Ólöglegar auglýsingar á RÚV
Til fróðleiks sendum við afrit af tilkynningu Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum til fjölmiðlanefndar/lögreglunnar vegna auglýsinga á RÚV frá Smáríkinu sem nú nýverið var dæmt vegna ólöglegrar áfengissölu.
Við bendum á mikilvægt hlutverk og þá ábyrgð sem RÚV ber gagnvart almenningi sem opinber fjölmiðill. Sem slíkur á RÚV að vera fyrirmynd í vönduðum og lögmætum vinnubrögðum og gæta sérstaklega að því að virða gildandi lög og reglur, ekki síst þegar um er að ræða viðkvæm málefni á borð við áfengismál og áhrif þess á samfélagið, ekki síst börn og ungmenni.
Það er því ekki boðlegt að RÚV brjóti lög með því að auglýsa ólöglega starfsemi og það ætti heldur ekki að vera í boði að RÚV birti illa dulbúnar áfengisauglýsingar sem augljóslega eru ómerkilegir útúrsnúningar á skýrum lögum um bann við áfengisauglýsingum. Slík framsetning grefur undan tilgangi laganna, sem er að vernda almenning, sérstaklega börn og ungmenni, gegn áhrifum markaðssetningar áfengis.
Almenningur í landinu á að geta treyst því að Útvarp allra landsmanna fari að lögum, bæði anda þeirra og bókstaf.
Virðingarfyllst,
F.h. Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum
Árni Guðmundsson, formaður (sign)
Viðauki:
Áfengisauglýsing á RÚV / Brotastarfsemi auglýst
Fjölmiðlanefnd / Lögreglan
Ágæti viðtakandi
Fyrir nokkru var fyrirtækið Smáríkið dæmt fyrir brot á áfengislöggjöfinni. Sjá dóminn: https://www.foreldrasamtok.is/thad-er-engin-vafi-og-hefur-aldrei-verid/
Þrátt fyrir það birtist kl ca 19:25 sunnudaginn 26. apríl í sjónvarpi RÚV auglýsing um þessa ólöglegu starfsemi Smáríkisins. Að mati samtakanna er þessi auglýsing jafnframt brot gagnvart 20. grein áfengislaga um bann við áfengisauglýsingum.
Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum krefjast þess að gripið verði til viðeigandi ráðstafana þegar í stað. Það er algerlega óboðlegt að RÚV virði hvorki siðferðilegar né lagalegar skyldur sínar hvað þetta mál varðar.
Fyrir hönd Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum
Árni Guðmundsson, formaður (sign)


