
Tilefni yfirlýsingarinnar er að koma á framfæri upplýsingum inn í umræðuna sem nú geisar í samfélaginu og fjölmiðlum um þá opinberu áfengisstefnu sem hefur verið í gildi. Stefnu sem forvarnarsamtök og fleiri telja að yfirvöld hafi leyft markaðsöflum að mylja undan á síðustu árum í mótsögn við áfengislög og samþykkta lýðheilsustefnu Íslands til 2030.
Í rúm 5 ár, eða allt frá kæru ÁTVR til lögreglu þann 16. júní 2020 vegna netsölu innlendra aðila á áfengi, hafa nokkur frjáls félagasamtök átt þétt samstarf um að opna augu stjórnvalda og almennings fyrir mikilvægi þess að klára þá kæru. Félögin telja að fyrirkomulag netsölunnar sé yfirstandandi lýðheilsuógn og ógni vernd barna og ungmenna í landinu.
Félögin eru:
- Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, forvarnir .is
- Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, foreldrasamtok.is
- IOGT á Íslandi, iogt.is og
- SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum
Niðurstaða bráðlega eftir 5 ára bið
Kæran hefði getað klárast 2020/2021 ef henni hefði verið sinnt, en er ekki enn komin á leiðarenda nú hálfum áratug síðar.
Loks hillir þó undir niðurstöðu því lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kláraði að rannsaka kærumálið í haust sem leiddi til þess að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákærði netsöluaðila til héraðsdóms Reykjaness í september 2025. Aðalmeðferð málsins á að fara fram þann 12. janúar nk. samkvæmt upplýsingum sem leitað var eftir símleiðis hjá dómstólnum.
Hafa framangreind forvarnarfélög leitað til fjölda opinberra aðila og stofnana og m.a. sent erindi til stjórnsýslu- og eftirlitsnefndar Alþingis vegna vinnubragða og seinagangs yfirvalda og ráðherraábyrgðar. Erindið hefur verið tekið fyrir í nefndinni en er enn á hennar borði og hefur ekki hlotið þar niðurstöðu, Hægt er að sjá hluta af þessari vinnu samtakanna á heimasíðum þeirra s.s. forvarnir.is, foreldrasamtok.is og iogt.is.
Breiðfylking heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka standa saman
Samtökin hafa haft forystu um að sem flestir hvetji stjórnvöld til að hafa lýðheilsu, vernd barna og ungmenna og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi í þessu máli. Sú forysta leiddi m.a. til þess að breiðfylking heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka hefur tvívegis gefið út opinberar áskoranir og ráð til yfirvalda. Þær sýna sterka samstöðu sem og þær áhyggjur sem ríkja um málið hjá þessum aðilum. Sjá hér:
Áskorun breiðfylkingar félaga heilbrigðisstétta,
forvarnarsamtaka og fleiri til yfirvalda um að bregðast við yfirstandandi lýðheilsuógn
vegna stóraukinnar netsölu áfengis, 26. ágúst 2024 Áskorun vegna yfirstandandi lýðheilsuógnar – Lyfjafræðingafélag Íslands
Verum hagsýn í ríkisrekstri – sparnaðarráð frá breiðfylkingu heilbrigðisstétta, forvarnasamtaka o.fl. í samráðsgátt 21. janúar 2025 (umsögnin þessara 16 félaga er neðst í fréttinni) Telja ríkið geta sparað milljarða með því að koma í veg fyrir áfengissölu einkaaðila – RÚV.is
Ágeng og herská markaðsöfl
Þá skal bent á að þau markaðsöfl sem nú eru að markaðssetja áfengi gagnvart ungmennum og almenningi í fjölmiðlum, á samfélagsmiðlum, í tengslum við íþróttaviðburði og víðar í samfélaginu, eru ágeng og herská, enda eftir miklum gróða að slægjast. Söluveltan er nú þegar upp á einhverja milljarða miðað við opinber viðtöl við þau öfl Veltir milljörðum á netsölu áfengis – RÚV.is. Almenningur situr svo uppi með reikninginn vegna afleiðinganna eins og allir þekkja. skattfé rennur úr ríkisstjóði til að greiða fyrir þær.
Ráðherrar ofl. segja enga óvissu í lögum, þau séu skýr
Bæði heilbrigðisráðherra í sumar og fjármála- og efnahagsráðherra í gær, hafa sagt að um lögleysu sé að ræða og að það sé ekki óvissa í lögum.
Heilbrigðisráðherra 16. júní 2025. “Ég vil taka fram að ég tel brýnt að tekið sé á þeirri lögleysu sem netsala áfengis er.” Tekur ný ríkisstjórn af skarið? – Vísir
Fjármála- og efnahagsráðherra 5. janúar 2026. „Álit okkar, dómsmálaráðuneytisins og ytri aðila, er svo að það sé í sjálfu sér engin óvissa og þetta snúist bara um að framfylgja lögunum. Menn geta tekist á um það hvort lögin eigi að vera svona eða einhvern veginn öðruvísi en ég tek ekki undir það að það sé óvissa í lögunum,“ „Stefna Viðreisnar eitt en gildandi réttur annað“
Dómur handan við hornið
Þegar staðan er sú að markaðsöfl klifa á að áfengislög séu óskýr en sitjandi ráðherrar, forvarnarsamtök, lögreglan, ÁTVR og fleiri segja þau skýr, er réttast að bíða niðurstöðu dómstóla sem er loks handan við hornið. Forvarnarsamtök ofl. hafa beðið í 5,5 ár en vita að nú er biðin senn á enda því málið er komið á dómsstólastig.
Tapist málið þarf að taka stokkinn á ný
Út frá lýðheilsusjónarmiðum, verndun barna og ungmenna og sjónarmiðum um samfélaglega ábyrgð er vonast til þess að málið vinnist í dómi. Vilji hinsvegar svo ólíklega til að málið tapist í dómi þarf löggjafinn í framhaldinu að taka stokkinn á ný og gera upp við sig hvort setja eigi nýja áfengislöggjöf sem hafi áfram lýðheilsu, vernd barna og ungmenna og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi, eða láta nýja löggjöf ganga í gagnstæða átt. Forvarnarsamtök treysta á að góð samfélagsleg gildi verði áfram leiðarljósið í framtíðinni.


