Previous Next

Gleðilegt nýtt ár

Láttu aðra vita

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/gledilegt-nytt-ar-2/

Íslenska módelið í forvörnum –  leiðarljós sem við erum að slökkva á

Láttu aðra vita

Frá miðri 20. öld hafa forvarnir á Íslandi tekið miklum breytingum. Fyrri nálganir einkenndust af einfaldri fræðslu og varnaðarorðum, þar sem áherslan var á hættuna við áfengis- og vímuefnaneyslu. Starfandi voru áfengisvarnarráð í  bæjarfélögum frá árinu 1935-1989 sem auk leyfisveitinga sáu um fræðslustarf. Ungtemplarar IOGT, Ungmennafélagshreyfingin UMFÍ og íþróttahreyfingin gegndu og gegna enn mikilvægu hlutverki.

Um 1960 er ástand ekki gott varðandi áfengisneyslu ungmenna. Unglingasamkomur um Hvítasunnu, sem oft var fyrsta útileguhelgi ársins, fara úr böndunum sökum áfengisneyslu. Um 1970 er ástandið ekki heldur gott. Skólaskemmtanir fóru úr skorðum vegna drykkjuláta barna í 8 og  9. bekkjum í grunnskóla, sem voru efstu árgangar á þeim tíma. „Forvarnir“ fólust í því að banna lifandi tónlist á slíkum samkomum eins og það væri rót vandans. Æskulýðs- og félags- og skólamályfirvöld hefja óformlegt  samstarf upp úr 1975  sem jókst hægt  og sígandi með árunum og formgerist síðar. 

Um 1990 var áfengisneysla ungmenna á Íslandi orðin svo mikil að hún var fréttaefni víða um heim.  Stjórnvöld þess tíma sjá að ekki verður við þetta búið, skýrslan Heilbrigð þjóð – Forvarnir og heilsustefna til aldamóta árið 2000 – Greining einstakra viðfangsefna og setning markmiða sem kom út árið 1992  var merkilegt plagg.  Skýrslan var gerð að frumkvæði þáverandi heilbrigðisráðherra. Hún  fjallar m.a. um að stjórnkerfið í heild þurfi að bregðast við þessum vanda með samræmdum aðgerðum, hvert á sinn hátt, sem varð raunin. Vettvangurinn og stjórnsýslan vinna saman og síðar verða skil þegar að fræðasamfélagið kemur til liðs í forvarnarmálunum og þá má segja og forsendur fyrir því sem nefnist í daglegu tali íslenska forvarnarmódelið hafi orðið til. Með tilkomu merkra æskulýðsrannsókna Þórólfs Þórlindsonar o.fl ,í upphafi tíunda áratugs síðustu aldar og  síðar með tilkomu R&G (Rannsókn og greining) og  enn síðar Planet Youth, auk alþjóðlegra kannana eins og ESPAD (European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs) og HBSC (Health Behaviour in School-aged Children), varð til gagnreynd nálgun eða aðferð hérlendis sem lagði áherslu á félagslegt samhengi, félagsmótun og tilveru ungmenna í víðu samhengi. Verndandi og fyrirbyggjandi þættir í lífi ungmenna voru lykilatriði  Á grunni þessarar þekkingar hvílir það sem síðar er kallað íslenska módelið í forvörnum.

Íslenska módelið

Síðustu áratugi  hefur íslenska forvarnarmódelið verið öflugt verkfæri í baráttunni gegn áfengis- og vímuefnaneyslu ungmenna. Módelið er kjölfesta þess að við náðum utan upp það ófremdarástand sem ríkti og tókst að kveða niður hægt og bítandi næstu áratugina á eftir. Módelið byggir á víðtækri samfélagslegri sátt, samstarfi allra helstu stofnana og virkri þátttöku foreldra, skóla, félagsmiðstöðva, félagasamtaka, íþróttahreyfingarinnar og ungmenna sjálfra.

Módelið byggir á gagnreyndri þekkingu. Um það hefur verið ritað og rætt um víða veröld. Margar vísindagreinar R&G (Rannsókn og greining), Planet Youth o.fl. benda á að með því að auka og efla verndandi þætti í umhverfi barna og ungmenna þá náist árangur í forvörnum. Grunnforsendur módelsins byggja á einföldum en öflugum þáttum eins og:

  • Nánum tengslum unglinga við foreldra og skýrum mörkum.
  • Virkri þátttöku ungmenna í skipulögðu félags-, frístunda- og íþróttastarfi
  • Skýrum útivistarreglum og virku foreldraeftirliti.
  • Góðum tengslum barna og ungmenna við skóla og jákvæðri menningu í nærumhverfinu.
  • Heftu aðgengi ungmenna að áfengi og vímuefnum, vörn gagnvart áfengisáróðri, sbr. bann við áfengisauglýsingum.
  • Samfélagslegri sátt þar sem ríki, sveitarfélög, félagsmiðstöðvar, félagasamtök, skólar og fjölmiðlar vinna að sama markmiði.

Þetta samspil, þessi samfélagssáttmáli, skilaði verulegum árangri í forvörnum, eins og áður sagði. Svo góðum að hann vakti athygli um víða veröld sem íslenska módelið og er öðrum samfélögum fyrirmynd og til eftirbreytni. Áfengis- og vímuefnaneysla ungmenna dróst hratt saman hérlendis á fyrstu árum aldarinnar og Ísland varð fyrirmynd annarra þjóða í forvarnarmálum.

Nú má heyra brak og bresti víða

Nú blasir annað við. Margar stoðir módelsins eru við það að bresta, eins og vikið verður að hér síðar. Við höfum einfaldlega sofið að verðinum. Góður árangur í forvörnum er ekki sjálfgefinn. Okkur hefur að einhverju leyti mistekist, samfellan, þ.e. að gildi einnar kynslóðar færist til þeirrar næstu, virðist ekki vera raunin. Foreldrar ungmenna dagsins í dag bjuggu við gott ástand á sínum unglingsárum og ganga mörg hver að því sem gefnu að svo sé og svo verði ávallt. Mín kynslóð, afarnir og ömmurnar, muna tímanna tvenna og vita að ekkert er sjálfgefið.

Enda svo komið að sterkar vísbendingar eru um aukna áfengisneyslu barna og ungmenna. Ef marka má niðurstöður úr könnun sem undirritaður gerði í september sl. meðal forsvarsfólks félagsmiðstöðva þá er fyllsta ástæða til þess að staldra við. Af 122 félagmiðstöðvum innan Samfés bárust svör frá 69 aðilum.

Skert þjónusta við ungmenni hefur afleiðingar. Þegar starfsemi í félagsmiðstöðvum er ekki fyrir hendi þá safnast unglingarnir saman annars staðar. Þau hverfa ekki eins og einhverjir reiknimeistarar borgar og bæjarfélaga virðast halda. Aðstöðuleysi gerir það að verkum að til verður afar ótryggt umhverfi barna og ungmenna þar sem margt óæskilegt kemur upp. Þegar spurt var hvort vart hafi verið við hópamyndun ungmenna í hverfinu (bænum ef það átti frekar við) s.l. 6-18 mánuði? Þá kemur fram og svo er í miklum mæli

Þegar spurt var um mat á áfengisneyslu unglinga sl. tvö ár kemur fram að 71% telja að hún hafi aukist og þar af 18,8% sem telja að hún hafi aukist verulega.

Spurningin „Eru margir unglingar í þínu umhverfi sem þú myndir telja að væru í mikilli áhættuhegðun (áfengi/vímuefni)?“ Undirstrikar mat á því hve þau sem vinna í nánasta umhverfi barna og ungmenna meta stöðuna alvarlega.

Aðgengi barna og unglinga að áfengi er afar auðvelt. Spurt var hvort viðkomandi hafi heyrt um eða orðið vör við á hvern hátt unglingar afli sér áfengis. Hægt var að nefna fleiri möguleika. „Hjá aðilum sem mæta í umhverfi unglinganna“ nefndu 49%. „Í gegnum netsölufyrirtæki“ nefndu 36%. „Hjá eldri systkinum / ættingjum“ nefndu 65%. „Í gegnum samfélagsmiðla“ nefndu 56%.

Margir af grundvallarþáttum módelsins eru veikburða eða brostnir

  • Samdráttur í fjárveitingum til æskulýðs- og forvarnarstarfs hefur dregið úr getu grasrótarinnar til að sinna hlutverki sínu.
  • Félagsmiðstöðvar og frístundastarf – hafa minnkað þjónustu við börn og ungmenni, sífellt takmarkaðri opnunartími og skert starfsemi.
  • Áfengissala íþróttafélaga vinnur beinlínis á móti öllum grundvallarmarkmiðum módelsins og sýnir algert ábyrgðarleysi
  • Foreldrafélög og samstaða foreldra er ekki af sama styrk og áður.
  • Fjölmiðlar og áhrifavaldar eru margir hverjir í beinni eða óbeinni þjónustu áfengisiðnaðarins.
  • Minnkandi áhersla stjórnvalda á forvarnir sem m.a. birtist í lækkuðum fjárframlögum.

Þar með hafa margar helstu stoðir módelsins veikst eða brostið. „Einhver“ á að sjá um þetta og þar sem þetta hefur gegnið vel þá er allt í lagi að slaka á og jafnvel „stimpla sig út“ eins og íþróttahreyfingin (að hluta til) er að gera og „aðrir“ sjá um þetta.

Forvarnir eru ferskvara

Það er ekki gott. Það eru sífellt nýjar áskoranir, ungmenni í breyttu samfélagi, því stafræna, tengjast í auknum mæli í gegnum skjái fremur en á vettvangi. Samvera fjölskyldna hefur breyst, sjálfsmynd ungmenna mótast í auknum mæli af áhrifum netmenningar sem er utan seilingar foreldra og forráðafólks. Forvarnir verða að taka mið af þessum nýja veruleika, þessum samfélagsbreytingum sem ná út fyrir heimili og skóla, inn á vettvang stafrænnar menningar þar sem markaðsöfl, áfengis- og tóbaksiðnaðurinn o.fl. keppa um athygli barna og ungmenna og freista þess í krafti gríðarlegra fjármuna að hafa áhrif á sjálfsmynd þeirra og afstöðu. Börn og ungmenni setja sér ekki mörk sem þau vita ekki hver eru. Ef við setjum þau ekki þá gera það bara einhverjir aðrir. Í þeim efnum er áfengisiðnaðurinn, þessi boðflenna í lífi barna og ungmenna, ávallt reiðubúinn.

Það er því ekki í boði að vera „stikkfrí“ þvert á móti það þarf stöðugt að mæta nýjum áskorunum. Íslenska módelið var á sínum tíma byltingarkennt. Það virkar og til þess að svo verði áfram þá þurfum við öll að leggjast á árarnar. Grunnþættir módelsins eru góð verkfæri og gott stýrikerfi til þess að mæta sífellt breytilegu samfélagi og takast á við margbreytilegar áskoranir þess. Forvarnir eru ferskvara, þeim þarf að sinna alltaf en ekki bara þegar á móti blæs.

Árni Guðmundsson

Félagsuppeldisfræðingur

Formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum

Helstu heimildir:

Alþingi. (án.d.). Áfengislöggjöf á Íslandi. Sótt af https://www.althingi.is

Árni Einarsson. (2025, október). Viðtal við Árna Einarsson um þróun forvarna á Íslandi. Tekið af : Árni Guðmundsson. Óútgefið efni.

Árni Guðmundsson. (2025, september). Könnun meðal forsvarsfólks félagsmiðstöðva á Íslandi.* Óbirt gögn.

Árni Guðmundsson. (2007) Saga félagsmiðstöðva í Reykjavík 1942-1992. Bók

European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs (ESPAD). (2019). ESPAD Report 2019: Results from the European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs. Luxembourg: Publications Office of the European Union. https://www.espad.org/report/home/

Frontiers in Public Health. (2023). *Preliminary impact of the adoption of the Icelandic Prevention Model on substance use among youth.* *Frontiers in Public Health*, 11, Article 1117857. https://doi.org/10.3389/fpubh.2023.1117857

Heilbrigðisráðuneytið (1992) Heilbrigð þjóð – Forvarnir og heilsustefna til aldamóta árið 2000. Hrafn F. o.fl

Íslenska æskulýðsrannsóknin. (n.d.). Niðurstöður og gögn úr Íslensku æskulýðsrannsókninni. Sótt af https://islenskaaesku.is

Mead, G. H. (1934). Mind, self, and society from the standpoint of a social behaviorist. Chicago: University of Chicago Press.

Planet Youth. (n.d.). The Icelandic Prevention Model (IPM) and how it works. Sótt af https://planetyouth.org/the-method/

Rannsóknir & greining (R&G). (2022). Ungt fólk 2022: 8.–10. bekkur. Reykjavík: Rannsóknir & greining. https://rannsoknir.is/skyrslur

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/islenska-modelid-i-forvornum-leidarljos-sem-vid-erum-ad-slokkva-a/

Á­fengi og í­þróttir eiga enga sam­leið – Áskorun til þing­full­trúa UMFÍ

Láttu aðra vita

https://www.visir.is/g/20252786620d/afengi-og-ithrottir-eiga-enga-samleid-askorun-til-thingfulltrua-umfi

Vísir 9.okt – Á­fengi og í­þróttir eiga enga sam­leið – á­skorun til þing­full­trúa UMFÍ

Áfengi og íþróttir eiga enga samleið – áskorun til þingfulltrúa UMFÍ

Á sambandsþingi UMFÍ um helgina verður lögð fram tillaga um að gefa út leiðbeinandi tilmæli vegna áfengissölu á íþróttaviðburðum á vegum UMFÍ! Tillagan er sögð miða að „varkárni og ábyrgð“ í slíkri sölu. En í raun felur hún í sér grundvallarbreytingu á því hvernig íþróttahreyfingin skilgreinir sjálfa sig, hvort hún standi áfram með lýðheilsu og forvörnum eða beygi sig undir sérhagsmuni áfengisiðnaðarins og taki þátt í þeirri ömurlegu vegferð hans og einlægri óskhyggju um að normalisera áfengi og áfengisneyslu, alltaf, alls staðar.

Það er einfaldlega ekki hægt að sætta sig við þessa tillögu. Áfengi, íþrótta- og æskulýðsstarf á enga samleið. Áfengisiðnaðurinn getur aldrei verið hluti af forvarnarstarfi. Tillagan er röng í öllum grundvallaratriðum, siðferðilega og samfélagslega.

Forvarnar- og lýðheilsuhlutverk UMFÍ er í húfi

UMFÍ hefur alla tíð verið mikilvægur burðarás í lýðheilsu, forvörnum og uppeldisstarfi á Íslandi. Hreyfingin hefur sem einstök fyrirmynd kennt kynslóð eftir kynslóð að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl, ábyrgð, samvinnu og sjálfsaga. Þessi arfleifð er dýrmæt og hún tapast ef íþróttahreyfingin fer að samþykkja áfengissölu sem hluta af sinni starfsemi.

Það þarf engan sérfræðing til þess að gera sér grein fyrir því að áfengi er einn stærsti einstaki heilsuvandi Íslendinga. Það veldur slysum, ofbeldi, andlegum veikindum og fjölskylduslitum. Það bitnar á börnum og ungmennum sem alast upp í skugga neyslu annarra. Að tengja áfengi umhverfi íþrótta, vettvangs barna og ungmenna — sem á að vera skjól og fyrirmynd — er því ekki „varkárni“. Það er afturför.

Tvískinnungur sem grefur undan trúverðugleika

Það er mikill tvískinnungur fólginn í því að segjast standa fyrir forvörnum og heilbrigðu uppeldi en um leið opna dyrnar fyrir áfengissölu á viðburðum íþróttafélaga.
Þegar fulltrúar UMFÍ ræða um „ábyrgð“ og „viðeigandi umgjörð“ á sölu áfengis, þá er það í raun fagurgali sem réttlætir það að brjóta gegn eigin grunngildum.
Við vitum að börn og ungmenni líta til íþróttahreyfingarinnar sem fyrirmyndar. Fyrirmyndirnar eru ekki bara á vellinum, þær eru líka í stúkunni eða á áhorfendabekkjunum. Börn og ungmenni sem upplifa og sjá áfengi tengt íþróttaviðburðum fá skýr skilaboð: áfengi og íþróttir eiga samleið. Það er ekki sú framtíð sem við viljum skapa.

Áfengisiðnaðurinn leitar nýrra leiða – ekki verða „vinur“ hans

Áfengisframleiðendur og -dreifingaraðilar um allan heim hafa leitað í íþróttir varðandi markaðssetningu. Það er engin tilviljun. Þeir vita að íþróttir tengjast jákvæðri ímynd, heilbrigði og samstöðu – og vilja nýta þá ímynd til að selja meira áfengi – afla nýrra viðskiptavina „barna og ungmenna“.
Ef UMFÍ velur þessa leið, þá er það ekki aðeins á skjön við eigin gildi heldur verður hreyfingin samstarfsaðili í markaðssókn áfengisiðnaðarins gagnvart ungu fólki. Slíkt er algerlega siðferðilega óverjandi og samfélagslega skaðlegt.

Ábyrgðin liggur hjá þingfulltrúum

Þingfulltrúar UMFÍ standa nú frammi fyrir mikilvægu vali. Þeir þurfa að ákveða hvort þeir standi með börnum og ungmennum lýðheilsu, forvörnum og uppbyggilegu félags- og íþróttastarfi eða standi með þeirri hugsun að áfengi sé „eðlilegur“ hluti af íþróttastarfinu og því skuli veita áfengisiðnaðinum aðgengi að félagfólki sínu sem eru að stærstum hluta börn og ungmenni.

Þeir sem samþykkja þessa tillögu munu bera ábyrgð á því að grafa undan trúverðugleika forvarnarstarfs og lýðheilsuhugsjónar UMFÍ. Þeir munu líka leggja sitt af mörkum til þess að veikja stoðir hins margrómaða og sannreynda íslenska módels í forvörnum, sem er mörgum samfélögum og þjóðum fyrirmynd í forvörnum.

Þeir sem hafna henni munu hins vegar verja þann siðferðilega grundvöll og markmið sem Ungmennafélagshreyfingin hefur byggt á í meira en öld. Standa með réttindum barna og ungmenna til þess að vera laus við áreiti áfengisiðnaðarins og skapa áframhaldandi jákvæðar og uppbyggilegar forsendur í mikilvægu uppeldis- og íþróttastarfi.

Áfengi og íþróttir eiga enga samleið. Það er því einfaldlega skylda UMFÍ að standa vörð um börnin, ungmennin, velferð þeirra og möguleika til farsældar en ekki að opna dyrnar fyrir iðnaði sem hefur það eina markmið að selja áfengi, hvers afleiðingar eru þekktar.

Ég mæli örugglega fyrir hönd okkar allra sem vinnum að velferð barna og ungmenna þegar ég hvet alla þingfulltrúa UMFÍ eindregið til að hafna þessari tillögu um áfengissölu á íþróttaviðburðum.

Árni Guðmundsson

félagsuppeldisfræðingur

Formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/afengi-og-ithrottir-eiga-enga-samleid-askorun-til-thingfulltrua-umfi/

„Spjallað við lögregluna“ segir í frétt á miðlinum 433is

Láttu aðra vita

Áfengi og íþróttir eiga aldrei samleið. Ólögleg sala áfengis af hálfu íþróttafélags er eins langt frá markmiðum starfseminnar og komist verður.

Ekki bætir úr skák þegar brot eru ítrekuð. Fólki misbýður þetta eins og fjölmargar ábendingar sem okkur hafa borist bera vott um. Leitt þegar að forsvarsfólk íþróttafélags skilur ekki ábyrgð sína né hlutverki í mikilvægu uppeldis- og forvarnarstarfi eins og íþróttahreyfingin stendur að öllu jöfnu fyrir.

Í fréttinni segir: „Ég (framkvæmdastjórinn – innskot FGÁ) var boðaður í spjall með lögreglu út af sölu á leikjum, þetta var ekki alvarlegra en það,“ segir xxxxxx í samtali við 433is um það hvort sagan um kæru væri rétt.

Lögreglan hefur einnig litið við á leik í xxxxx þar sem bjór var seldur. „Það kom lögregla á einn leik, það er í einhverri rannsókn. Við vitum ekki hvort það endi í sekt eða áminningu.“

Fólk er einfaldlega boðað til yfirheyrslu þegar að lögregla rannsakar sakamál og slíkt er alltaf alvarlegt.

Fyrirsögin „´Íþróttafélag sektað vegna (ítrekaðra) brota á áfengislöggjöfinni“ gæti allt eins orðið niðurstaða úr „spjallinu“ og vandséð hvernig félag eða forsvarsfólk (í forvarnar og uppeldistarfi) þess ætlar að vinnu úr þeirri stöðu, svo ekki sé minnst á hve ömurleg staða félagsins verður ef slíkt kemur upp.

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/spjallad-vid-logregluna-segir-i-frett-a-midlinum-433is/

Breiðfylking forvarnarsamtaka fagnar því að ólögleg áfengissala verður loks stöðvuð

Láttu aðra vita

Eftir bið í meira en hálfan áratug er loks komin niðurstaða um að íslenska svindlaðferðin við netsölu áfengis af lager innanlands er ólögleg. Breiðfylking forvarnarsamtaka fagnar því að kæra ÁTVR á hendur netsöluaðila áfengis hafi leitt til ákæru lögreglu. Skorað er á stjórnvöld að standa vörð um lýðheilsu og almannaheill.

Niðurstaða þessi kemur ekki á óvart því lagabókstafurinn er ótvíræður eins og samtökin hafa ítrekað bent á og fært rök fyrir. Samtökin telja því að netsöluaðilar eigi ekki rétt á skaðabótum. Ef svo ólíklega vill til að skaðabótaréttur er til staðar, ættu stjórnvöld að greiða slíkar bætur. Ódýrara er að greiða þær en allan þann samfélagsskaða sem verður ef aðgengi að áfengi verður aukið með afnámi einkasölu ríkisins á áfengi.

Það er í hæsta máta gagnrýnivert að stjórnvöld og stjórnsýsla skuli hafa sett málið aftast í forgangsröðina í fjölmörg ár og gefið þannig áfengisiðnaðinum færi á að leika lausum hala til að grafa undan einkasölu ríkisins á áfengi. Ólögleg netsala hefur hvatt til aukningar á neyslu áfengis með tilboðum og afsláttum á áfengi þvert á markmið lýðheilsustefnu stjórnvalda. Þá hefur slík netsala einnig þverbrotið reglur um sölutíma á áfengi. Sala þessi er meðal annars talin hafa stuðlað að aukinni unglingadrykkju og hafa samtökin miklar áhyggjur af þeirri þróun. Einkasala ríkis á áfengi er það sölufyrirkomulag sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir með og rannsóknir og vísindi sýna að reynist best til að vernda lýðheilsu og almannaheill.

Samtökin skora á stjórnvöld að sýna samfélagslega ábyrgð og láti af því að þjóna aðilum sem vilja gera verslun með áfengi að gróðalind. Seinagangur stjórnvalda hefur stóraukið hættu á að samstaðan um að viðhalda einkasölu ríkis á áfengi brotni niður. Ætla má að ólöglegir söluaðilar muni nú krefjast lagabreytinga til að geta selt og grætt sem mest fyrir sjálfan sig, þótt slíkt auki samfélagskostnað um á annað hundrað milljarða króna árlega. Netsöluaðilar greiða ekki samfélagsskaðann það gera skattborgararnir.

Samtökin krefjast þess að stjórnvöld geri nú það sem allir stjórnmálaflokkar segjast sammála um, sem er að auka fræðslu og þekkingu í áfengis- og nikótínforvörnum. Slíkt er gert með því að halda á lofti sannreyndri þekkingu og vísindum. Í samþykktri stefnu Alþingis um lýðheilsustefnu til ársins 2030 segir að Íslendingar verði meðal fremstu þjóða í lýðheilsustarfi sem byggist á bestu vísindaþekkingu og reynslu og að stjórnvöld skuli hafa lýðheilsu að leiðarljósi við alla áætlanagerð og stefnumótun.

Í lögum um verslun með áfengi og tóbak segir að starfrækja skuli ÁTVR og að markmið laganna sé að skilgreina umgjörð um smásölu áfengis og heildsölu tóbaks sem byggist á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð, að takmarka og stýra aðgengi að áfengi og tóbaki og draga þannig úr skaðlegum áhrifum áfengis- og tóbaksneyslu, og að vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis og tóbaks og takmarka framboð á óæskilegum vörum.

Samtökin skora á stjórnvöld að hlaupa ekki eftir þeim sem hafa hundsað landslög til að geta hagnast sem mest á sölu áfengis í eigin þágu á kostnað samfélagsins. Nær væri að hlusta á breiðfylkingu heilbrigðisstétta, forvarnarsamtaka og fleiri sem hafa ítrekað skorað á stjórnvöld að fylgja stefnu sem sannreynt er að þjóni samfélaginu og sé til almannaheilla.

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/breidfylking-forvarnarsamtaka-fagnar-thvi-ad-ologleg-afengissala-verdur-loks-stodvud/

Flöggum fána lýðheilsu! – málþing um áfengi og lýðheilsu

Láttu aðra vita

Skráning : https://fb.me/e/6C32pBLLS

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/floggum-fana-lydheilsu-malthing-um-afengi-og-lydheilsu/

Load more