Previous Next

Rannsókn: Assessment of young people’s exposure to alcohol marketing in audiovisual and online media

Láttu aðra vita

Í rannsókn þeirra Eleanor Winpenny, Sunil Patil, Marc Elliott, Lidia Villalba van Dijk, Saba Hinrichs, Theresa Marteau og Ellen Nolte kemur fram að börn og ungmenni í Bretlandi og Hollandi verða fyrir töluverðu áreiti frá áfengisiðnaðaninum í sjónvarpi, mun meir en fullorðið fólk.

Þess ber að geta að notkun áfengis meðal ungs fólks er vaxandi áhyggjuefni í Evrópu. Í rannsókn frá árinu 2011 leiddi í ljós að minnsta kosti tveir þriðju á aldrinum 15-16 ára höfðu neytt áfengis að minnsta kosti einu sinni á ævi sinni og um helmingur greindu frá því að hafa verið drukknir á lífsleið sinni. Þátttökulönd voru 35 lönd í Evrópu.

Langtímarannsóknir sýna, svo ekki verður um villst, að markaðssetning áfengisiðnaðarins eykur líkur á að ungmenni hefur áfengisdrykkju einnig eru töluverðar líkur á að áfengi sé neytt í meira mæli þeirra sem eru byrjaðar að drekka þrátt fyrir ungan aldur (Anderson P, de Bruijn A, Angus K, Gordon R, Hastings G. Impact of Alcohol Advertising and Media Exposure on Adolescent Alcohol Use: A Systematic Review of Longitudinal Studies. Alcohol and Alcoholism 2009).

http://www.eurocare.org/assessment_of_young_people_s_exposure_to_alcohol_marketing_in_audiovisual_and_online_media

 

Fleiri áhugaverðar rannsóknir:

 

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/rannsokn-assessment-of-young-peoples-exposure-to-alcohol-marketing-in-audiovisual-and-online-media/

Danski fræðsluvefurinn Bad Ad

Láttu aðra vita

bad ad

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/danski-fraedsluvefurinn-bad-ad/

Þegar að þú heyrir eða sérð…

Láttu aðra vita

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/thegar-ad-thu-heyrir-eda-serd/

Hvenær ætlar RÚV að hætta að birta áfengisauglýsingar

Láttu aðra vita
Ágætu móttakendur og ekki síst stjórn RÚV
Egils Gull okkar bjór, léttöl
Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum harma allt það tillitsleysi og öll þau augljósu lögbrot, sem framin eru dag hvern, gagnvart lögvörðum réttindum barna og ungmenna til þess að vera laus við áfengisáróður. Því miður hefur RÚV gengið fram fyrir skjöldu þeirra aðila sem slíkt ástunda. RÚV sem að öllu jöfnu ætti að vera flaggskip íslenskrar menningar, sýnir einlægan brotavilja og sniðgengur með öllu þau augljósu (og ekki síst þau siðferðilegu) skilaboð sem felast í 20. gr áfengislaga um bann við áfengisauglýsingum. Í stað þess að taka málstað barna- og ungmenna hefur RÚV skipað sér í sveit þeirra sem láta hin ítrustu viðskipatsjónarmið ráða för algerlega óháð almennu siðferði og velsæmi. RÚV hefur tekið sér stöðu andspænis þeim augljósu velferðarsjónarmiðum um vernd barna og ungmenna sem eru grunnur að 20. greinar áfengislaga. Fyrirsögn þessa pósts er sóttur í áfengisauglýsingu sem leikin hefur verið dag út og dag inn á Rás 2 undanfarið og er talandi dæmi um það á hve lágt plan RÚV er komið í þessum efnum (og er að nægu af taka ef út í það er farið). Það vekur óneitanlega þá spurningu um hvort RÚV skilji ekki, eða geri sér grein fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni, ekki síst gangvart börnum og ungmennum?

Stjórn Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum skorar á stjórn RÚV að taka í taumanna og stöðva með öllu þessa augljósu brotastarfsemi. Foreldrasamtökin skora einnig á þar til bær yfirvöld að bregðast, með viðeigandi hætti, við brotum af þessum toga. Á því eiga börn og ungmenni þessa lands augljósan rétt á að gert sé og það ber að virða.

Virðingarfyllst

Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/hvenaer-aetlar-ruv-ad-haetta-ad-birta-afengisauglysingar/

Það er ekkert óskýrt!

Láttu aðra vita

augl-20gr-FGA

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/thad-er-ekkert-oskyrt/

Með bjórdollu í annarri hendinni og forvarnaráætlun í hinni!

Láttu aðra vita

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/03/14/eins_og_leidinlegi_fraendinn/

Varanlegur hlekkur á þessa grein: https://www.foreldrasamtok.is/med-bjordollu-i-annarri-hendinni-og-forvarnaraaetlun-i-hinni/

Load more