vörugeymslu, birgðahald og flutning. ITC sé ekki milliliður í umræddum viðskiptum. Hins vegar sé Kjútís ehf. milliliður en viðskiptavinir ITC versli á smariki.is og greiði ITC fyrir vöruna enda eigi það félag áfengið þegar það sé selt. Ákærði kvaðst ekki vita hvort ITC myndi greiða aðflutningsgjöld hér á landi og hann vissi ekki hver væri þóknun Kjútís ehf. fyrir þátt félagsins í ferlinu. Ákærði kvaðst ekki hafa selt hvítvínsbeljuna sem tilgreind sé í ákæru.
Vitnið, B, kvaðst ekki koma að rekstri Kjútís ehf. en vitnið hafi verið í stjórn ITC frá mars til ágúst 2024. Vitnið vissi ekki hver tilgangur ITC hefði verið og vitnið þorði ekki að segja til um hvaða starfsemi félagið hefði haft með höndum. Vitnið hefði ekki stjórnað félaginu og vissi ekki hver hefði haft aðgang að bankareikningum þess. Vitnið kvaðst hafa búið í Hollandi og verið í námi með ákærða. Hann hafi beðið vitnið um að taka sæti í stjórn félagsins en vitnið vissi ekki hver hafi ákveðið að ITC skyldi greiða fyrir áfengi. Vitnið þekkti ekki til samskipta ITC og Kjútís ehf.
Vitnið, C, kvaðst hafa skrifað skýrslu um inn- og útflutning Kjútís ehf. og ITC sem er meðal rannsóknargagna málsins. Vitnið sagði að tollsvæði Íslands væri landið sjálft og 12 mílna landhelgin. Þegar um innflutning væri að ræða væru vörur fluttar erlendis frá og inn á tollsvæðið en útflutningur væri þegar vara færi frá tollsvæðinu. Vitnið staðfesti skýrslu sína.
Vitnið, A, kvaðst geta staðfest að hafa verslað hvítvín á netinu hjá Smáríkinu og fengið það afhent innan við klukkustund frá pöntun. Vitnið kvaðst ekki muna hvort það hefði verið að kaupa áfengið vegna matarboðs eða annars tilefnis en viðskiptin hefðu líklega farið fram fyrir kvöldmat í umrætt sinn.
Vitnið, lögreglumaður nr. D, kvaðst hafa verið á vettvangi og fylgst með umferð við Smáríkið. Þangað hafi komið vörubifreið með vörur og starfsmaður Smáríkisins hafi tekið á móti þeim. Þangað hafi einnig komið tveir sendlar frá Wolt sem lögreglumenn hafi rætt við sem og einstakling sem hafi verið skráður móttakandi að sendingu frá Smáríkinu. Lögreglumenn hafi rætt við starfsmann Smáríkisins, sem ekki hafi verið ákærði, en ekki séð leyfi til starfseminnar. Vitnið staðfesti skýrslu sína.
Vitnið, lögreglumaður nr. E, kvaðst hafa verið ásamt öðrum lögreglumanni að fylgjast með viðskiptavinum Smáríkisins. Þeir hafi séð starfsmann Smáríkisins taka við vörusendingu og þá hafi þeir séð bílstjóra frá Wolt og rætt við hann. Þá hafi þeir haft samband við einn viðskiptavin Smáríkisins og tekið framburð af honum í gegnum síma. Vitnið staðfesti skýrslu sína.
V Niðurstaða. Samkvæmt 108. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála hvílir sönnunarbyrði um sekt ákærða og atvik, sem telja má honum í óhag, á ákæruvaldinu. Þá metur dómari það hverju sinni hvort nægileg sönnun, sem ekki verði vefengd með skynsamlegum rökum, sé fram komin um hvert það atriði sem varðar sekt og ákvörðun viðurlaga við broti, þar á meðal hvaða sönnunargildi skýrslur ákærða hafi, vitnisburður, mats- og skoðunargerðir, skjöl og önnur sýnileg sönnunargögn, sbr. 1. mgr. 109. gr. laganna. Þá metur dómari það enn fremur ef þörf krefur hvert sönnunargildi þær staðhæfingar hafa sem varða ekki beinlínis það atriði sem sanna skal en ályktanir má leiða af um, sbr. 2. mgr. 109. gr. laganna. Þá skal dómur reistur á sönnunargögnum sem færð eru fram við meðferð máls fyrir dómi, sbr. 1. mgr. 111. gr. laganna.
Ákærði heldur því fram að ákæra í málinu sé óljós í mikilvægum atriðum og það hafi áhrif á möguleika hans til að grípa til varna. Samkvæmt c.-lið 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála skal í ákæru greina svo glöggt sem verða má hver sú háttsemi er sem ákært er út af, hvar og hvenær brotið er talið framið, heiti þess að lögum og aðra skilgreiningu og loks heimfærslu þess til laga og stjórnvaldsfyrirmæla, ef því er að skipta. Í ákæru er lýst með greinargóðum hætti hver sú háttsemi er sem ákært er vegna og talin er refsiverð af hálfu ákærða. Er háttsemin talin hafa brotið gegn einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi og um það hverfist mál þetta.
Ákærði tekur fram í greinargerð sinni að aðeins sé ákært fyrir smásölu áfengis en hvorki heildsölu né birgðahald. Af því má ráða að ákærði geri sér grein fyrir því hverjar sakargiftir í málinu séu og verjandi ákærða skilaði 14 blaðsíðna greinargerð vegna málsins. Með hliðsjón af þessu verður ekki annað séð en ákærða hafi verið vel mögulegt að taka til varna í málinu.
Ákærði hefur sjálfur lýst því fyrirkomulagi sem Smáríkið starfar eftir en það hefur leyfi til heildsölu áfengis hér á landi. Smáríkið kaupir áfengi af heildsöluaðilum hér á landi og selur það til ITC í Hollandi. Áfengið fer hins aldrei frá Íslandi þótt kaupandi þess sé í Hollandi heldur er Kjútís ehf. með þjónustusamning við ITC sem felur það í sér að Kjútís ehf. geymir áfengið fyrir ITC sem selur það síðan í netsölu aðilum hér á landi. Kaupendur fá áfengið afhent á starfsstöðvum Kjútís ehf. hér á landi eða starfsmenn félagsins afhenda það sendlum frá Wolt samkvæmt óskum kaupenda sem afhenda það síðan kaupendum. Ekki virðist ágreiningur um það að umrædd viðskipti gangi fyrir sig með þessum hætti en það er þetta fyrirkomulag viðskipta sem ákært er vegna og málið snýst um. Af hálfu ákæruvaldsins er því haldið fram að í þessu felist smásala sem fari gegn einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis. Ákærði heldur því hins vegar fram að sala áfengis með þessum hætti sé í samræmi við íslensk lög og brjóti þannig ekki gegn einkaleyfi ÁTVR til smásölu á áfengi hér á landi. Ákærði neitar því sök.
Í ákæru segir að ákærði hafi sem stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og daglegur stjórnandi í Kjútís ehf. og daglegur stjórnandi í ITC 30. maí 2024 selt einn hvítvínsbelg í smásölu til einstaklings. Ákærði kveðst ekki hafa verið forráðamaður ITC á þessum tíma heldur hafi það verið B sem hafi tekið við og verið skráð sem forráðamaður 1. mars 2024
Fyrir dómi kvaðst ákærði ekki hafa verið framkvæmdastjóri ITC þegar atvikið varð sem ákært er vegna en hann hafi verið í stjórn félagsins og tekið þátt í rekstri þess en þó ekki daglegum rekstri. Stjórnandi félagsins hafi verið B en ákærði vissi ekki hvort hún hefði sinnt öllum störfum fyrir félagið. Ákærði kvaðst hins vegar hafa haft aðgang að bankareikningum félagsins og haft prókúru fyrir þá. B lýsti því fyrir dómi að hún hefði búið í Hollandi og verið í stjórn ITC frá mars til ágúst 2024. Hún vissi ekki hver hefði verið tilgangur félagsins og treysti sér ekki til þess að segja til um hvaða starfsemi félagið hefði haft með höndum. Hún kvaðst ekki hafa stjórnað félaginu og hún vissi ekki hver hefði haft aðgang að bankareikningum þess. Ákærði hafi beðið B um að taka sæti í stjórn félagsins en þau hafi verið saman í námi í Hollandi. Samkvæmt þessu verður ekki annað séð en að skráning B sem forsvarsmanns ITC í mars 2024 hafi verið til málamynda vegna búsetu hennar í Hollandi. Það stóð ákærða næst að upplýsa og leggja fram gögn um það hver hafi verið daglegur stjórnandi ITC í maí 2024 hafi það verið einhver annar en hann sjálfur en það hefur hann ekki gert. Hann hefur hins vegar sjálfur upplýst að hann hafi verið með prókúru fyrir félagið og haft aðgang að bankareikningum þess á ofangreindu tímabili. Því má fullyrða að ákærði hafi verið daglegur stjórnandi í ITC í maí 2024 eins og fram kemur í ákæru. Ákærði hefur ekki mótmælt því að hafa verið forsvarsmaður Kjútís ehf. í maí 2024 enda benda gögn málsins eindregið til þess. Þá skal tekið fram að af ákærunni má ráða að ákærða er gefið að sök að hafa selt umræddan hvítvínsbelg sem forsvarsmaður Kjútís ehf. og ITC en ekki að ákærði hafi selt belginn persónulega. Enda er ekkert fram komið um það að ákærði hafi persónulega átt hvítvínsbelginn og þegar af þeirri ástæðu var ákærði ekki í færi til þess að selja belginn.
Ákærði fullyrðir að hvorki Kjútís ehf. né ITC selji áfengi í smásölu á Íslandi, heldur hafi salan sem ákært er vegna farið fram í vefverslun í Hollandi. Hvorki Kjútís ehf. né ITC flutti vörur frá Íslandi á tímabilinu 1. september 2023 til 31. maí 2024, þ.e. út fyrir tollsvæði íslenska ríkisins. Ekkert liggur heldur fyrir um það að félögin hafi flutt vörur hingað til lands á tímabilinu. Samkvæmt upplýsingum úr fyrirtækjaskrá Verslunarráðs Hollands var fyrsti skráði viðskiptadagur ITC 15. september 2023 og starfsemin sögð vera smásala á matvöru og lyfjabúðarvöru á vefnum. Í gögnum verslunarráðsins kemur einnig fram að starfsemin er netverslun með matvæli og lyfjavörur og sala áfengra drykkja á Íslandi og í öðrum löndum í gegnum netið. Með tilkynningu til fyrirtækjaskrár Skattsins 5. október 2023 var tilgangi Kjútís ehf. breytt í heildsölu, dreifingu matvæla og áfengis. Lénið samrikid.is var skráð hjá ISNIC 19. júlí 2023 og ákærði var skráður rétthafi þess. Þjónustusamningur milli ITC og Kjútís ehf. er frá 1. nóvember 2023 og skrifar ákærði undir hann fyrir hönd beggja aðila. Þegar þetta og rannsóknargögn málsins eru virt í heild sinni verður ekki annað ráðið en að því fyrirkomulagi sem félögin ITC og Kjútís ehf. ákváðu að hafa á sölu áfengis til einstaklinga eða annarra hér á landi hafi verið komið á í þeim tilgangi að reyna að komast fram hjá einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga áfengislaga nr. 75/1998. Hvað þetta varðar skal tekið fram að hjá lögreglu sagði ákærði að ITC hafi verið stofnað til þess að selja áfengi í smásölu á Íslandi en nú heldur ákærði því fram að ITC stundi ekki smásölu á áfengi hér á landi.
Hugtakið smásala á sér langa sögu í íslensku máli og ekki hefur þótt ástæða til þess að útskýra inntak þess sérstaklega í settum lögum. Í greinargerð með frumvarpi til áfengislaga nr. 75/1998 segir um 1. mgr. 10. gr. laganna að með henni sé lagt til að viðhalda einkarétti ÁTVR til smásölu á áfengi án þess að ástæða þætti til að útskýra sérstaklega hugtakið smásala. Verður að telja óumdeilt að sala á neytendavörum til einstaklinga sé smásala. Þá er einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis ekki bundið við sölu í áfengisverslunum eins og ákærði heldur fram enda er það ekki takmarkað með neinum hætti í áfengislögunum. Í netsölu getur falist smásala og þó að netsala hafi ekki tíðkast við setningu áfengislaganna á sínum tíma þá verður talið að einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis taki einnig til netsölu áfengis hér á landi þegar áfengið er selt og ætlað til einkaneyslu. Það fyrirkomulag sem NTC og Kjútís ehf. hafa ákveðið að hafa á sölu áfengis til aðila hér á landi bendir einnig til þess, eins og fram er komið, að félögin hafi ekki talið heimilt samkvæmt gildandi lögum að selja áfengi í netsölu hér á landi, heldur er fullyrt að áfengið sem NTC selur sé selt í netsölu í Hollandi eins og fram er komið.
Atvinnufrelsi er verndað af 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og verður það ekki takmarkað nema með lögum. Samkvæmt 1. gr. áfengislaganna er tilgangur þeirra að miða að hófsemd í meðferð áfengis. Með bannlögunum svokölluðu, sem tóku gildi 1. janúar 1915, var innflutningur og sala áfengis bönnuð með öllu. Allt frá þeim tíma hefur sala áfengis verið takmörkuð með einhverjum hætti og með lögum nr. 64/1928 var ríkisstjórn landsins m.a. veittur einkaréttur til innflutnings og sölu á áfengi. Þá hafa aldurstakmörk verið sett varðandi neyslu og kaup á áfengi og þá var ekki heimilt að selja áfengan bjór hér á landi fyrr en 1. mars 1989. Allar þessar takmarkanir, sem og aðrar, hafa verið settar með lýðheilsusjónarmið að leiðarljósi enda hefur skaðsemi áfengis löngu verið viðurkennd. Þessar takmarkanir eru einnig almennar þannig að allir þurfa að sæta þeim. Með vísan til þess verður ekki talið að þær brjóti gegn ákvæði stjórnarskrárinnar um atvinnufrelsi. Þá skal einnig tekið fram að 1. mgr. 10. gr. áfengislaganna er skýr um það að ÁTVR hefur einkaleyfi til smásölu áfengis og fullnægir því reglum refsiréttarins um skýrleika refsiheimilda. Það er enginn vafi um það við hvað er átt.
Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 er hlutverk lögreglu m.a. að gæta almannaöryggis, halda uppi lögum og reglu, stemma stigu við afbrotum, vinna að uppljóstran brota, stöðva ólögmæta háttsemi og fylgja málum eftir í samræmi við það sem mælt er fyrir um í lögum um meðferð sakamála eða öðrum lögum. Í 2. mgr. 18. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er hlutverk ákærenda að tryggja, í samvinnu við lögreglu, að þeir sem afbrot fremja verði beittir lögmæltum viðurlögum. Þannig var lögreglu skylt að taka til rannsóknar ætlað brot ákærða á áfengislögum og síðan ákæruvaldsins að gefa út ákæru á hendur ákærða væru taldar yfirgnæfandi líkur á því að hann hefði gerst sekur um refsiverða háttsemi í starfsemi ITC og Kjútís ehf. Því getur ekki breytt þó aðrir hafi hugsanlega gerst sekir um sömu eða svipaða háttsemi eins og ákærði vill halda fram en ekki hafi verið ákært vegna þess.
Það er viðurkennt að einstaklingum hér á landi sé heimilt að kaupa áfengi í erlendum vefverslunum og þá flytur viðkomandi einstaklingur áfengið hingað til lands til einkanota með óháðum/sjálfstæðum flutningsaðila en ekki í atvinnuskyni. Þetta má m.a. ráða af EES-samningnum og dómum sem hafa fallið um inntak hans. Þar er ekki um atvinnustarfsemi að ræða eins og í tilfelli ITC og Kjútís ehf. Í ýmsum löndum er smásala á áfengi takmörkuð með einhverjum hætti og slíkar takmarkanir eru taldar heimilar, sbr. það sem áður hefur komið fram um lýðheilsusjónarmið varðandi áfengissölu. Ekki verður séð að dómar Evrópudómstólsins hafi verið á þann veg að starfsemi eins og sú sem ITC og Kjútís ehf. stunda sé heimil, sbr. dóm í máli nr. C-1981/14, Visnapuu. Hvað þetta varðar skal og bent á það að ekki var fallist á það að leitað yrði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins í tilefni af þessu máli. Í úrskurði Landsréttar hvað það varðar kemur m.a. fram að í dómaframkvæmd EFTA-dómstólsins hafi verið lagt til grundvallar að léttvín af þeim toga sem sakargiftir á hendur varnaraðila lúta að falli utan gildissviðs EES-samningsins.
Það getur engu breytt um mál þetta að einstakir ráðherrar eða alþingismenn hafi í gegnum tíðina talið að starfsemi eins og ITC og Kjútís ehf. reka sé heimil samkvæmt íslenskum lögum. Eins og ítrekað hefur komið fram hefur ÁTVR einkaleyfi til smásölu áfengis hér á landi samkvæmt áfengislögum. Sé það vilji löggjafans að breyta því verður það aðeins gert með breytingu á áfengislögunum og/eða öðrum lögum eftir atvikum. Það er ekki hlutverk dómstóla að breyta settum lögum. Um refsiábyrgð ákærða fer samkvæmt íslenskum lögum.
ITC er ekki með starfsemi á Íslandi en selur þrátt fyrir það áfengi til aðila hér á landi með milligöngu Kjútís ehf. en ákærði er í forsvari fyrir bæði félögin. Um er að ræða að stærstum hluta áfengi sem hefur verið framleitt hér á landi og aldrei farið frá landinu, þ.e. út úr lögsögu íslenska ríkisins. Þessi starfsemi er smásala áfengis. Verður ekki annað ráðið en fyrirkomulaginu á áfengissölu félaganna hafi beinlínis verið komið á í þeim tilgangi að reyna að komast fram hjá einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis hér á landi eins og áður hefur komið fram.
Með vísan til alls ofanritaðs og rannsóknargagna málsins telst hafið yfir skynsamlegan vafa og þar með sannað að ákærði hafi sem forsvarsmaður Kjútís ehf. og ITC gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar með brotið gegn einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis hér á landi. Þykir háttsemi ákærða rétt færð til refsiákvæða í ákærunni. Hefur ákærði unnið sér til refsingar í samræmi við það.
Ákærði hefur ekki áður sætt refsingu svo kunnugt sé. Með vísan til atvika málsins telst refsing hans hæfilega ákveðin sekt að fjárhæð 100.000 krónur sem greiðist í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa að telja, ella sæti ákærði fangelsi í átta daga.
Ákærði greiði allan sakarkostnað, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Ólafs Eiríkssonar lögmanns, sem þykja hæfilega ákveðin með hliðsjón af umfangi málsins 4.947.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Það skal tekið fram að sá tímafjöldi sem verjandi hefur skráð vegna málsins þykir mjög úr hófi miðað við umfang þess.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari. Ingi Tryggvason héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð: Ákærði, X X X* , greiði 100.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa að telja en sæti ella fangelsi í átta daga. Ákærði greiði allan sakarkostnað, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Ólafs Eiríkssonar lögmanns, 4.947.000 krónur.
Dr. Ragný Þóra Guðjonsen tók saman og birti á FB síðu fyrir nokkru þessa athyglisverðu punkta:
„STJÓRNVALDSAÐGERÐIR VIRKA – EKKI HEIMILA NETSÖLU ÁFENGIS
Vegna umræðu um netsölu áfengis tók ég saman niðurstöður nokkurra rannsókna um þetta efni. Það er sem sagt nokkuð skýrt og vel kortlagt að aukið aðgengi að áfengi, þar með vegna netsölu er áhættuþáttur sér í lagi fyrir ungt fólk og þá sem stunda áhættusamar drykkjuvenjur:
Meira aðgengi að áfengi eykur líkur á meiri áfengisneyslu. Morrison, C. N., Byrnes, H. F., Miller, B. A., Wiehe, S. E., Ponicki, W. R., & Wiebe, D. J. (2019). Exposure to alcohol outlets, alcohol access, and alcohol consumption among adolescents. Drug and Alcohol Dependence, 205. 107622. https://doi.org/10.1016/j.drugalcdep.2019.107622
Markaðssetning áfengis gagnvart ungu fólki eykur líkur á áfengisnotkun þeirra. Jernigan, D., Noel, J., Landon, J., Thornton, N., & Lobstein, T. (2017). Alcohol marketing and youth alcohol consumption: a systematic review of longitudinal studies published since 2008. Addiction, 112: 7–20. https://doi.org/10.1111/add.13591
Regluverk í kringum netsölu áfengis stenst ekki samanburð við aðgengiskröfur sem eru gerðar í sérstökum áfengisverslunum og eru ófullnægjandi til að vernda aðgengi ungs fólks. Colbert, S., Wilkinson, C., Thornton, L., Feng, X., & Richmond, R. (2021). Online alcohol sales and home delivery: An international policy review and systematic literature review. Health Policy, 125(9), 1222–1237. https://doi.org/10.1016/j.healthpol.2021.07.005
Hópurinn sem kaupir áfengi á netinu er líklegri til að vera yngri eða að stunda áhættusamar drykkjuvenjur (drekka 6 drykki eða meira í hvert skipti). Líkur á skaða vegna áfengisdrykkju aukast þar sem netkaupin gera kleift að halda áfram drykkju sem ella hefði stöðvast þegar áfengið var búið. Auðvelt er fyrir ungmenni að komast framhjá aðgengiskröfum við kaupin og algengt er að reglum um aðgengi sé ekki fylgt eftir: Monjica-Perez Y., Callinan S., Livingston M. Alcohol home delivery services: an investigation of use and risk. 2019. http://fare.org.au/…/Alcohol-home-delivery-services.pdf
Fjöldi sölustaða áfengis þar með á netinu, tengist auknum líkum á því að áfengis sé neytt og hversu oft það er gert. Þessi niðurstaða kom fram óháð ýmsum einstaklingsþáttum og félags-efnahagslegri stöðu. Möguleikar ungs fólks á að útvega sér áfengi aukast við netsölu, meðal annars með því að fá fólk í umhverfinu, vini eða fjölskyldu, til að kaupa áfengið. Chen, MJ., Gruenewald, P. J., & Remer, L. G. (2009). Does Alcohol Outlet Density Affect Youth Access to Alcohol? Journal of Adolescent Health, 44(6), 582-589. https://doi.org/10.1016/j.jadohealth.2008.10.136
Hröð þróun netsölu á áfengi er áhyggjuefni og skortur er á regluverki. Staða sem ógnar lýðheilsu þjóða. Huckle, T., Parker, K., Romeo, J. S., & Casswell, S. (2020). Online alcohol delivery is associated with heavier drinking during the first New Zealand COVID-19 pandemic restrictions. Drug and Alcohol Review, 40(5), 826–834. https://doi.org/10.1111/dar.13222 „
Tilefni yfirlýsingarinnar er að koma á framfæri upplýsingum inn í umræðuna sem nú geisar í samfélaginu og fjölmiðlum um þá opinberu áfengisstefnu sem hefur verið í gildi. Stefnu sem forvarnarsamtök og fleiri telja að yfirvöld hafi leyft markaðsöflum að mylja undan á síðustu árum í mótsögn við áfengislög og samþykkta lýðheilsustefnu Íslands til 2030.
Í rúm 5 ár, eða allt frá kæru ÁTVR til lögreglu þann 16. júní 2020 vegna netsölu innlendra aðila á áfengi, hafa nokkur frjáls félagasamtök átt þétt samstarf um að opna augu stjórnvalda og almennings fyrir mikilvægi þess að klára þá kæru. Félögin telja að fyrirkomulag netsölunnar sé yfirstandandi lýðheilsuógn og ógni vernd barna og ungmenna í landinu.
Félögin eru:
Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, forvarnir .is
Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, foreldrasamtok.is
IOGT á Íslandi, iogt.is og
SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum
Niðurstaða bráðlega eftir 5 ára bið
Kæran hefði getað klárast 2020/2021 ef henni hefði verið sinnt, en er ekki enn komin á leiðarenda nú hálfum áratug síðar.
Loks hillir þó undir niðurstöðu því lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kláraði að rannsaka kærumálið í haust sem leiddi til þess að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákærði netsöluaðila til héraðsdóms Reykjaness í september 2025. Aðalmeðferð málsins á að fara fram þann 12. janúar nk. samkvæmt upplýsingum sem leitað var eftir símleiðis hjá dómstólnum.
Hafa framangreind forvarnarfélög leitað til fjölda opinberra aðila og stofnana og m.a. sent erindi til stjórnsýslu- og eftirlitsnefndar Alþingis vegna vinnubragða og seinagangs yfirvalda og ráðherraábyrgðar. Erindið hefur verið tekið fyrir í nefndinni en er enn á hennar borði og hefur ekki hlotið þar niðurstöðu, Hægt er að sjá hluta af þessari vinnu samtakanna á heimasíðum þeirra s.s. forvarnir.is, foreldrasamtok.is og iogt.is.
Breiðfylking heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka standa saman
Samtökin hafa haft forystu um að sem flestir hvetji stjórnvöld til að hafa lýðheilsu, vernd barna og ungmenna og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi í þessu máli. Sú forysta leiddi m.a. til þess að breiðfylking heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka hefur tvívegis gefið út opinberar áskoranir og ráð til yfirvalda. Þær sýna sterka samstöðu sem og þær áhyggjur sem ríkja um málið hjá þessum aðilum. Sjá hér:
Þá skal bent á að þau markaðsöfl sem nú eru að markaðssetja áfengi gagnvart ungmennum og almenningi í fjölmiðlum, á samfélagsmiðlum, í tengslum við íþróttaviðburði og víðar í samfélaginu, eru ágeng og herská, enda eftir miklum gróða að slægjast. Söluveltan er nú þegar upp á einhverja milljarða miðað við opinber viðtöl við þau öfl Veltir milljörðum á netsölu áfengis – RÚV.is. Almenningur situr svo uppi með reikninginn vegna afleiðinganna eins og allir þekkja. skattfé rennur úr ríkisstjóði til að greiða fyrir þær.
Ráðherrar ofl. segja enga óvissu í lögum, þau séu skýr
Bæði heilbrigðisráðherra í sumar og fjármála- og efnahagsráðherra í gær, hafa sagt að um lögleysu sé að ræða og að það sé ekki óvissa í lögum.
Heilbrigðisráðherra 16. júní 2025. “Ég vil taka fram að ég tel brýnt að tekið sé á þeirri lögleysu sem netsala áfengis er.”Tekur ný ríkisstjórn af skarið? – Vísir
Fjármála- og efnahagsráðherra 5. janúar 2026. „Álit okkar, dómsmálaráðuneytisins og ytri aðila, er svo að það sé í sjálfu sér engin óvissa og þetta snúist bara um að framfylgja lögunum. Menn geta tekist á um það hvort lögin eigi að vera svona eða einhvern veginn öðruvísi en ég tek ekki undir það að það sé óvissa í lögunum,“„Stefna Viðreisnar eitt en gildandi réttur annað“
Dómur handan við hornið
Þegar staðan er sú að markaðsöfl klifa á að áfengislög séu óskýr en sitjandi ráðherrar, forvarnarsamtök, lögreglan, ÁTVR og fleiri segja þau skýr, er réttast að bíða niðurstöðu dómstóla sem er loks handan við hornið. Forvarnarsamtök ofl. hafa beðið í 5,5 ár en vita að nú er biðin senn á enda því málið er komið á dómsstólastig.
Tapist málið þarf að taka stokkinn á ný
Út frá lýðheilsusjónarmiðum, verndun barna og ungmenna og sjónarmiðum um samfélaglega ábyrgð er vonast til þess að málið vinnist í dómi. Vilji hinsvegar svo ólíklega til að málið tapist í dómi þarf löggjafinn í framhaldinu að taka stokkinn á ný og gera upp við sig hvort setja eigi nýja áfengislöggjöf sem hafi áfram lýðheilsu, vernd barna og ungmenna og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi, eða láta nýja löggjöf ganga í gagnstæða átt. Forvarnarsamtök treysta á að góð samfélagsleg gildi verði áfram leiðarljósið í framtíðinni.
Um miðjan janúar hefst málflutningur í máli saksóknara gegn hérlendri „erlendri netsölu“ vegna ólöglegrar smásölu áfengis. Dómur ætti að liggja fyrir fljótlega og mun að öllum líkindum staðfesta það sem hefur verið vitað árum saman: að hér er um ólöglega starfsemi að ræða, sem ekki hefur verið brugðist við. Nú þegar hefur Héraðsdómur vísað frá röksemdum er varða ESS saminginn. Kjarni málsins því íslenska áfengislöggjöfin eins og alltaf hefur legið fyrir.
Þetta skýrir þann mikla óróa á opinberum vettvangi þessi dægrin, þar sem sérhagsmunaaðilar halda því fram, statt og stöðugt, gegn betri vitund, að málið sé lagalega óljóst. Sú fullyrðing stenst ekki. Íslensk áfengislöggjöf er afar skýr, einkum fimmti kaflinn, og auðskilin hverri læsri manneskju (1). Lögin eru afdráttarlaus en í ljósi reynslunnar (og fjármagns) munu sérhagsmunaaðilar freista þess að þvæla málinu um dómskerfið (og víðar) eins lengi þeim verður frekast unnt.
Í algjörlega sambærilegu máli hefur Hæstiréttur Svíþjóðar kveðið upp skýran dóm, hinn svokallaða Winefinderdóm (2). Þar kemur fram að innflutningur felist í því að flytja raunverulega inn áfengi frá öðru landi í eigin nafni og til eigin nota, sem er nákvæmlega sambærilegt og leyft er hérlendis. Það er heimilt að flytja inn áfengi til eigin neyslu, í eigin nafni og gera skil á tilheyrandi sköttum og gjöldum. Um leið og sala til þriðja aðila fer fram (t.d. af lager/verslun eða hvað nafni sem söluaðilar kunn að kalla rýmið/aðstöðuna eða starfsemina) þá er um smásölu að ræða. Þetta er einfalt, engin geimvísindi og ekkert sem er óskýrt.
Það sem er áhyggjuefni er hinn langi dráttur sem varð á því að yfirvöld tækju á þessari ólöglegu starfsemi. Fyrsta málinu var af Héraðsdómi vísað frá án efnislegrar niðurstöðu, þar sem ÁTVR var ekki talin aðili máls. Þegar að ÁTVR áfrýjar þeirri niðurstöðu til Landréttar þá greip þáverandi fjármálaráðherra (sem ÁTVR fellur undir) inn í málið með yfirlýsingu um að það væri óþarfi, gerði ÁTVR þar með umboðslaust og stöðvaði það ferli, augljóslega vitandi um hver niðurstaðan málsins yrði, málið féll niður. Í kjölfarið liðu rúmlega fimm ár án aðgerða, þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar frá forvarnasamtökum og þeirra fjölmörgu aðila sem vinna að vernd barna og ungmenna, lýðheilsu- og forvarnarmálum. Það var ekki fyrr en í haust eftir rúmlega fimm ára rannsókn lögreglunnar að saksóknaraembættið gaf loksins út kæru í þessu augljósa máli.
Í dag er mikill þrýstingur frá fámennum hópi sérhagsmunaaðila, „erlendra netsala“ um að afnema lýðheilsu- og forvarnarstefnu sem hefur verið við lýði hérlendis og almenn sátt hefur ríkt um árum saman. Breytingar í þágu þeirra sem hagnast verulega á þessari starfsemi, leggja takmarkað af mörkum til samfélagsins og ekki í neinu samræmi við þann kostað sem samfélagið ber af afleiðingunum. Sterk teikn eru um aukna neyslu, ekki síst meðal barna og ungmenna. Fyrir liggja bæði beinar og óbeinar sannanir fyrir því að ungmenni geta, í mörgum tilfellum, með einföldum hætti keypt áfengi í gegnum þetta kerfi, þvert á lög. Aukið framboð, gríðarlegur fjöldi sölustaða sem senda heim allan sólarhringinn, alla daga ársins, áfengisauglýsingar, verðstríð m.m. mun augljóslega hafa afleiðingar, ekki síst gagnvart okkar viðkvæmustu hópum eins og börnum og ungmennum.
Alþingi, stjórnvöld, foreldrar og við sem samfélag þurfum að standa fast gegn ítrustu sérhagsmunum áfengisiðnaðarins og standa vörð um velferð barna og ungmenna. Það er brýnt að halda áfram baráttunni, bæði á pólitíska vettvanginum sem og í öllu lýðheilsu- og forvarnarstarfi. Við getum ekki byggt samfélag á því að ítrustu sérhagsmunaaðilar fari sínu fram í krafti gríðarlegra fjármuna og af algeru virðingarleysi gagnvart almennu siðferði, lögum og reglum samfélagsins. Æskan er okkar fjársjóður.
Árni Guðmundsson
Félagsuppeldisfræðingur / formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum
Frá miðri 20. öld hafa forvarnir á Íslandi tekið miklum breytingum. Fyrri nálganir einkenndust af einfaldri fræðslu og varnaðarorðum, þar sem áherslan var á hættuna við áfengis- og vímuefnaneyslu. Starfandi voru áfengisvarnarráð í bæjarfélögum frá árinu 1935-1989 sem auk leyfisveitinga sáu um fræðslustarf. Ungtemplarar IOGT, Ungmennafélagshreyfingin UMFÍ og íþróttahreyfingin gegndu og gegna enn mikilvægu hlutverki.
Um 1960 er ástand ekki gott varðandi áfengisneyslu ungmenna. Unglingasamkomur um Hvítasunnu, sem oft var fyrsta útileguhelgi ársins, fara úr böndunum sökum áfengisneyslu. Um 1970 er ástandið ekki heldur gott. Skólaskemmtanir fóru úr skorðum vegna drykkjuláta barna í 8 og 9. bekkjum í grunnskóla, sem voru efstu árgangar á þeim tíma. „Forvarnir“ fólust í því að banna lifandi tónlist á slíkum samkomum eins og það væri rót vandans. Æskulýðs- og félags- og skólamályfirvöld hefja óformlegt samstarf upp úr 1975 sem jókst hægt og sígandi með árunum og formgerist síðar.
Um 1990 var áfengisneysla ungmenna á Íslandi orðin svo mikil að hún var fréttaefni víða um heim. Stjórnvöld þess tíma sjá að ekki verður við þetta búið, skýrslan Heilbrigð þjóð – Forvarnir og heilsustefna til aldamóta árið 2000 – Greining einstakra viðfangsefna og setning markmiða sem kom út árið 1992 var merkilegt plagg. Skýrslan var gerð að frumkvæði þáverandi heilbrigðisráðherra. Hún fjallar m.a. um að stjórnkerfið í heild þurfi að bregðast við þessum vanda með samræmdum aðgerðum, hvert á sinn hátt, sem varð raunin. Vettvangurinn og stjórnsýslan vinna saman og síðar verða skil þegar að fræðasamfélagið kemur til liðs í forvarnarmálunum og þá má segja og forsendur fyrir því sem nefnist í daglegu tali íslenska forvarnarmódelið hafi orðið til. Með tilkomu merkra æskulýðsrannsókna Þórólfs Þórlindsonar o.fl ,í upphafi tíunda áratugs síðustu aldar og síðar með tilkomu R&G (Rannsókn og greining) og enn síðar Planet Youth, auk alþjóðlegra kannana eins og ESPAD (European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs) og HBSC (Health Behaviour in School-aged Children), varð til gagnreynd nálgun eða aðferð hérlendis sem lagði áherslu á félagslegt samhengi, félagsmótun og tilveru ungmenna í víðu samhengi. Verndandi og fyrirbyggjandi þættir í lífi ungmenna voru lykilatriði Á grunni þessarar þekkingar hvílir það sem síðar er kallað íslenska módelið í forvörnum.
Íslenska módelið
Síðustu áratugi hefur íslenska forvarnarmódelið verið öflugt verkfæri í baráttunni gegn áfengis- og vímuefnaneyslu ungmenna. Módelið er kjölfesta þess að við náðum utan upp það ófremdarástand sem ríkti og tókst að kveða niður hægt og bítandi næstu áratugina á eftir. Módelið byggir á víðtækri samfélagslegri sátt, samstarfi allra helstu stofnana og virkri þátttöku foreldra, skóla, félagsmiðstöðva, félagasamtaka, íþróttahreyfingarinnar og ungmenna sjálfra.
Módelið byggir á gagnreyndri þekkingu. Um það hefur verið ritað og rætt um víða veröld. Margar vísindagreinar R&G (Rannsókn og greining), Planet Youth o.fl. benda á að með því að auka og efla verndandi þætti í umhverfi barna og ungmenna þá náist árangur í forvörnum. Grunnforsendur módelsins byggja á einföldum en öflugum þáttum eins og:
Nánum tengslum unglinga við foreldra og skýrum mörkum.
Virkri þátttöku ungmenna í skipulögðu félags-, frístunda- og íþróttastarfi
Skýrum útivistarreglum og virku foreldraeftirliti.
Góðum tengslum barna og ungmenna við skóla og jákvæðri menningu í nærumhverfinu.
Heftu aðgengi ungmenna að áfengi og vímuefnum, vörn gagnvart áfengisáróðri, sbr. bann við áfengisauglýsingum.
Samfélagslegri sátt þar sem ríki, sveitarfélög, félagsmiðstöðvar, félagasamtök, skólar og fjölmiðlar vinna að sama markmiði.
Þetta samspil, þessi samfélagssáttmáli, skilaði verulegum árangri í forvörnum, eins og áður sagði. Svo góðum að hann vakti athygli um víða veröld sem íslenska módelið og er öðrum samfélögum fyrirmynd og til eftirbreytni. Áfengis- og vímuefnaneysla ungmenna dróst hratt saman hérlendis á fyrstu árum aldarinnar og Ísland varð fyrirmynd annarra þjóða í forvarnarmálum.
Nú má heyra brak og bresti víða
Nú blasir annað við. Margar stoðir módelsins eru við það að bresta, eins og vikið verður að hér síðar. Við höfum einfaldlega sofið að verðinum. Góður árangur í forvörnum er ekki sjálfgefinn. Okkur hefur að einhverju leyti mistekist, samfellan, þ.e. að gildi einnar kynslóðar færist til þeirrar næstu, virðist ekki vera raunin. Foreldrar ungmenna dagsins í dag bjuggu við gott ástand á sínum unglingsárum og ganga mörg hver að því sem gefnu að svo sé og svo verði ávallt. Mín kynslóð, afarnir og ömmurnar, muna tímanna tvenna og vita að ekkert er sjálfgefið.
Enda svo komið að sterkar vísbendingar eru um aukna áfengisneyslu barna og ungmenna. Ef marka má niðurstöður úr könnun sem undirritaður gerði í september sl. meðal forsvarsfólks félagsmiðstöðva þá er fyllsta ástæða til þess að staldra við. Af 122 félagmiðstöðvum innan Samfés bárust svör frá 69 aðilum.
Skert þjónusta við ungmenni hefur afleiðingar. Þegar starfsemi í félagsmiðstöðvum er ekki fyrir hendi þá safnast unglingarnir saman annars staðar. Þau hverfa ekki eins og einhverjir reiknimeistarar borgar og bæjarfélaga virðast halda. Aðstöðuleysi gerir það að verkum að til verður afar ótryggt umhverfi barna og ungmenna þar sem margt óæskilegt kemur upp. Þegar spurt var hvort vart hafi verið við hópamyndun ungmenna í hverfinu (bænum ef það átti frekar við) s.l. 6-18 mánuði? Þá kemur fram og svo er í miklum mæli
Þegar spurt var um mat á áfengisneyslu unglinga sl. tvö ár kemur fram að 71% telja að hún hafi aukist og þar af 18,8% sem telja að hún hafi aukist verulega.
Spurningin „Eru margir unglingar í þínu umhverfi sem þú myndir telja að væru í mikilli áhættuhegðun (áfengi/vímuefni)?“ Undirstrikar mat á því hve þau sem vinna í nánasta umhverfi barna og ungmenna meta stöðuna alvarlega.
Aðgengi barna og unglinga að áfengi er afar auðvelt. Spurt var hvort viðkomandi hafi heyrt um eða orðið vör við á hvern hátt unglingar afli sér áfengis. Hægt var að nefna fleiri möguleika. „Hjá aðilum sem mæta í umhverfi unglinganna“ nefndu 49%. „Í gegnum netsölufyrirtæki“ nefndu 36%. „Hjá eldri systkinum / ættingjum“ nefndu 65%. „Í gegnum samfélagsmiðla“ nefndu 56%.
Margir af grundvallarþáttum módelsins eru veikburða eða brostnir
Samdráttur í fjárveitingum til æskulýðs- og forvarnarstarfs hefur dregið úr getu grasrótarinnar til að sinna hlutverki sínu.
Félagsmiðstöðvar og frístundastarf – hafa minnkað þjónustu við börn og ungmenni, sífellt takmarkaðri opnunartími og skert starfsemi.
Áfengissala íþróttafélaga vinnur beinlínis á móti öllum grundvallarmarkmiðum módelsins og sýnir algert ábyrgðarleysi
Foreldrafélög og samstaða foreldra er ekki af sama styrk og áður.
Fjölmiðlar og áhrifavaldar eru margir hverjir í beinni eða óbeinni þjónustu áfengisiðnaðarins.
Minnkandi áhersla stjórnvalda á forvarnir sem m.a. birtist í lækkuðum fjárframlögum.
Þar með hafa margar helstu stoðir módelsins veikst eða brostið. „Einhver“ á að sjá um þetta og þar sem þetta hefur gegnið vel þá er allt í lagi að slaka á og jafnvel „stimpla sig út“ eins og íþróttahreyfingin (að hluta til) er að gera og „aðrir“ sjá um þetta.
Forvarnir eru ferskvara
Það er ekki gott. Það eru sífellt nýjar áskoranir, ungmenni í breyttu samfélagi, því stafræna, tengjast í auknum mæli í gegnum skjái fremur en á vettvangi. Samvera fjölskyldna hefur breyst, sjálfsmynd ungmenna mótast í auknum mæli af áhrifum netmenningar sem er utan seilingar foreldra og forráðafólks. Forvarnir verða að taka mið af þessum nýja veruleika, þessum samfélagsbreytingum sem ná út fyrir heimili og skóla, inn á vettvang stafrænnar menningar þar sem markaðsöfl, áfengis- og tóbaksiðnaðurinn o.fl. keppa um athygli barna og ungmenna og freista þess í krafti gríðarlegra fjármuna að hafa áhrif á sjálfsmynd þeirra og afstöðu. Börn og ungmenni setja sér ekki mörk sem þau vita ekki hver eru. Ef við setjum þau ekki þá gera það bara einhverjir aðrir. Í þeim efnum er áfengisiðnaðurinn, þessi boðflenna í lífi barna og ungmenna, ávallt reiðubúinn.
Það er því ekki í boði að vera „stikkfrí“ þvert á móti það þarf stöðugt að mæta nýjum áskorunum. Íslenska módelið var á sínum tíma byltingarkennt. Það virkar og til þess að svo verði áfram þá þurfum við öll að leggjast á árarnar. Grunnþættir módelsins eru góð verkfæri og gott stýrikerfi til þess að mæta sífellt breytilegu samfélagi og takast á við margbreytilegar áskoranir þess. Forvarnir eru ferskvara, þeim þarf að sinna alltaf en ekki bara þegar á móti blæs.
Árni Einarsson. (2025, október). Viðtal við Árna Einarsson um þróun forvarna á Íslandi. Tekið af : Árni Guðmundsson. Óútgefið efni.
Árni Guðmundsson. (2025, september). Könnun meðal forsvarsfólks félagsmiðstöðva á Íslandi.* Óbirt gögn.
Árni Guðmundsson. (2007) Saga félagsmiðstöðva í Reykjavík 1942-1992. Bók
European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs (ESPAD). (2019). ESPAD Report 2019: Results from the European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs. Luxembourg: Publications Office of the European Union. https://www.espad.org/report/home/
Frontiers in Public Health. (2023). *Preliminary impact of the adoption of the Icelandic Prevention Model on substance use among youth.* *Frontiers in Public Health*, 11, Article 1117857. https://doi.org/10.3389/fpubh.2023.1117857
Heilbrigðisráðuneytið (1992) Heilbrigð þjóð – Forvarnir og heilsustefna til aldamóta árið 2000. Hrafn F. o.fl
Íslenska æskulýðsrannsóknin. (n.d.). Niðurstöður og gögn úr Íslensku æskulýðsrannsókninni. Sótt af https://islenskaaesku.is
Mead, G. H. (1934). Mind, self, and society from the standpoint of a social behaviorist. Chicago: University of Chicago Press.
Vísir 9.okt – Áfengi og íþróttir eiga enga samleið – áskorun til þingfulltrúa UMFÍ
Áfengi og íþróttir eiga enga samleið – áskorun til þingfulltrúa UMFÍ
Á sambandsþingi UMFÍ um helgina verður lögð fram tillaga um að gefa út leiðbeinandi tilmæli vegna áfengissölu á íþróttaviðburðum á vegum UMFÍ! Tillagan er sögð miða að „varkárni og ábyrgð“ í slíkri sölu. En í raun felur hún í sér grundvallarbreytingu á því hvernig íþróttahreyfingin skilgreinir sjálfa sig, hvort hún standi áfram með lýðheilsu og forvörnum eða beygi sig undir sérhagsmuni áfengisiðnaðarins og taki þátt í þeirri ömurlegu vegferð hans og einlægri óskhyggju um að normalisera áfengi og áfengisneyslu, alltaf, alls staðar.
Það er einfaldlega ekki hægt að sætta sig við þessa tillögu. Áfengi, íþrótta- og æskulýðsstarf á enga samleið. Áfengisiðnaðurinn getur aldrei verið hluti af forvarnarstarfi. Tillagan er röng í öllum grundvallaratriðum, siðferðilega og samfélagslega.
Forvarnar- og lýðheilsuhlutverk UMFÍ er í húfi
UMFÍ hefur alla tíð verið mikilvægur burðarás í lýðheilsu, forvörnum og uppeldisstarfi á Íslandi. Hreyfingin hefur sem einstök fyrirmynd kennt kynslóð eftir kynslóð að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl, ábyrgð, samvinnu og sjálfsaga. Þessi arfleifð er dýrmæt og hún tapast ef íþróttahreyfingin fer að samþykkja áfengissölu sem hluta af sinni starfsemi.
Það þarf engan sérfræðing til þess að gera sér grein fyrir því að áfengi er einn stærsti einstaki heilsuvandi Íslendinga. Það veldur slysum, ofbeldi, andlegum veikindum og fjölskylduslitum. Það bitnar á börnum og ungmennum sem alast upp í skugga neyslu annarra. Að tengja áfengi umhverfi íþrótta, vettvangs barna og ungmenna — sem á að vera skjól og fyrirmynd — er því ekki „varkárni“. Það er afturför.
Tvískinnungur sem grefur undan trúverðugleika
Það er mikill tvískinnungur fólginn í því að segjast standa fyrir forvörnum og heilbrigðu uppeldi en um leið opna dyrnar fyrir áfengissölu á viðburðum íþróttafélaga. Þegar fulltrúar UMFÍ ræða um „ábyrgð“ og „viðeigandi umgjörð“ á sölu áfengis, þá er það í raun fagurgali sem réttlætir það að brjóta gegn eigin grunngildum. Við vitum að börn og ungmenni líta til íþróttahreyfingarinnar sem fyrirmyndar. Fyrirmyndirnar eru ekki bara á vellinum, þær eru líka í stúkunni eða á áhorfendabekkjunum. Börn og ungmenni sem upplifa og sjá áfengi tengt íþróttaviðburðum fá skýr skilaboð: áfengi og íþróttir eiga samleið. Það er ekki sú framtíð sem við viljum skapa.
Áfengisiðnaðurinn leitar nýrra leiða – ekki verða „vinur“ hans
Áfengisframleiðendur og -dreifingaraðilar um allan heim hafa leitað í íþróttir varðandi markaðssetningu. Það er engin tilviljun. Þeir vita að íþróttir tengjast jákvæðri ímynd, heilbrigði og samstöðu – og vilja nýta þá ímynd til að selja meira áfengi – afla nýrra viðskiptavina „barna og ungmenna“. Ef UMFÍ velur þessa leið, þá er það ekki aðeins á skjön við eigin gildi heldur verður hreyfingin samstarfsaðili í markaðssókn áfengisiðnaðarins gagnvart ungu fólki. Slíkt er algerlega siðferðilega óverjandi og samfélagslega skaðlegt.
Ábyrgðin liggur hjá þingfulltrúum
Þingfulltrúar UMFÍ standa nú frammi fyrir mikilvægu vali. Þeir þurfa að ákveða hvort þeir standi með börnum og ungmennum lýðheilsu, forvörnum og uppbyggilegu félags- og íþróttastarfi eða standi með þeirri hugsun að áfengi sé „eðlilegur“ hluti af íþróttastarfinu og því skuli veita áfengisiðnaðinum aðgengi að félagfólki sínu sem eru að stærstum hluta börn og ungmenni.
Þeir sem samþykkja þessa tillögu munu bera ábyrgð á því að grafa undan trúverðugleika forvarnarstarfs og lýðheilsuhugsjónar UMFÍ. Þeir munu líka leggja sitt af mörkum til þess að veikja stoðir hins margrómaða og sannreynda íslenska módels í forvörnum, sem er mörgum samfélögum og þjóðum fyrirmynd í forvörnum.
Þeir sem hafna henni munu hins vegar verja þann siðferðilega grundvöll og markmið sem Ungmennafélagshreyfingin hefur byggt á í meira en öld. Standa með réttindum barna og ungmenna til þess að vera laus við áreiti áfengisiðnaðarins og skapa áframhaldandi jákvæðar og uppbyggilegar forsendur í mikilvægu uppeldis- og íþróttastarfi.
Áfengi og íþróttir eiga enga samleið. Það er því einfaldlega skylda UMFÍ að standa vörð um börnin, ungmennin, velferð þeirra og möguleika til farsældar en ekki að opna dyrnar fyrir iðnaði sem hefur það eina markmið að selja áfengi, hvers afleiðingar eru þekktar.
Ég mæli örugglega fyrir hönd okkar allra sem vinnum að velferð barna og ungmenna þegar ég hvet alla þingfulltrúa UMFÍ eindregið til að hafna þessari tillögu um áfengissölu á íþróttaviðburðum.
Áfengi og íþróttir eiga aldrei samleið. Ólögleg sala áfengis af hálfu íþróttafélags er eins langt frá markmiðum starfseminnar og komist verður.
Ekki bætir úr skák þegar brot eru ítrekuð. Fólki misbýður þetta eins og fjölmargar ábendingar sem okkur hafa borist bera vott um. Leitt þegar að forsvarsfólk íþróttafélags skilur ekki ábyrgð sína né hlutverki í mikilvægu uppeldis- og forvarnarstarfi eins og íþróttahreyfingin stendur að öllu jöfnu fyrir.
Í fréttinni segir: „Ég (framkvæmdastjórinn – innskot FGÁ) var boðaður í spjall með lögreglu út af sölu á leikjum, þetta var ekki alvarlegra en það,“ segir xxxxxx í samtali við 433is um það hvort sagan um kæru væri rétt.
Lögreglan hefur einnig litið við á leik í xxxxx þar sem bjór var seldur. „Það kom lögregla á einn leik, það er í einhverri rannsókn. Við vitum ekki hvort það endi í sekt eða áminningu.“
Fólk er einfaldlega boðað til yfirheyrslu þegar að lögregla rannsakar sakamál og slíkt er alltaf alvarlegt.
Fyrirsögin „´Íþróttafélag sektað vegna (ítrekaðra) brota á áfengislöggjöfinni“ gæti allt eins orðið niðurstaða úr „spjallinu“ og vandséð hvernig félag eða forsvarsfólk (í forvarnar og uppeldistarfi) þess ætlar að vinnu úr þeirri stöðu, svo ekki sé minnst á hve ömurleg staða félagsins verður ef slíkt kemur upp.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félag lýðheilsufræðinga, Félag sjúkraþjálfara, Ljósmæðrafélag Íslands, Læknafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands, Félagsráðgjafafélag Íslands,Lyfjafræðingafélag Íslands, Félag áfengis- og vímuefnaráðgjafa, SÁÁ, Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum:
Taka undir orð heilbrigðisráðherra um þá yfirstandandi ógn sem nú steðjar að grundvallarmarkmiðum lýðheilsu vegna meintrar ólöglegrar netsölu áfengis, sem fram komu í opinberu bréfi ráðherra þann 5. júní sl. (sjá að neðan í pdf)
Í tilefni þess að rótgróin íslensk verslanakeðja, Hagkaup, áætlar að hefja áfengissölu til neytenda á næstu dögum skora félögin á yfirvöld að kveða strax upp úr um hvort slík sala sé lögleg. Yfirvöld geta ekki horft aðgerðarlaus á þá lýðheilsuógn sem nú steðjar að vegna stóraukinnar netsölu áfengis á Íslandi.
Í samþykktri stefnu Alþingis um lýðheilsustefnu til ársins 2030 segir að Íslendingar verði meðal fremstu þjóða í lýðheilsustarfi sem byggist á bestu vísindaþekkingu og reynslu og að stjórnvöld skuli hafa lýðheilsu að leiðarljósi við alla áætlanagerð og stefnumótun. Í lögum um verslun með áfengi og tóbak segir að starfrækja skuli ÁTVR og að markmið laganna sé að skilgreina umgjörð um smásölu áfengis og heildsölu tóbaks sem byggist á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð, að takmarka og stýra aðgengi að áfengi og tóbaki og draga þannig úr skaðlegum áhrifum áfengis- og tóbaksneyslu, og að vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis og tóbaks og takmarka framboð á óæskilegum vörum.
Félögin skora á yfirvöld að hvika í engu frá samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um um einkasölu ÁTVR á áfengi. (Send til alþingismanna, ráðherra og fjölmiðla 26. ágúst 2024.)
Árni segir enga lagalega óvissu vera um þetta „nema í hausnum á þeim sem hafa hagsmuni af því að selja áfengi.“
„Ef Hagkaup er illa við verslunarfyrirkomulag í landinu þá eiga þau að beita sér fyrir breytingum á réttum stöðum, þ.e.a.s. í gegnum Alþingi. Það er ákveðin tegund af ofbeldi að taka lögin í sínar hendur. Það er algjörlega fyrir neðan virðingu Hagkaupa. Við getum ekki byggt samfélagið á því að manni finnist eitthvað og svo gerir maður það bara. Mér finnst þeir vera lentir í ógöngum með þetta sem virðulegt fyrirtæki, þeir eru komnir út í móa með allan sinn málatilbúnað og eru sjálfum sér til skammar.“
Hagkaup er ekki einhver bílskúrssala úti á Granda. Hagkaup er rótgróið og er…var virðulegt fyrirtæki sem að stórum hluta er í eigu lífeyrissjóðanna, þ.e. okkar.
Nú ætla Hagkaup að hefja ólöglega áfengissölu og bera fyrir sig persónulegum og pólitískum skoðunum forsætis – og dómsmálaráðherra í þeim efnum? Hvorugt þeirra hefur lýsti yfir að slíkt athæfi sé löglegt. Þvert á móti
Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hvetja landsmenn til þess að sýna hug sinn í verki gangvart svona lögleysu og beina viðskiptum sínum annað. Virðingarleysi og hroki fyrirtækisins gagnvart lögum, opinberum lýðheilsumarkmiðum og vernd barna og ungmenna er fyrirtækinu til skammar.
Það ekki síður sorglegt, siðlaust og einstaklega óviðeigandi að lífeyrisjóðirnir okkar séu viðriðnir þessa brotastarfsemi.
Sýnum hug okkar í verki – Endilega deila þessu innleggi sem víðast
Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/her-eru-upptokur-fra-athyglisverdum-malthingum-webinar-who-althjodaheilbrigdismalastofnunin/
Stjórn Læknafélags Íslands (LÍ) og Lýðheilsuráð LÍ hafa samþykkt eftirfarandi ályktun:
„LÍ skora á stjórnvöld að láta lýðheilsu vega þyngra en markaðsvæðingu í sölu áfengis á Íslandi.
LÍ áréttar ályktun sína sem samþykkt var á aðalfundi félagsins 20. október 2023 þar sem skorað er á alþingismenn að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að minnka skaða af áfengisneyslu, sem er forgangsverkefni í lýðheilsu Íslendinga. Þar sé stýring á aðgengi að áfengi sterkasta vopnið. Aukið aðgengi að áfengi eins og netverslun og heimsending muni valda enn meiri skaða.“
LÍ áréttar einnig að stjórnvöldum ber að fara eftir þingsályktun um lýðheilsustefnu til ársins 2030 sem Alþingi samþykkti samhljóða 12. júní 2021. Þar segir m.a. „Íslendingar verði meðal fremstu þjóða í lýðheilsustarfi sem byggist á bestu vísindaþekkingu og reynslu“ og „Stjórnvöld hafi lýðheilsu að leiðarljósi við alla áætlanagerð og stefnumótun.“
LÍ telur að eitt af forgangsverkefnum í lýðheilsu landsmanna eigi að vera að minnka skaða af áfengisneyslu.
Samkvæmt kostnaðargreiningu frá árinu 2021 var kostnaður íslensks samfélags vegna áfengisneyslu ríflega 100 milljarðar króna auk annars óáþreifanlegs kostnaðar. Það er álíka mikill kostnaður og ársvelta Landspítalans. Ef aðgengi að áfengi verður aukið hérlendis mun kostnaður vegna áfengisneyslu enn aukast. Samhliða slíkri rýmkun, yrði hún samþykkt, yrði því að gera ráð fyrir enn meiri fjármunum til fræðslu, forvarna og til heilbrigðiskerfisins til að meðhöndla áfengisvanda, sem myndi enn aukast.
LÍ tekur undir með Alþjóðaheilbrigðismálastofnunninni um að halda eigi fast í gagnreynda áfengisstefnu, sem m.a. felst í einkasölu ríkisins á áfengi
LÍ telur að viðhalda eigi einkasölu ríkisins á áfengi í gegnum ÁTVR, sem var stofnað samkvæmt lögum á grundvelli lýðheilsusjónarmiða.
LÍ tekur undir með embætti landlæknis sem hefur kallað eftir því að ekki verði gefið eftir í lýðheilsubaráttunni þar sem:
Aukið aðgengi að áfengi muni auka neyslu og auka sjúkdómsbyrði og þjáningu og
Aukið aðgengi að áfengi muni auka kostnað samfélagsins.
LÍ telur að ef lögfest verði heimild til reksturs innlendrar eða erlendrar netsölu með áfengi í smásölu til neytenda af áfengislager á Íslandi, verði það gríðarleg afturför í lýðheilsumálum á Íslandi.