Athugasemdir við: Áfengi er ekki einkamál

Höfundur: Jón Bjarni Steinsson
Einstaklingur sem flytur inn til landsins eða framleiðir það hér fær ekki að selja það þar sem honum sýnist, hann þarf að koma því í sölu hjá eina fyrirtækinu sem hefur leyfi til slíks. Þar fær hann það til prufu í fáeinum verslunum og seljist varan ekki nóg þá fer hún úr sölu. Hann færi ekki að setja hana í allar verslanirnar.

Fyrir stærri aðila er þetta ekkert vandamál, þeir bara kaupa eigin vöru úr ríkinu eða gefa sínum viðskiptamönnum afslætti gegn því að kaupa þeirra nýju vörur úr hillinum – þannig komast þeirra vörur í almenna dreifingu á meðan minni aðilar sitja eftir með sárt ennið

Hvernig er þetta ekki skerðing á frelsi?

Höfundur: Björn Leví
Er ekki tóbak selt í flestum verslunum? Hver eru rökin fyrir því að selja sígarettur í almennum verslunum en ekki áfengi? Ef samanburðurinn við ‘hörðu fíkniefnin’ eiga að gilda þá verður samanburðurinn á tóbaki og áfengi líka að gilda allavega.

Það má vel vera að það séu rök með og á móti þegar tekið er tillit til frelsi verslunar og frelsi einstaklings. Það sem er betra en rök hins vegar eru gögn. Afnám áfengisbanns, afnám bjórbanns, breyting á opnunartíma skemmtistaða. Þetta er einungis næsta skref í þessu ferli. Kannski virkar það, kannski ekki – og við snúum til baka.

Ef afnám bjórbannsins hefði haft allt í för með sér sem spáð var þá værum við örugglega ekki að hugsa um að leyfa sölu áfengis á aðgengilegri máta en nú er. Jú, það eru fullt af vandamálum – en það er ekkert sem segir að lausnin við þeim vandamálum sé takmarkað aðgengi. Dæmi um það hvernig takmarkað aðgengi hefur slæm áhrif eru til dæmis áfengisbannið og fíkniefnastríðið. Fíkill lætur ekki takmarkað aðgengi stöðva sig.

Heilsusamlegri lausn er að treysta samfélaginu til þess að leysa vandamálin. Það gerist ekki sjálfkrafa auðvitað, við þurfum að vera vakandi fyrir þeim vandamálum sem geta komið upp en einnig meðvituð um hvaða lausnir eru að virka og hverjar ekki.

Þannig að sem mótrök við því sem þú ert að segja, það er nákvæmlega ekkert sem segir að takmarkað (á nokkurn hátt) aðgengi hafi jákvæð áhrif á þessi vandamál áfengisneyslu sem þú lýsir. Hitt er hins vegar alveg hárrétt: “Verslunarfrelsi má ekki rugla saman við einstaklingsfrelsi. Frjálslynd samfélög reisa öll ýmsar skorður við verslun, ekki síst með áfengi.” — við megum þá líka alveg skoða hvar við setjum mörkin og prófa að færa þau af og til.